Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1981, Side 10
10
miástöóvar er þjóna flestum greinum íþrótta, bæði íþróttafélaga
og skóla innan sveitarfélaganna. í þessu sambandi má nefna
greinar eins og handbolta, körfiibolta, frjálsar íþróttir, badmin-
ton, júdó, glimu og sund.
íþróttasalir á svæóinu eru af mismunandi stærðum. Stærstur þeirra
er salurinn í Laugardalshöllinni 45 x 35 m. Skólasalirnir eru
yfirleitt 9 x 18 m eða 18 x 33 m að gólffleti.
Það kostar töluverða vinnu að sögn þeirra er glöggt þekkja til
þessara mála, að draga saman upplýsingar um nýtingu íþrótta-
salanna á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir það fyrsta þá eru sambæri-
legar upplýsingar ekki til. En í mörgum þeirra eru haldnar
einskonar viðvistar- eða mætingaskrár (sjá mynd) er gefa m.a.
til kynna íþróttagrein, fjölda iðkenda og þann tíma sem fer í
æfingar. Þannig viðvistarskrár frá öllum íþróttasölum á svæðinu
myndu gefa ómetanlegar upplýsingar um íþróttaiðkun íbúanna.
Staður;
Skýrsla um notkun íþróttasala
□ Mánudagur □ Þriðjudagur □ Miðvikudagur □Fimmtudagur □ Föstudagur □ Laugardagur □Sunnudagur 19 Iðkenda- fjöldl Undirskrltt þjálfara/forráðamanns
Tíml Félag fþróttagrein Flokkur
DÆMI UM VIÐVISTARSKRÁ ÍÞRÓTTASALA.
(Heimild: íþróttaráð Reykjavíkur).
5. SUNDLÁUGAR.
Á höfuðborgarsvæðinu eru 9 sundstaðir opnir almenningi. 1
Reykjavík eru þeir fjórir talsins en í Mosfellssveit, Kópavogi,
Garðabæ og Hafnarfirði er einn sundstaður í hverju þessara
sveitarfélaga. í Bessastaðahreppi mun ný sundlaug verða tekin
í notkun í byrjun vetrar ('81) og á Seltjarnarnesi standa vonir
til að 25 m löng laug verði tekin í notkun 1982/83.
Síðustu árin hefur aðsókn að sundstöðum svæðisins verið jöfn
eða tæplega 1.2 milljónir manna að meðaltali á tímabilinu
1976-1980.
Á síðasta ári lætur nærri að aðsóknin að sxmdstöðunum nái 1.5
milljón manna og er þá undanskilið allt skólasund grxonnskólanna
svo og fjöldi sumarnámskeiða fyrir yngri böm.
6. GOLFVELLIR.
Fjórir golfvellir eru nú á höfuðborgarsvæðinu: 18- holu völlur
Golfklúbbs Reykjavíkur við Grafarholt, 9- holu völlur á Sel-
tjarnarnesi og sömuleiðis á Hvaleyrarholti við Hafnarfjörð. Enn