AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Page 32

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Page 32
ELDHÚS FRAMTÍÐARINNAR Guðrún Margrét Ólafsdóttir INNANHÚSSARKITEKT Oddgeir Þórðarson INNANHÚSSARKITEKT 1 — * « Lóðrétt tengsl eldhúss við stofu ó efri hœð. Hönnun Guðrún Margrét og Oddgeir. Framl. Brúnás innréttingar. ú tekur ekki eftir breytingum í lífi þínu dag frá degi, en einn daginn sérðu að eldhúsið þitt er ekki lengur í takt við tímann. Þjóðfélagið hefur breyst og gamla eldhúsið getur ekki lengur þjónað sínu hlutverki. Aukin tækni hefur áhrif á daglegt líf okkar og í mörgum nýjum húsum hefur gamla herbergjaskipulagið tekið miklum breytingum. Staðsetning og skipulagning eldhússins hefur breyst frá því að vera lokaður vinnustaður í að vera hluti af stærri og fjölbreyttari íverustað. Hefðbundna eldhúsið verður hluti af þjónustumiðstöð þar sem hægt er að borða, lesa, skrifa, hlusta á tónlist og horfa á sjónvarp. Það þarf að geta þjónað ólíkum uppákomum hvort sem um er að ræða skyndimál- tíðir yfir sjónvarpinu eða veislur með tilheyrandi ser- móníum. Fjölskyldumynstrið hefur breyst, færri eru í heimili en áður, einstakir meðlimir fjölskyldunnar eru sjálfstæðari en áður og fleiri velja að búa einir. Eldhús sem er skipulagt út frá óskum og þörfum hvers og eins verður áfram hjarta hússins. MATUR Eitt og sama eldhúsið þarf að geta þjónað fjölskyldu- meðlimum með ólíkt mataræði og ólíka matartíma. Ahugi á matreiðslu og almenn þekking um áhrif mataræðis á heilsufar fer vaxandi. Stóraukið úrval matsölustaða leiðir af sér færri máltíðir á heimilinu og mikið framboð á skyndiréttum gefur möguleika á að eyða minni tíma í eld- húsinu. Matvælaframleiðendur eru sífellt að auglýsa ferskari, hollari og auðveldari rétti sem hægt er að matreiða á nokkrum mínútum. Þennan möguleika nýtir fólk sér í æ ríkara mæli, en aftur á móti gefur það sér tíma í matreiðsluna sem oft er áhugamál og býður fjölskyldu og vinum í mat. TÆKNI Eldhúsið er sífellt að verða sjálfvirkara. Tækjafram- leiðendur taka meira tillit til umhverfismála, tækin verða hljóðlátari, nákvæmari, auðveldari í notkun, eyða minna rafmagni, vatni, hreinsiefni o.s.f. Fleiri valmöguleikar í stærðum og útliti tækja gefa kost á að sníða eldhúsið betur að smekk og þörfum hvers og eins. 30

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.