AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Blaðsíða 76

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Blaðsíða 76
umhverfisáhrifum fyrir tiltekna framkvæmd úrskurðar umhverfisráðherra að fenginni umsögn skipulagsstjóra. A vegum umhverfisráðuneytisins er nú unnið að samningu reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum og hjá Skipulagi ríkisins er unnið að leiðsögureglum um það hvemig standa beri að mati og hvað og hvernig þar beri að skoða. I þeirri vinnu er m.a lögð áhersla á að skilgreina vel hvaða þættir það eru sem lagðir eru til grundvallar ákvörðun um það hvort tiltekin framkvæmd hafi umtalsverð áhrif á umhverfið eða lítil áhrif. Áður en ráðist er í framkvæmdir sem eru háðar mati þarf framkvæmdaraðili að senda skipulagsstjóra tilkynningu um fyrirhugaða framkvæmd. I þeirri tilkynningu er mikilvægt að sem haldbestar upplýsingar komi fram til að auðvelda og flýta ákvörðun um það hvort frekara mats sé þörf en koma fram í tilkynningunni. Áhersla verður m.a. lögð á að eftirfarandi komi fram: ■ Lýsing á framkvæmdinni og upplýsingar um stað, hönnun og umfang verkefnisins. ■ Upplýsingar um það hvemig fyrirhuguð framkvæmd fellur að gildandi skipulagi. ■ Markmið með framkvæmd og samræmi við stefnumörkun stjómvalda. ■ Lýsing á náttúrlegu umhverfi á svæðinu. ■ Lýsing á hugsanlegri umhverfisröskun og ráðstöfunum sem gerðar verða til að forðast eða draga úr röskun. ■ Gögn sem nauðsynleg eru til að meta hvaða umhverfis- þættir verði að líkindum fyrir röskun vegna fram- kvæmdanna. ■ Lýsing á þeim kostum sem kannaðir vom við forhönnun framkvæmdar. ■ Urdráttur á skiljanlegu máli. Á gmndvelli þeirra upplýsinga sem fram koma í tilkynningu framkvæmdaraðila fer fram svokölluð frumathugun hjá Skipulagi ríkisins. Að henni vinna starfsmenn stofnunar- innar með aðstoð sérfræðinga á ýmsum sviðum sem verða tilkallaðir eftir eðli máls hverju sinni. Urdráttur úr til- kynningu framkvæmdaraðila er birtur með auglýsingu þar sem fram kemur tegund framkvæmdar og hvar nálgast megi frekari gögn um málið. Samráð er haft við leyfis- veitendur og öðrum þeim sem telja sig hagsmuna hafa að gæta, er gefinn kostur á því að senda inn skriflegar athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd. Leiði frumathugun í ljós, að fengnum athugasemdum, að ekki verði um að ræða umtals verð óæskileg umhverfisáhrif eða mótvægisaðgerðir til að draga úr óæskilegum áhrifum taldar fullnægjandi, er gefin út tilkynning um það og hægt að hefja framkvæmdir að fengnum tilskildum leyfum, s.s. byggingarleyfi sveitarstjórnar og starfsleyfi Hollustu- vemdar. Leiði fmmathugun í ljós, að tilteknir þættir framkvæmdar hafi umtalsverð áhrif sem ekki eru gerð skil í tilkynningu, fer framkvæmd í mat á umhverfisáhrifum. Framkvæmd- araðila ber þá að sjá um matið samkvæmt nánari leiðsögn embættis skipulagsstjóra og ber kostnað af því og ábyrgð á því að fjallað sé um öll þau atriði sem krafist er. í skýrslu framkvæmdaraðila um mat á umhverfisáhrifum þarf að koma fram heildarmynd af umhverfisáhrifum framkvæmdar með sérstakri áherslu á þeim þáttum sem bent var á í frumathugun að þyrftu frekari skoðunar við. Niðurstöður mats þurfa að vera studdar haldbærum rökum. Koma þarf skýrt fram til hvaða ráðstafana verði gripið til að vega á móti alvarlegri umhverfisröskun. Að lokinni auglýsingu, samráði við leyfisveitendur og tekinni afstöðu til athugasemda sem kunna að hafa borist við fyrirhugaða framkvæmd úrskurðar skipulagsstjóri um það hvort: ■ Krafa er gerð um frekari könnun einstakra þátta. ■ Fallist er á viðkomandi framkvæmd með eða án skilyrða. ■ Lagst er gegn viðkomandi framkvæmd. Fallist framkvæmdaraðili ekki á úrskurðinn getur hann kært hann til umhverfisráðherra. Eins og gefur að skilja er engin reynsla komin á það hvemig mat á umhverfisáhrifum fer fram hér á landi þótt ýmsar tilraunir hafi verið gerðar. Á það er eftir að reyna. Hér á landi er hins vegar fyrir hendi öll þekking sem til þarf. Skipulag ríkisins er nú að búa sig undir þetta stóra verkefni meðal annars með því að skoða hvernig því verði best komið við að mat á umhverfisáhrifum verði fastur liður í gerð skipulagsáætlana. Þá er einnig verið að ráða tvo sérfræðinga sem munu í samvinnu við þá starfsmenn sem fyrir eru og sérfræðinga annarra stofnana annast umfjöllun um tilkynningar framkvæmdaaðila. I nóvember stendur Skipulag ríkisins í samvinnu við Endurmenntun Háskóla Islands fyrir eins dags grunnnám- skeiði í mati á umhverfisáhrifum og seinni hluta febrúar 1994 verður fjögurra daga námskeið á vegum sömu aðila. Til að kenna á því námskeiði höfum við m.a. fengið tvo sérfræðinga frá Skotlandi sem hafa langa reynslu í umhverfismati. Þegar námskeiðið verður haldið verður að líkindum búið að setja nýjareglugerð og leiðsögureglumar munu verða tilbúnar. Það verður svo að koma í ljós hvemig til tekst með framkvæmd laganna, hvort tilky nningar sem berast árlega verði 10 eða 100 og hvemig framkvæmdaaðilar bregðast við breyttum aðstæðum. Starfsfólk Skipulags ríkisins mun leggja áherslu á kynn- ingar- og fræðslustarf og reyna að koma því til skila að markmið nýrra laga um umhverfismat er ekki að tefja eða draga úr framkvæmdum og skapa sérfræðingum á hinum ýmsu sviðum umhverfismála ómælda vinnu. Markmiðið er að undirbúningurinn verði vandaður og áhrifin séð fyrir. Til lengri tíma litið mun betri undirbúningur skila sér í auknum framkvæmdahraða og spamaði. ■ 74
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.