AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Side 57

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Side 57
Æ OPNARA RÉTTLÆTI Sérhver framþróun í þjóðfélagi, sérhver aukin dyggð er brennd marki aukins umburðarlyndis og gæsku í dómskerfi þess: það keppir að sífellt ópersónulegra gildismati á verknaðinum, og stenst jafnvel enn frekar siðakerfi hefndarinnar. Þar af leiðandi dregur það úr harðneskju og villimennsku refsingarinnar. Ahrif þessa eru þau að viðhorf til sektar breytist og lögbrot er fremur álitið félagslegt vandamál en einstaklingsbundið. í augum Nietzsches ber hreinskilni og umburðarlyndi dómskerfisins vitni um ábyrgð og þroska samfélagsins, er mælikvarði á manngæsku þess; „...það að dómskerfið sigrist á sjálfu sér, þekkjum við í því dásemdarorði sem það hefur búið sér sjálft og kallar miskunn“. A sinn sérstaka hátt er lokaniðurstaða slíkrar þróunar hæsta stig siðferðis samfélagsins. Dómskerfi þar sem hvorki er til sekt né refsing, enginn dómur sem slíkur, heldur er samfélagið í heild sinni spurt opinna spurninga í stað þess að bera einstaklinginn sökum: „Látum oss útrýma hugmyndinni um syndina úr heiminum og í framhaldi af því lát oss snarlega losna við hugmyndina um refsingu! Ættum við ekki að vera nægilega þroskuð til hins gagnstæða? Ættum við ekki að geta sagt með sanni: Sérhver sá sem er sekur, er veikur?“ Slík hugsjón dansar fyrir hugskotssjónum okkar og laðar fram tilhlökkun þegar horft er til framtíðarinnar, þessi sífellda þrá eftir þvfaðdómskerfiðsigristásjálfusér; dómshúsiðsem hressingar- hæli samviskunnar. Tillaga okkar, Hæstiréttur fvrir 21. öldina, væntir þess að þráin eftirþessari fágun, þessari hneigð til hugsjónaréttlætis, og tilraunir í þá veru sem er eins erfitt að skynja og skáldskapinn, opni nýja möguleika fyrir framtíðina.“ ■

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.