AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Blaðsíða 84
F S T O R G
I N G Ó L
Umþessarmundir er framkvæmdum álngólfstorgi
í Reykjavík að ljúka. Þetta er fyrri áfangi hinna
gagngeru breytinga, af tveimur og nær yfir Ingólfs-
torg, áðumefnt Hallærisplan og Steindórsplan.
Síðari áfanginn nær yfir Grófina frá Tryggvagötu að Geysishúsi.
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi Kvosarinnar, var gert ráð
fyrir torgi á þessu svæði. Framkvæmdimar em unnar eftir
vinningstillögu arkitektanna Elínar Kjartansdóttur, Haraldar
Arnar Jónssonar og Helgu Benediktsdóttur, úr hugmynda-
samkeppni er efnt var til í fyrra.
Markmið arkitektanna er, að gamli miðbærinn endurheimti sinn
gamla sess sem hjarta borgarinnar og verði vettvangur iðandi
mannlífs. Ingólfstorg er hinn eiginlegi miðpunktur borgarinnar,
þar sem skerast hinar gömlu götur Austurstræti og Aðalstræti.
Svæðið hefur verið látið sitja á hakanum lengi og er í mikilli
niðumíðslu. Með þessum framkvæmdum er verið að mynda
heilsteypt torg í miðbæ Reykjavíkur, hið opinbera torg borgarbúa,
sem verði í framtíðinni rammi um útisamkomur þeirra, stórar
sem smáar. Til þess að geta virkað sem slíkt, verður rýmið að
vera formað á einfaldan hátt, þannig að það geti tekið við fjölda
manns, og til langframa þolað það slit er af því hlýst, en
jafnframt, að fólk fái það á tilfinninguna að torgið hafi fengið
sína endanlegu mynd.
Miðað við mælikvarða bæjarins og hæðir þeirra húsa er afmarka
svæðið, var ákvörðun arkitektanna sú, að Ingólfstorg yrði skipt
í tvo hluta. Sá stærri, sunnan megin, verði samkomutorgið, sá
minni norðan megin verði fortorg Geysishúss.
Sy ðri hlutinn fær léttan halla niður til norðurs, og rísa tröppur upp
82