AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Blaðsíða 33
Hönnun: Guðrún Margrét og Oddgeir. Framl.
Brúnás innréttingar.
Hönnun: David Wild.
SKIPULAG OG ÚTLIT
Samvera fólks á heimilinu er oft og tíðum styttri nú en
áður. Þá stuttu stund sem allir eru heima vilja þeir gjarnan
hafa félagsskap hver af öðrum og er því opna eldhúsið með
rúmgóðri borðstofu orðið vinsæl lausn.
Margir eru orðnir fráhverfir hefðbundnum eldhús-
innréttingum og vilja ekki að þær myndi einhæfa og
ópersónulega heild. Fleiri vilja hlýlegt og óformlegt
umhverfi, mikið er lagt upp úr gæðum innréttinga og
áhersla lögð á vinnuhagræði og að nýta rýmið sem best.
Framleiðendur eldhúsinnréttinga hafa verið fremur
íhaldssamir hvað varðar skipulag og útlit eldhúsa. Þetta er
þó að breytast og við sjáum aukna fjölbreytni í útfærslum
innréttinga. Reynt er að höfða til ólíkra hópa fólks með
mismunandi línum innréttinga, klassískra, rómantískra,
stflhreinna o.s.f. Meiri áhugi er á náttúrlegum efnum:
steinn, viður, stál, gler, sem oft eru notuð á nýjan hátt með
mismunandi áferðum og meðhöndlun. Þessum ólíku efnum
og áferðum er nú mikið blandað saman í innréttingar á
frjálslegri hátt en áður og ýmislegt gert til að ná fram
andstæðum.
I framtíðinni mun meiri áhersla verða lögð á að laga
eldhúsið að ólíkum lífsstíl fólks sem margt virðist sækja til
fortíðar.
Allavega virðist sú framtíðarsýn sem menn höfðu fyrir
nokkrum áratugum, að um aldamót yrði næring öll í
pilluformi, ekki ætla að rætast. ■
Hönnun: Guðrún Margrét og Oddgeir.
Framl. Brúnás innréttingar.
31