AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Side 41
Paul Cézanne. Maison du Pendu a Auvers. 1873. Musée d'Orsay, París.
ÚTFÖRJANS PALACHS
Þegar ég lét hugann fljúga
losnaði ég úr klafa umhverfisins
og varð tómur að innan.
Og ég hef lengi verið dáinn.
Þegar ég átti rödd sem hægt var að nefna því nafni,
sagði móðir mín við mig með grátstafi í hverkunum:
Sonur minn, elsku sonur minn.
Eg hélt að þetta gæti aldrei gerst.
Eg skal fylgja þér gangandi.
Hljóðnemarnir fóru af stað þegar leiðin var hálfnuð
gegnum leðju og krap.
Það rigndi á húsin.
Það snjóaði á lögreglubílana.
Geimfararnir grétu,
þeir fóru hvorki upp né út.
Móðir mín var nógu djörf, hún horfði.
Og það var í lagi - ég var dáinn.
Ljóðið og atburðirnir, sem eru kveikjan að því, vöktu
hugmyndir hjá John Hejduk um að brúa enn eitt bil. Að láta
Hús sjálfsmorðingja „stíga út úr“ The Lancaster/Hanover
„maskanum" og sameinast nýju verki: Hús móður sjálfs-
morðingja til að afneita gleymskunni eða „frysta" hana í
enn einu verki, en það er ein af skýringum Johns Hejduks
á ákveðinni hlið arkitektúrsins og þar með eigin
markmiðum.
Grundvöllurinn fyrir tilvist Húss móður sjálfsmorðingja
er að Hús sjálfsmorðingja er þegar til staðar: Verkin tvö
mynda, á sama hátt og sjálfsmorðinginn og móðir
sjálfsmorðingjans, táknrænt samband:
Sjálfsmorðinginn
Asökun
Oháð tíma
Lausn
Nálægð
Ódauðleiki
Hvítt
Móðir sjálfsmorðingjans
Fyrirgefning
Háð tíma
Byrði
Fjarlægð
Dauðleiki
Svart
Verkin eru ekki endilega heimili persónanna, en þau má
ekki síður túlka sem hugtökin „sjálfsmorð“ og „móðir
sjálfsmorðingja“ holdi klædd. Það vekur umhugsun að
Hús móður sjálfsmorðingja er opið og það er hægt að
ganga inn í það.
Verk Johns Hejduks, Hús sjálfsmorðingja og Hús móður
sjálfsmorðingja, urðu til á The Georgia Institute of Tech-
nology árið 1986. Undir stjórn arkitektsins James
Williamsons tók hópur arkitektanema að skapa verkin.
39