AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Page 46
HUGLEIÐINGAR UM GÆÐAKERFI OG
REGLUNARTÆKNI
ÁRNI GEIRSSON
VERKFRÆÐINGUR Á RANNSÓKNASTOFNUN
FISKIÐNAÐARINS
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er í hópi
margra fyrirtækja sem vinna þessa dagana
að undirbúningi fyrir faggildingu á ýmsum
þáttum starfseminnar. Við sem störfum hjá
stofnuninni höfum því undanfarið tekið þátt í umfangs-
mikilli vinnu við gæðahandbækur og fleira sem nauðsynlegt
er til undirbúnings. Hverri deild hefur m.a. verið falið að
setja sjálfri sér gæðastefnu og móta kerfi sem leiðréttir
frávik frá stefnunni. A tæknideild starfa aðallega verk-
fræðingar og þegar rætt var á deildinni hvernig að skyldi
farið komu fljótlega upp vangaveltur um verkfræðilegar
hliðar verkefnisins. Niðurstaðan varð sú að gæðakerfið
væri eins konar reglunarkerfi, þ.e. því væri ætlað að halda
föstum gefnum eiginleikum sem eru annars dýnamískir
eða breytilegir (samanber t.d. termóstat). Því var ákveðið
að kanna nánar hvað læra mætti af samsvörun við
hefðbundin reglunarkerfi og niðurstaða þeirra vangaveltna
er kynnt hér í von um að einhver sem er í sömu sporum og
við sjái vandamálið frá nýju sjónarhomi.
I. ÁSTANDSSTÆRÐIR OG MÆLINGAR
Fyrsta skref við greiningu dýnamískra kerfa er að ákveða
hverjar ástandsstærðir kerfisins eru. Astandsstærðir lýsa
á einhlítan hátt ástandi hins dýnamíska kerfis þannig að
engra frekari upplýsinga er þörf. Til þess að kanna ástand
kerfisins, í þessu tilfelli gæðakerfisins, eru einhverjir
eiginleikar þess mældir og þess gætt að mælingamar feli
í sér upplýsingar um ástand kerfisins. Eðlilegast er að
gæðastefnangefitilkynnahverjarástandsstærðinareruog
hvaða gildi þær skuli hafa. Vandinn sem þá kemur upp er
að meta til talna huglægar stærðir til þess að þær megi
mæla og ákveða þau viðbrögð sem færa ástandsstærðirnar
í rétt horf ef út af hefur brugðið. Hér má fara þrjár leiðir:
1. Velja aðeins þau gæðaeinkenni sem auðvelt er að
meta til talna en fórna hinum. Kosturinn er sá að unnt er
að ganga lengra í stærðfræðilegri greiningu á kerfinu og
hanna það til þeirrar hlítar sem tíðkast í vélrænum kerfum
en gallinn er sá að ekki er verið að regla réttu eiginleikana.
2. Fóma mælanleikanum en taka öll einkenni með
sem máli skipta. Þannig er örugglega fjallað um réttu
eiginleikana en þær verkfræðikúnstir sem þróaðar hafa
verið fyrir efnisheiminn koma að litlu gagni. Hætt er við
að gæðakerfið verði sveigjanlegt og ekki afgerandi þegar
á þarf að halda.
3. Hugsanlega er unnt að fara millileið sem felst í því
að mæla alla eiginleika sem máli skipta en færa niður-
stöðuna ekki til talna heldur lýsa henni á kerfisbundinn
hátt með þeim orðum sem almennt eru notuð og þá gengið
eins langt og hægt er í að skilgreina merkingu orðanna.
Þetta fyrirkomulag dregur dám af þeirri aðferðafræði sem
notuð er allvíða nú orðið við hönnun stýrikerfa og nefnist
„Fuzzy Logic“. Þessi leið verður reynd hér á eftir.
II. GÆÐASTEFNA
Eftirtalin atriði eru talin skipta máli fyrir gæði þeirrar
vinnu sem Tæknideild innir af hendi:
1. Öflun þekkingar. Tryggja þarf að fagþekking
starfsmanna falli að þeim verkefnum sem þeim er ætlað að
sinna og að þeir verji tíma sínum í hæfilegum mæli til
viðhalds þekkingar sinnar.
2. Miðlun þekkingar. Leitast er við að setja upp-
lýsingar fram á skýran og aðgengilegan hátt, með áherslu
á gott málfar og útlit.
3. Stjórn verkefna. Mestu skiptir að verkkaupi telji
sig hafa fengið fagmannlega þjónustu innan tilsettra
tímamarka og fyrir umsamda fjárhæð.
4. Fyrirspurnir. Viðskiptavinurinn vill fá kurteisleg
og áreiðanleg svör sem fyrst.
III. GÆÐASTÝRING
Nú er ljóst hverju stýra skal og þá rétt að glöggva sig á því
hvemig fara skal að. Enn erreglunartækni höfð til hliðsjónar
og hugmyndir þaðan fengnar að láni.
Myndin efst á næstu síðu sýnir hver leikfléttan er. Sett eru
fram óskgildi ástandsstærðanna um hæfni deildarinnar til
að þjóna viðskiptavininum. Þær upplýsingar koma inn í
kerfið lengst til vinstri á myndinni. Þessi óskgildi eru
borin saman við mælda hæfni til að uppfylla óskir
viðskiptavinarins. í hefðbundnum reglunarkerfum eru
mæligildin dregin fráóskgildunum. Ef munurkemurfram
á óskgildum og mæligildum er þörf á leiðréttingu.
Upplýsingar um þennan mun eru því notaðar til þess að
breyta umhverfi deildarinnar og vinnubrögðum starfs-
manna til þess að gæðahæfni deildarinnar færist nær
óskgildum. Hér kemur ýmislegt til skjalanna sem huga
þarf að nánar.
44