AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Side 64

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Side 64
En ekki má gleyma tilhneigingu arkitekta til að koma sér í umfjöllunarnefndir um byggingarmál, þ.e. byggingar- nefnd og skipulagsnefnd, því ýmsir húsbyggjendur töldu að vænlegra væri að eiga samskipti við arkitekta í þeirri stöðu. Þessi árátta arkitekta er enn í fullum gangi, en leiðin í nefndir liggur í gegnum flokkana. Þetta kerfi náði þeirri fullkomnun einu sinni að af tveim eigendum einnar stofu sat annar í skipulagsnefnd og hinn í byggingarnefnd. En segja mátti að þá þætti ýmsum nóg um útsjónarsemina." Var arkitektafélag starfandi á þessum tíma? „Húsameistarafélag Islands var starfandi, nafni þess var síðar breytt í Arkitektafélag Islands. Það er fróðlegt að skoða nafnbreytinguna, því hún segir manni svolítið um aðlögun erlendrar þekkingar okkar að íslenskum stað- háttum. Eg og fleiri ungir menn sóttum nafnbreytinguna fast, svo komið yrði í veg fyrir að menn væru að rugla saman húsameisturum og húsasmíðameisturum, eins og nokkuð barááþeim tíma. Sigurðurheitinn Guðmundsson benti okkur á að orðið „arkitekt“ gæti ekki verið til sem karlkynsorð í íslensku máli. Orðið yrði annaðhvort að vera arkitektur eða arkitekti, og bætti við að sennilega væri betra að hafa það arkitekti því það beygðist eins og asni. Sigurður gat verið ansi napur. Frændur vorir Færeyingar hafa lagað sig að reglum málsins og segja „arkitektur", Finnar hafa einnig lagað sig að eigin málkerfi með sitt arkkitehti. Viðhorfið hefur oft sagt til sín í annarri meðferð byggingarmála. En félagsandinn var góður og menn rnættu vel á fundi. Þeir voru ekki alltaf að spekulera í því hvað þeir gætu haft gott af félaginu.1' Ertu ósáttur við félagsandann í Arkitektafélaginu? „Ég tel að það hafi verið óþurftarspor sem stigið var þegar farið var að skipta félaginu upp í launþega og vinnu- veitendur, enda sýndi það sig að forvígismenn skiptingar- innar voru fljótir að gufa upp úr röðum verkalýðsins." Nú veit ég að þú fylgist injög vel með því sem er að gerast í faginu. Hvað finnst þér um stöðu arkitekta og íslenskan arkitektúr í dag? „Ég fylgist því miður ekki nógu vel með, það er að segja hver gerir hvað. Hitt má segja að mér er mjög vel ljós niðurlæging fagsins í dag og umkomuleysi arkitekta. Það er dapurlegt að sjá hvemig nokkrar verkfræðistofur hafa lagt undir sig vissa þætti verksviðs okkar. Á ég þar við þessa sjálfskipuðu byggingastjóra sem hafa mjög haft sig í frammi án sýnilegra hagsbóta fyrir byggingarnar eða pyngju byggjandans. Hins vegar má benda á vissa fylgni milli umsvifa þeirra og hærri byggingarkostnaðar. Þeir geta þá kannski skákað því fyrir sig að um hafi verið að ræða mjög flókin og tímafrek mannvirki. En í öllum þeim byggingaathöfnum sem hér eru í gangi verður maður lítið var við að arkitektar hafi eitthvað til Miðbœjarmarkaðurinn, útsýni frá Ingólfstorgi. Silfurteigur 4, Rvk. Hannes Kr. Davíðsson. 1946. málanna að leggja, samfélaginu og byggingarlistinni til hagsbóta.“ Finnst þér að arkitektar fái of litlu að ráða um mótun umhverfis? „Því er vandsvarað en sennilega er almenna reglan sú að þeir heimta mest ráðin sem óhæfastir eru og er stjórnendum rnikill vandi á höndum í þeim efnum. Hér skal ég segja þér frá hvernig umhverfi getur þróast í höndum arkitekta. Það var fyrir 1950 að Einar heitinn Sveinsson bæjararkitekt var með tillögu um garðgötu sunnan fráTjöm og norður í Hafnarstræti. Breiða parkgötu er skyldimarkast við Aðalstræti aðvestan. Landsímahúsið var af hendi Guðjóns Samúelssonar hugsað og teiknað við þá parkgötu, allt til Kirkjustrætis. Þetta „projekt“ Einars kallaði á niðurrif gömlu timburhúsanna við Aðalstræti og þar með Gildaskálans, sem þá hét. Lóðarhafi sneri sér til eins af nefndararkitektum bæjarins og kom á framfæri því viðhorfi að parkstræti hlyti eðlilega að fylgja „pavillion" 62

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.