AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Síða 69

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Síða 69
í vaxandi samkeppni er nauðsynlegt að koma ferskum fiski þangað sem besta verðið fœst fyrir hann eins fljótt og frekast er unnt. Sú samskiptatœkni, sem Fang hf. og samstarfsaðilar þess erlendis eru að þróa, gœti reynst okkur mjög mikilvœg. Tækjabúnaðurinn um borð samanstendur af loftneti á þaki fiskiskips á stærð við kaffikönnu, sendi/móttökutæki í stýrishúsi á stærð við stórt bílútvarp ásamt prentara. Hægt er að tengja tölvu við sendi/móttakarann um borð til gagnkvæmra samskipta. Samskiptakostnaður gegnum Inmarsat C er hlutfallslega ódýr og er greitt fyrir gagna- magn. Fjarskipti gegnum Inmarsat C geta verið milli skips og lands eða milli tveggja skipa. I báðum tilfellum fara samskiptin gegnum LES, þar sem skipið sendir gögn frá MES gegnum Inmarsat C hnött til LES. Ef móttakandi er í landi sendir LES gögnin gegnum telex eða gagnanet almenna símakerfisins til móttakanda. Sé móttakandinn annað skip magnar LES sendinguna og sendir aftur til MES viðtakanda í öðru skipi. Sendandi úr landi sendir gögn til LES gegnum almenna símakerfið sem magnar skeytið til viðkomandi skips eða skipa. Hægt er að senda hópskeyti til margra skipa samtímis. Hvað gagnaleynd varðar er kerfið mjög öruggt og má líkja við telex hvað það varðar. NÝTT ALÞJÓÐLEGT SLYSAVARNARKERFI, GMDDS Hinn 1. febrúar 1992 tók gildi nýtt alþjóðlegt slysavama- kerfi skammstafað GMDDS (Global Maritime Distress and Safety System). Það byggir mjög á sjálfvirkni og nýtingu Inmarsat gervihnatta fy rir hröð og örugg samskipti. Nýja kerfið tekur við af eldra kerfi frá 1974, skammstafað SOLAS (Intemational Convention for the Safety of Life at Sea) sem byggði aðallega á Mors- loftskeytum á 500 Mhz fyrir stærri skip og MF og VHF fyrir minni skip. Eldra kerfið byggði á því að önnur skip væru í grennd vegna skammdrægni senditækjanna og þar með að nauðsyn var á stöðugri loftskeytavakt um borð. Þar sem nýja kerfið byggir mjög á nýtingu Inmarsat má búast við að flest úthafsskip verði búin Inmarsat C tækjum af öryggis- ástæðum. Bara af þessum ástæðum má búast við hraðri útbreiðslu Inmarsat C í úthafsskip, sem þá getur einnig nýst til annarra nota. Fyrir liggur hjá íslenska sam- gönguráðuneytinu tillaga að nýrri reglugerð tilbúinni til samþykktar sem byggir á GMDDS. Þar er meðal annars gert ráð fyrir sjálfvirkri tilkynningaskyldu um 3000 íslenskra skipa sem krefst mörg hundruð milljóna króna fjárfestinga í nýjum samskiptabúnaði um borð, hvort sem byggðar verða strandstöðvar fyrir minni skip eða ekki. INMARSAT C TIL LANDHELGISGÆSLU Mikill áhugi er nú á því hjá fiskveiðiyfirvöldum margra ríkja að nýta Inmarsat C kerfið til að auka eftirlit með veiðiskipum ílandhelgi og utan hennar. Upphaf samskipta eigenda Fangs hf. og Inmarsat má rekja til áætlana Sjávar- útvegsdeildar EB DGXIV að taka upp eftirlit með allt að 35.000 veiðiskipum bandalagsins með nýtingu Inmarsat C kerfisins. Ikjölfarið leitaði Inmarsateftirsamstarfsaðila við gerð hugbúnaðar til að nota við landhelgisgæslu sem auk þess væri viðskiptahugbúnaður sem nýttist sjávarútvegi til samskipta gegnum Inmarsat C kerfið. Frá því Inmarsat C kerfið var tekið í almenna notkun um áramótin 1991-2 hafa tugir annarra nkja íhugað nýtingu Inmarsat C kerfisins til að fylgjast með veiðiskipum í sinni landhelgi og sínum veiðiskipum utan landhelgi. Þar má telja auk EB- landanna Grænland, Japan, USA, Taiwan, Ástralíu, Nýja- Sjáland, Papúa Nýju Guineu; Forum FA, Chile, Argentínu, Thai- land og Iran og eru sífellt ný lönd að bætast í hópinn. Samkvæmt áætlunum Inmarsat er gert ráð fyrir að um 75.000 fiskiskip verði búin Inmarsat C búnaði vegna fiskveiðieftirlits um aldamót. Á síðasta ári hóf Fang hf. hönnun á Marstar staðsetningar- og samskiptakerfi sem í fyrstu er ætlað til landhelgisgæslu, en einnig gæti nýst útgerðum til samskipta og eftirlits með sínum fiskiskipum. Kerfið er unnið samkvæmt sam- starfssamningi við höfuðstöðvar Inmarsat í London sem styrkir gerð kerfisins. í staðinn fær Inmarsat að nota kerfið í kynningum og tilraunaverkefnum víða um heim og var Marstar FTS kerfið reynt í fyrsta sinn í Chile haustið 1992 til tilraunaeftirlits með 10 veiðiskipumþar. Meðfylgjandi skjámynd úr kerfinu er frá því verkefni. Frá því í júní á þessu ári hafa áströlsk fiskveiðiyfirvöld haft kerfið í notkun og eru nú um 20 skip tengd við kerfið þar. Er áætlað að kerfið nái þar til 600 skipa fullbúið. Nokkur önnur ríki hafa óskað eftir að hefja tilraunir með kerfið eða kaupa það. Auk þess er Fang hf. nú í viðræðum við framleiðendur MES búnaðar og eigendur jarðstöðva um að fá að taka kerfið til sölumeðferðar með sínum búnaði og þjónustu. Stór útgerðarfélög í Asíu hafa einnig sýnt áhuga á að taka upp kerfið til samskipta og eftirlits með sínum veiðiskipum. 67
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.