AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Síða 75
Ekki er sama hvar sorphaugum er valinn staður.
Gœta skal að áður en ráðist er í framkvœmdir á
hálendinu.
ráðast í gerð svæðisskipulags fyrir miðhálendið. Skipulags-
°g byggingarlagafrumvarpið hafði verið sent út til
umsagnar og er nú búið að vinna úr athugasemdum við það
og semja ný drög sem að öllum líkindum verða lögð fyrir
þingið í vetur. Það er nægilegt að líta á fyrstu grein
frumvarpsins um markmið laganna til að átta sig á því að
hér er á ferðinni mál sem nánast engum er óviðkomandi.
Það hefur líka sýnt sig að þótt unnið hafi verið að því síðan
árið 1986 að endurskoða skipulags- og byggingarlög og
mörg frumvörp samin hefur ekki enn tekist að fá þau
samþykkt á Alþingi. Það er rétt að taka fram að um
frumvarp er að ræða en ekki lög en markmiðsákvæðin
hljóða svo:
■ að þróun byggðar og landnotkunar á landinu verði í
samræmi við vandaðar, faglegar áætlanir, sem hafi efna-
hagslegar og menningarlegar þarfir landsmanna, heilbrigði
þeirra og öryggi að leiðarljósi.
■ að stuðla að skynsamlegri og hagkvæmri nýtingu lands
og landgæða, tryggja varðveislu náttúrufars og menningar-
verðmæta og koma í veg fyrir mengun og umhverfisspjöll.
■ að tryggja réttaröryggi í meðferð skipulags- og bygg-
ingarmála þannig að lögmætur réttur einstaklinga verði
ekki fyrir borð borinn, þótt hagur heildarinnar sé hafður að
leiðarljósi.
■ að tryggja vandaðan, faglegan undirbúning mannvirkja-
gerðar og virkt eftirlit með því að kröfum um öryggi,
endingu, útlitsfegurð og hagkvæmni bygginga og annarra
mannvirkja sé fullnægt.
Þetta þarf allt að fara saman ef við ætl um að búa okkur það
umhverfi sem við getum skilað komandi kynslóðum
kinnroðalaust.
Þegar við gerð lands-, svæðis-, aðal- og deiliskipulags-
áætlanaþarf að metaumhverfisáhrif. Þannig þarf í greinar-
gerð með skipulagsáætlun að koma fram hvaða kostir voru
skoðaðir varðandi staðarval fyrir m.a. sorpurðun,
verksmiðjur, vegi og háspennulínur, samanburður á ólíkum
kostum með tilliti til umhverfisáhrifa og rök fyrir því hvers
vegna sú tillaga sem auglýst er til staðfestingar var valin
fremur öðrum. Mat á umhverfisáhrifum fer þannig fram á
öllum stigum skipulagsgerðar og gerir það að verkum að
þegar nálgast fullnaðarhönnun framkvæmdar er í raun
búið að svara fjölda þeirra spurninga sem vakna,
hagsmunaaðilar og allur almenningur veit við hverju mátti
búast og undirbúningur endanlegrar ákvörðunar verður
markvissari og óþarft verður að ráðast í veigamiklar
grunnrannsóknir sem engu máli skipta.
Þótt lögin um mat á umhverfisáhrifum hafi þegar tekið
gildi koma þau ekki að fullu til framkvæmda fyrr en 1. maí
1994 þar sem í þeim er bráðabirgðaákvæði sem segir að
framkvæmdir samkvæmt leyfum útgefnum fyrir 1. maí
1994 séu ekki háðar mati samkvæmt lögunum.
Þær framkvæmdir sem samkvæmt lögunum verða háðar
mati á umhverfisáhrifum eftir 1. maí 1994 eru:
1. Vatnsorkuvirkjanir með uppsett afl 10 MW eða
meira eða vatnsmiðlanir þar sem meira en 3 km2 lands fara
undir vatn vegna stíflumannvirkja og/eða breytinga á
árfarvegi.
2. Jarðvarmavirkjanir með varmaafl 25 MW eða meira
að hráorku eða 10 MW uppsett afl eða meira og önnur
varmaorkuver með 10 MW uppsett afl eða meira.
3. Lagningháspennulínameð33KV spennueðahærri.
4. Efnistökustaðir (malarnám) á landi 50.000 m2 eða
stærri að flatarmáli eða þar sem fyrirhuguð efnistaka er
meiri en 150.000 m3.
5. Þjónustumiðstöðvar fyrir ferðamenn utan byggða.
6. Förgunarstöðvar fyrir eitraðan og hættulegan úrgang
og almennar sorpey ðingarstöðvar þar sem skipuleg förgun
eða urðun á sorpi og úrgangi fer fram.
7. V erksmiðj ur þar sem fram fer frum- eða endurbræðsla
á steypujárni, stáli og áli.
8. Efnaverksmiðjur.
9. Lagning nýrra vega, járnbrauta og flugvalla.
10. Hafnir þar sem skip stærri en 1.350 tonn geta siglt.
Til viðbótar þessum lista er sérstakur viðauki með lögunum
samkvæmt tilskipun EB. Framkvæmdir sem þar eru taldar
upp eru m.a. háðar mati á umhverfisáhrifum ef niðurstöður
gátlista benda eindregið til þess að áhrif verði neikvæð og
óafturkallanleg. Leiki vafi á því hvort þörf sé á mati á
73