Skessuhorn - 14.12.2022, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 20224
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 4.110 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.550. Rafræn áskrift kostar 3.220 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.968 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir gb@skessuhorn.is
Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is
Guðrún Jónsdóttir gj@skessuhorn.is
Steinunn Þorvaldsdóttir sth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Siggi Sigbjörnsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Jólagjafir
með viti
Þegar þetta er skrifað eru líklega flestir landsmenn vel á veg komnir ef ekki
búnir að kaupa allar jólagjafir fyrir sitt fólk. Það er samt ekki úr vegi að
velta steinum nú þegar neysla á heimsvísu hefur aldrei verið meiri. Hafa
ekki allir heyrt um bláa fótanuddtækið? Hafa ekki allir heyrt um Ruslaeyj-
una í Kyrrahafinu? Ekki? Það er eyja í Kyrrahafinu sem er búin til úr engu
nema rusli. Það er samansafn af rusli sem flýtur um sjóinn sem ein heild og
er að flatarmáli þrisvar sinnum stærri en Frakkland. Getur þú gefið jólagjöf
í ár sem endar ekki í ruslinu með það sama? Getur þú ef til vill gefið jóla-
gjöf sem er búin til á sjálfbæran hátt eða er umbúðalaus?
Gefðu eitthvað sem viðkomandi getur borðað; handgerðan brjóstsykur,
sælgæti úr íslensku hráefni, handverks salt, kaldpressaða ólífuolíu, eða sultu
og kex frá Stellu í næsta húsi.
Gefðu eitthvað sem viðkomandi getur notað. Kerti, reykelsi, sápu.
Gefðu eitthvað sem viðkomandi vill eiga og getur átt um ókomna tíð.
Fallegt handverk, vandaða flík eða jafnvel steikarfat!
Og hvað á að gefa þeim sem á allt?
Á heimasíðu UN Women er hægt að kaupa táknrænar jólagjafir, þar sem
allur ágóði rennur til verkefna UN Women sem miða að því að uppræta
kynbundið ofbeldi. Bæði er hægt að kaupa húfur, vettlinga og boli merkta
samtökunum en líka ýmiss konar gjafakort til að styðja við konur víðs vegar
í heiminum. Þar er m.a. hægt að styrkja stúlkur í Malaví til náms, veita
konum í Palestínu aðgang að sálrænni aðstoð, tryggja konum og stúlkum
í Líbanon aðgang að hreinlætisvörum á borð við dömubindi, nærbuxur og
sápu og koma nauðsynjum til óléttra kvenna og nýbakaðra mæðra. Kaupir
þú slíkt gjafakort rennur þinn peningur beint til málefnisins og þú færð
sent gjafabréf í tölvupósti sem þú getur prentað út og látið fylgja með í jóla-
korti eða gjöf til þíns ástvinar.
Á vefverslun Unicef, sannargjafir.is, er slíkt hið sama í boði. Þar getur
þú m.a. keypt bóluefni, fótbolta, jarðhnetumauk, hlý teppi og hlýjan vetr-
arfatnað fyrir bágstödd börn en í mörgum flóttamannabúðum getur orðið
mjög kalt á veturna, sérstaklega fyrir þau börn sem búa í tjöldum. Þá skiptir
hlýr vetrarfatnaður sköpum. Gjöfunum sem þú kaupir er dreift til barna og
fjölskyldna þeirra í samfélögum þar sem þörfin er mest. Þú færð svo gjafa-
bréf þess efnis að þú hafi styrkt málefnið og slæðir því með í pakkann til
vinar, sonar, dóttur, foreldra og þar fram eftir götunum. Slík gjafakort er
einnig finna á vefsíðu Barnaheilla.
Viljir þú heldur gefa ástvini áþreifanlega gjöf get ég til að mynda bent þér
á vefverslun Krabbameinsfélags Íslands. Kaffi, eldhúsáhöld, eldvarnartæki,
endurskinsmerki, kerti, veggspjöld, vandaðar gjafavörur og bækur. Allur
ágóði af sölu í vefverslun rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins.
Verum meðvituð um hvað við kaupum, við hverja við verslum og hvert
peningarnir fara, þeir eru verðmæti.
Hjálpumst að við að minnka það rusl sem til fellur á hverju ári og verum
ábyrgir neytendur allt árið um kring, líka um jólin.
Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir
Lögreglunni á Vesturlandi barst
útkall vegna bílslyss klukkan 15:43
síðastliðinn fimmtudag. Þá höfðu
lent saman fólksbíll og vörubif-
reið á Akrafjallsvegi neðan við
bæinn Vestri-Reyni. Fjölmennt lið
björgunarfólks var sent á vettvang
en talið var í fyrstu að um alvar-
legt slys væri að ræða. Betur fór þó
en á horfðist. Að sögn Ásmundar
Kristins Ásmundssonar, aðstoðar-
yfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni
á Vesturlandi, rákust saman fólks-
bíll og vörubíll úr gagnstæðri átt.
Einungis ökumenn voru í bílunum
og hlutu þeir minniháttar meiðsli,
gengu sjálfir út úr sínum bílum og
inn í sjúkrabifreið. Þeir voru fluttir
á bráðamóttökuna á Heilbrigðis-
stofnun Vesturlands á Akranesi til
aðhlynningar.
Slökkvilið Akraness hreins-
aði vettvanginn en fólksbíllinn var
með öllu óökufær eftir áreksturinn.
Rannsóknadeild Lögreglunnar á
Vesturlandi mætti á staðinn. Vett-
vangurinn var myndaður og er
málið til rannsóknar.
gbþ
Heilbrigðisráðuneytið hefur birt
til umsagnar drög að frumvarpi til
breytinga á lögum um heilbrigðis-
starfsmenn. Með frumvarpinu er
lögð til undanþága frá almennri reglu
um 70 ára hámarksaldur ríkisstarfs-
manna þannig að heilbrigðisstarfs-
fólki sem vinnur við klínísk störf
verði kleift að starfa til 75 ára aldurs á
grundvelli ráðningarsamnings.
Horft er til þess að með sveigjan-
legum starfslokum og bættum
réttindum þeim tengdum kjósi fleiri
að starfa við heilbrigðisþjónustu
eftir sjötugt en að óbreyttu. Frum-
varpið er til þess fallið að stuðla
að bættri mönnun heilbrigðis-
þjónustunnar þannig að kraftar
þeirra sem vilja og hafa heilsu til
fái sín notið. Bætt mönnun getur
aukið gæði heilbrigðisþjónustunnar
og þar með öryggi sjúklinga.
Samkvæmt gildandi lögum er
heilbrigðisstofnunum ríkisins skylt
að segja starfsfólki sínu upp störfum
við 70 ára aldur. Kjósi viðkomandi
að starfa áfram er það einungis
mögulegt á grundvelli tímavinnu-
samnings eða verktaka samnings.
Með breytingunni verður unnt
að bjóða sanngjörn kjör með
ráðningar samningi og réttarstaða
viðkomandi verður betri.
Frestur til að skila umsögnum
um frumvarpsdrögin er til 6. jan-
úar 2023
mm
Íbúar á Vesturlandi voru 17.497
þann 1. desember síðastliðinn, en
það er sú dagsetning sem oft er
miðað við í hagtölum. Fjölgun á
árinu jafngildir 0,6% í landshlut-
anum. Íbúum hefur á liðnu ári
fjölgað hlutfallslega mest á Vestur-
landi í Hvalfjarðarsveit, Eyja- og
Miklaholtshreppi og í Borgar-
byggð. Á Akranesi má vænta þess að
íbúatalan sé við það að detta í átta
þúsund, en íbúar voru 7.987 um
mánaðamótin síðustu. Íbúum hefur
fjölgað í öllum sveitarfélögum á
árinu utan Skorradalshrepps og
Dalabyggðar þar sem lítilsháttar
fækkun varð á sl. tólf mánuðum.
Íbúafjöldinn á Vesturlandi
1. desember 2022
Akraneskaupstaður, 7.987
Skorradalshreppur, 58
Hvalfjarðarsveit, 754
Borgarbyggð, 4.072
Grundarfjarðarbær, 864
Eyja- og Miklaholtshreppur, 113
Snæfellsbær, 1.684
Stykkishólmsbær og Helgafells-
sveit, 1.308
Dalabyggð, 657.
mm
Báðir ökumenn gengu
út úr sínum bílum
Frá vettvangi slyssins í rökkurskiptunum sl. fimmtudag. Ljósm. mm
Frumvarp um hækkun
starfslokaaldurs heilbrigðisstarfsfólks
Íbúum hefur fjölgað á árinu
Íbúar á Akranesi eru nú að verða átta þúsund.