Skessuhorn - 14.12.2022, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 202212
Samkvæmt þeim lögum sem taka
gildi um áramót er varða flokkun
sorps við heimili á Íslandi þarf að
flokka sorp í fjóra flokka og skulu
vera ílát fyrir hvern flokk við öll
heimili.
Bæjarstjórn Akraness hefur sent
frá sér tilkynningu um ákvörðun
sína í þeim efnum. Þar segir að
það fyrirkomulag sem hafi fengið
mestan meðbyr samanstandi af
fjórum tunnum, þ.e. einni tunnu
fyrir hvern flokk. Í dag eru við
hvert heimili á Akranesi tvær 240
lítra tunnur og segir í tilkynn-
ingunni að þær verði áfram og skuli
flokka í þær annars vegar plast og
hins vegar pappa/pappír. Við flór-
una munu svo bætast tvær 140 lítra
tunnur, önnur fyrir lífrænan úrgang
og hin fyrir almennt heimilissorp.
Þá segir að stefnt sé að því að tæma
140 lítra tunnurnar á tveggja vikna
fresti en hinar stærri verði tæmdar á
fjögurra og sex vikna fresti.
Við fjölbýlishús verður notast
við 240 lítra tunnur fyrir lífrænan
úrgang og sitthvert 660 lítra karið
undir hina flokkana þrjá. Þessar
breytingar taka að öllum líkindum
gildi í ágúst 2023, segir jafnframt í
tilkynningu.
Þá er stefnt að því að koma upp
a.m.k. þremur grenndarstöðvum í
bænum sem verða opnar almenn-
ingi og taka á móti pappa/pappír,
plasti, málmum, gleri og textíl.
gbþ
Seinni part síðasta miðvikudags
var vígsla á nýjum köldum potti í
Jaðarsbakkalaug á Akranesi. Sævar
Freyr Þráinsson bæjarstjóri og
Hrönn Ríkharðsdóttir formaður
ÍA ávörpuðu viðstadda og síðan
klipptu þau á borðann ásamt þeim
Líf Lárusdóttur, Jónínu Mar-
gréti Sigmundsdóttur og Ragnari
Baldvini Sæmundssyni úr bæjar-
stjórn Akraneskaupstaðar.
Nýi potturinn kemur í staðinn
fyrir fiskikar sem hefur verið notað
sem kaldur pottur í mörg ár en hita-
stigið í nýja pottinum verður á bil-
inu fjórar til sex gráður. Guðmunda
Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ÍA,
Jón Arnar Sverrisson, garðyrkju-
stjóri Akraness og Bryndís Ólöf
Guðjónsdóttir, frá Sjóbaðsfélagi
Akraness, fengu þann heiður að
fara fyrst ofan í pottinn og fóru létt
með.
Undirbúningur verksins hófst
árið 2021 og framkvæmdir hófust
vorið 2022. Heildarkostnaður er
um 18 milljónir. Hönnuðir eru
Basalt arkitektar sem hönnuðu
einnig heitu pottana og vaðlaugina
í Jaðarsbakkalaug, Liska sá um
lýsingarhönnun og Mannvit um
verkfræðihönnun. Hörður Kári
Jóhannesson sá um verkefnastjórn
og eftirlit ásamt starfsmönnum
Akraneskaupstaðar.
Trésmiðja Þráins E. Gíslasonar
sá um jarðvinnu og uppsteypu,
sami verktaki og var með heitu
pottana í lauginni. Um er að ræða
flókna mótavinnu og voru mótin
smíðuð á verkstæðinu og flutt á
staðinn. Þá þurfti á meðan á fram-
kvæmdum stóð að byggja skýli yfir
pottinn til að hafa rétt hitastig við
flísalögnina. Pípó sá um lagnir og
Vogir og lagnir sáu um raflagnir,
Viðar Svavars son múrarameistari
sá um flísalögn og Steðji smíðaði
handriðið á hinum nýja potti.
vaks
Mánudaginn 5. desember var
haldinn íbúafundur á Amts-
bókasafninu í Stykkishólmi.
Þar voru meðal annars kynntar
umfangsmiklar lagabreytingar sem
Alþingi samþykkti í júní 2021 um
flokkun og endurvinnslu sorps,
hollustuhætti, mengunarvarnir,
úrvinnslugjald og fleira. Þessar
breytingar koma flestar til fram-
kvæmda 1. janúar 2023 og er ætlað
að skapa skilyrði fyrir myndun
hringrásarhagkerfis svo stuðla
megi að sjálfbærri auðlindanotkun
og draga úr myndun úrgangs.
Forsvarsmenn Íslenska gáma-
félagsins mættu til íbúafundarins
og kynntu þær breytingar sem fyrir
höndum eru. Breytingarnar fela
m.a. í sér að heimilum verður skylt
að flokka í fjóra flokka en ekki þrjá
eins og gert hefur verið í Hólminum
undanfarin ár. Flokkarnir fjórir sem
verða við heimilin eru pappi og
pappír, plast, almennur úrgangur
og svo lífrænn úrgangur. Flokk-
unum fylgja samræmdar merkingar
FENÚR sem munu gilda fyrir alla
flokkun á Íslandi, allar tunnur fá því
nýjar límmiðamerkingar. Græna
tunnan hefur hingað til leikið
marga grátt þar sem hún vill fyllast
fljótt þar sem íbúar standa sig vel í
flokkun. Fjórða tunnan er því fýsi-
legur kostur þar sem íbúar geta þá
flokkað í tvær tunnur það sem áður
fór í eina græna.
Fjórða tunnan bætist við
Nýrri tunnu verður dreift í þessari
viku en hún er ætluð undir plast.
Hlutverk grænu tunnunnar breyt-
ist því og í hana fer aðeins pappír
og pappi. Íbúar geta einnig átt von
á dreifibréfi þar sem skýrt verður
frá þessari breytingu og farið yfir
flokkunarleiðbeiningar. Íbúum á
litlum heimilum sem ekki hugn-
ast að hafa fjórar tunnur geta óskað
eftir tvískiptri tunnu fyrir plast og
pappa með því að hafa samband við
Ráðhús sveitarfélagsins.Tvískipta
tunnan er þó dýrari kostur og með
henni gefst minna pláss til flokk-
unar.
Á heimasíðu sveitarfélagsins
segir að með því að flokka pappa og
plast í sitt hvora tunnuna næst betri
flokkun en með tvískiptri tunnu þar
sem hætt er við því að flokkarnir
blandist saman. Umhverfisvænni
og hagkvæmasti kosturinn er því
að taka inn fjórðu tunnuna en með
henni hafa íbúar einnig meira pláss
til flokkunar. Innleiðing fjórðu
tunnunnar er besta leiðin til að
halda úrgangs- og efnisstraumum
hreinum og lágmarka smit á milli
flokka og skapa þannig hreinni og
verðmætari efnisstrauma til endur-
vinnslu. Fyrirkomulagið kemur
jafnframt til með að skapa sveigjan-
leika fyrir íbúa og hagkvæmni og
með lægri álögum til skemmri og
lengri tíma. Á íbúafundinum sköp-
uðust jákvæðar umræður og var
ekki annað að heyra en íbúar tækju
breytingum á flokkun og endur-
vinnslu vel.
Nýjar grenndarstöðvar verða
einnig settar upp í sveitarfélaginu.
Þar geta íbúar losað sig við málma,
gler og textíl. Grenndarstöðvarnar
eru í smíðum og verða settar upp á
næsta ári, en á meðan fara málmar
og gler í Snoppu og textíl í gám
Rauða krossins hjá B. Sturluson.
Á fundinum var greint frá því að
til stæði að innleiða breytingar og
hefja notkun á fjórðu tunnunni 1.
janúar 2023. Að loknum umræðum
við íbúa var hins vegar ákveðið að
flýta því til 21. desember nk. en þá
verður græna tunnan tæmd næst.
Fyrir þann tíma verða starfsmenn
Íslenska gámafélagsins búnir að
bæta fjórðu tunnunni við hjá íbúum.
Eftir að græna tunnan verður tæmd
21. desember geta íbúar þá strax
hafist handa við að flokka í fjórar
tunnur. Þ.e. í stað þess að setja plast
og pappa saman í tunnu fer plast í
aðra og pappi í hina. Íbúar ættu því
að hafa nóg pláss til að flokka plast
og pappa eftir jólin.
Stykkishólmsbær og Helgafells-
sveit ætla því að þjófstarta inn-
leiðingu hringrásarhagkerfis og
byrja 21. desember nk. en ekki 1.
janúar 2023 eins lög gera ráð fyrir.
mm
Þjófstarta innleiðingu
hringrásarhagkerfis
Jón Þórir Frantsson forstjóri Íslenska gámafélagsins, Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
forseti sveitarstjórnar og Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson bæjarstjóri.
Ljósm. jse
Fjórar sorptunnur
verða við hvert
heimili á Akranesi
Nýr kaldur pottur tekinn í notkun á Jaðarsbökkum
Sævar Freyr, Hrönn, Líf, Margrét og Ragnar klippa kankvís á borðann. Ljósm. vaks
Nýi kaldi potturinn á Jaðarsbökkum.