Skessuhorn - 14.12.2022, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2022 27
Kynningarfundur um nýjan kjarasamning
sem undirritaður var þann 3.desember
sl. verður haldinn í
Gamla Kaupfélaginu, fimmtudaginn
15. desember kl 17:00
Við hvetjum alla þá félagsmenn sem
starfa eftir almenna samningnum á milli
SGS og SA að mæta og kynna sér samninginn.
Kosning um nýjan samning verður rafræn frá 9.-19. desember á
www.vlfa.is
Allar upplýsingar um nýjan samning er hægt að nálgast á
heimasíðunni okkar: www.vlfa.is.
Undanfarnar vikur hafa verið í
gangi endurbætur á húsnæði Olís
við brúarsporðinn í Borgarnesi.
Veitingasalurinn hefur fengið nýtt
útlit og stækkaður. Fleiri breytingar
hafa einnig verið gerðar. Veitinga-
staðurinn Lemon míní hóf starf-
semi á Olísstöðinni síðastliðið
sumar. Þá hefur nýr verslunarstjóri
tekið til starfa; Borgnesingurinn
Edda Fanney Guðjónsdóttir tók
við starfinu í byrjun október en hún
er nýflutt aftur á heimaslóðir.
„Ég flutti aftur heim í Borgarnes
síðastliðið sumar en ég er búin að
starfa sem verslunarstjóri í Reykja-
vík undanfarin ár og kláraði m.a.
viðskiptafræði á Bifröst árið 2016.
Við höfum staðið í endurbótum á
húsnæði okkar hér á Olís en mat-
salurinn hefur verið stækkaður og
fengið nýtt og skemmtilegt útlit
en við höfum einnig frískað vel
upp á heildarútlit þjónustustöðvar-
innar. Ný viðbót er síðan Lemon
míní en þar bjóðum við upp á
hollari valkosti fyrir viðskiptavini
okkar. Lemon míní er aðeins minni
útgáfa af Lemon en þar eru í boði
fjórar vinsælustu tegundirnar af
samlokum og djúsum frá Lemon. Á
móti eru svo safaríkir hamborgarar
frá Grill 66 eins og margir þekkja,
en við erum t.d. með ljúffengan
hreindýraborgara í boði í desember
sem er jólarétturinn í ár, hér fá allir
eitthvað við sitt hæfi,“ segir Edda
Fanney og býður gamla og nýja
viðskiptavini hjartanlega velkomna.
sþ
Níu tonn af hlýju frá Íslandi voru
um borð í kanadískri herflutninga-
vél sem flaug frá Keflavíkurflugvelli
áleiðis til Úkraínu á mánudaginn.
Um að ræða vetrarútbúnað fyrir
varnarsveitir Úkraínu og almenn-
ing sem er annars vegar afrakstur
sjálfboðavinnu þúsunda Íslendinga
og hins vegar kaup utanríkisráðu-
neytisins á margvíslegum vetrar-
búnaði.
Utanríkisráðuneytið auglýsti
fyrr í haust eftir vetrarútbúnaði
fyrir varnarsveitir Úkraínu. Gengið
hefur verið frá kaupum á skjólfatn-
aði og skóm frá Fjallakofanum,
66°N og Dynjanda fyrir tæpar
50 milljónir króna en raunvirði
varningsins er um 140 milljónir.
Þessi búnaður, auk sjúkragagna
sem íslenskur aðili hefur gefið,
var fluttur með kanadískri. Í farm-
inum voru auk þess rúmlega 3.500
pör af lopasokkum sem íslenskur
almenningur hefur prjónað fyrir
Úkraínu í tengslum við verkefnið
Sendum hlýju og aðrar ullarflíkur
sem íslenskt og úkraínskt prjóna-
fólk hefur ýmist prjónað eða gefið
á svonefndum hannyrðahittingum.
„Þungur hrammur vetrarins fær-
ist nú hægt og bítandi yfir Úkra-
ínu og eins og við höfum séð beita
rússnesku innrásaröflin honum sem
vopni í yfirstandandi átökum. Sem
herlaus þjóð getur Ísland eðli máls
samkvæmt ekki lagt úkraínskum
varnarsveitum til hergögn en við
getum hins vegar sent þeim hlýjan
skjólfatnað, sem er ekki síður
nauðsynlegur á ísköldum vígvell-
inum en hefðbundin vopn,“ sagði
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir utanríkisráðherra af þessu
tilefni.
Starfsfólk Landhelgisgæslunnar
pakkaði varningnum um helgina og
setti á bretti sem var síðan staflað um
borð í kanadísku herflutninga vélina
á öryggissvæðinu á Keflavíkurflug-
velli. Auk utanríkisráðherra fylgd-
ust fulltrúar Sendum hlýju og
hannyrðahittingsins og Jeannette
Menzies, sendiherra Kanada á
Íslandi með því sem fram fór.
„Það er rík ástæða til að þakka
öllum þeim sem eiga þátt í að við
sendum alla þessa hlýju til Úkraínu
í dag. Þar vil ég nefna fyrirtækin
sem við höfum átt í góðu sam-
starfi við, Landhelgisgæsluna sem
hefur annast umsýslu og kanadíska
flugherinn sem flytur varninginn á
áfangastað. Og síðast en ekki síst á
hannyrða- og prjónafólk á Íslandi
sérstakar þakkir skildar fyrir að
sýna sinn hlýhug í verki með svo
áþreifanlegum hætti,“ segir Þór-
dís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
utanríkisráðherra.
mm
Níu tonn af hlýjum
vetrarfatnaði fyrir varnarsveitir
Frá öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli síðastliðinn mánudag.
Endurbætur gerðar
á Olís í Borgarnesi
Edda Fanney Guðjónsdóttir, nýr verslunarstjóri á Olís Borgarnesi.
Veitingasalur Olís í Borgarnesi hefur fengið nýtt útlit.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Jólablað
Skessuhorns 2022
Jólablað Skessuhorns kemur út þriðjudaginn 20. desember.
Það verður jafnframt síðasta blað ársins. Sem fyrr verður það
stútfullt af spennandi efni
Auglýsingapantanir þurfa að berast í allra síðasta lagi fyrir
kl. 14 föstudaginn 16. desember, í síma 433-5500 eða á
netfangið auglysingar@skessuhorn.is
www.skessuhorn.is