Skessuhorn - 14.12.2022, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2022 31
Hamar og ÍA mættust í 1. deild
karla í körfuknattleik sl. fimmtu-
dagskvöld og fór leikurinn fram
í Hveragerði. ÍA byrjaði betur í
leiknum og komst í 2:8 en þegar
leið á fyrsta leikhluta voru heima-
menn komnir með tíu stiga for-
ystu, 26:16, og við lok hans var
staðan svipuð, 32:24 fyrir Hamar.
Um miðjan annan leikhluta var for-
skot Hamars komið í 14 stig, staðan
50:36 og útlitið ekki gott fyrir
gestina. En ÍA náði síðan í fram-
haldinu mjög góðum kafla þar sem
þeir skoruðu 17 stig gegn aðeins sex
stigum Hamarsmanna og munur-
inn aðeins þrjú stig þegar flautað
var til hálfleiks, 56:53 Hamar í vil.
ÍA byrjaði af krafti í þriðja leik-
hluta og skoraði fyrstu níu stigin
en þegar rúmar fimm mínútur voru
liðnar var Hamar kominn með for-
ystuna á ný, 70:67. Þeir juku síðan
enn meira við forskotið fram að
lokum leikhlutans og voru komnir
í vænlega stöðu við flautið, 83:71. Í
fjórða og síðasta leikhluta gáfu þeir
gestunum engin grið, bættu við
forystuna jafnt og þétt og uppskáru
að lokum öruggan sigur, lokatölur
108:84 Hamarsmönnum í vil.
Stigahæstur hjá ÍA var Jalen
Dupree með 17 stig og þeir Marko
Jurica og Gabriel Adersteg voru
með 16 stig hvor. Hjá Hamar var
Jose Aldana með 26 stig, Elías
Bjarki Pálsson með 20 stig og
Ragnar Nathanaelsson var með 17
stig og 17 fráköst.
Næsti leikur ÍA er á móti Selfossi
næsta föstudagskvöld í íþróttahús-
inu við Vesturgötu og hefst klukkan
19.15. Síðan fer deildin í jólafrí og
hefst á nýju ári föstudaginn 6. jan-
úar.
vaks
Stjarnan og Skallagrímur mætt-
ust í 8-liða úrslitum VÍS bikars
karla í körfuknattleik sl. sunnudag
og var leikurinn í Umhyggjuhöll-
inni í Garðabæ. Fyrstu deildar lið
Skallagríms kom úrvalsdeildarliði
Stjörnunnar vel á óvart í fyrstu leik-
hluta því í stöðunni 9:10 eftir sex
mínútna leik skoraði Skallagrímur
15 stig gegn aðeins sjö stigum
heimamanna og staðan 16:25 Sköll-
unum í hag. Eftir fjórar mínútur
í öðrum leikhluta var staðan eins,
Skallagrímur með níu stiga forskot
og í góðum málum, 25:34. En innan
þriggja mínútna hafði Stjarnan
jafnað metin, 37:37. Skallagrímur
setti þá niður sex stig í röð áður en
Stjarnan gerði svo hið sama og enn
jafnt. Skallagrímur átti hins vegar
síðasta orðið fyrir hálfleik og leiddi
með fjórum stigum, hálfleikstölur
43:47 fyrir Skallagrími.
Skallagrímur gaf ekkert eftir í
þriðja leikhluta og náði tíu stiga
forystu þegar rúmar fimm mínútur
voru liðnar, 51:61. Stjarnan var ekki
á því að missa gestina lengra frá sér
og náði að jafna metin fyrir síð-
asta fjórðunginn, staðan 69:69 og
allt á suðupunkti. Í fjórða leikhluta
byrjaði Stjarnan betur og skoraði
fyrstu sjö stigin en Skallagrímur
svaraði strax með tveimur þriggja
stiga skotum. Eftir fimm mín-
útna leik var Stjarnan komin með
sex stiga forystu, 84:78, og leiddi
með tíu stigum á lokamínútu leiks-
ins. Í stöðunni 96:92 þegar um hálf
mínúta var eftir hitti Keith Jordan
Jr. leikmaður Skallagríms ekki úr
þriggja stiga skoti sínu og í kjöl-
farið var brotið á Adama Darbo
sem tryggði sigurinn á vítalínunni,
lokastaðan 98:92 fyrir Stjörnuna
og bikardraumur Skallagríms úr
sögunni á þessu tímabili.
Keith Jordan Jr. var stigahæstur
hjá Skallagrími með 30 stig og 12
fráköst, Milorad Sedlarevic var
með 21 stig og Björgvin Hafþór
Ríkharðsson með 16 stig og 11 frá-
köst. Hjá Stjörnunni var Robert
Turner með 29 stig, Julius Jucikas
með 26 stig og þeir Adama Darbo
og Júlíus Orri Ágústsson með 12
stig hvor.
vaks
Ármann og Snæfell áttust við í 1.
deild kvenna í körfuknattleik sl.
miðvikudag og fór viðureignin fram
í Kennaraháskólanum í Reykjavík.
Leikurinn fór rólega af stað og eftir
rúmar fjórar mínútur var staðan
5:9 fyrir Snæfelli. Þá skelltu Snæ-
fellskonur í lás fram að lokum fyrsta
leikhluta, skoruðu níu stig gegn
engu frá Ármanni og staðan 5:18.
Í öðrum leikhluta skoruðu heima-
konur fyrstu fimm stigin en Snæfell
svaraði þá með tíu stigum án svars
frá Ármanni og staðan 10:28 fyrir
Snæfell eftir tæplega þriggja mín-
útna leik. Fram að hálfleik breyttist
staðan ekki mikið og munurinn var
19 stig þegar klukkan lét vita af sér,
hálfleikstölur 23:42 Snæfelli í hag.
Í þriðja leikhluta skoraði Ármann
sín fyrstu stig ekki fyrr en eftir
tæpan níu mínútna leik á meðan
Snæfell skoraði hverja körfuna á
fætur annarri og gerði út um leik-
inn, staðan 29:63. Í fjórða leikhluta
var þetta einungis spurning hve
sigurinn yrði stór, Snæfell gat leyft
sér að hvíla lykilmenn og lokatölur
46:83 Snæfelli í vil.
Cheah Rael Whitsitt var
atkvæðamest hjá Snæfelli með 20
stig og 24 fráköst, Minea Takala var
með 19 stig og Preslava Koleva með
12 stig. Hjá Ármanni var Hildur Ýr
Káradóttir með 14 stig og 12 frá-
köst, Ingunn Erla Bjarnadóttir með
6 stig og Telma Lind Bjarkadóttir
með 5 stig.
Nú er deildin komin í jólafrí og
fyrsti leikur Snæfells eftir áramót
verður á móti liði Hamars/Þórs
laugardaginn 7. janúar í Hvera-
gerði og hefst klukkan 17.
vaks
Það var ljóst síðasta laugardag að
fyrstu deildar lið Snæfells er komið
í undanúrslit annað árið í röð í VÍS
bikar kvenna í körfuknattleik eftir
sigur á úrvalsdeildarliði Fjölnis í
8-liða úrslitunum. Það sást strax
í leiknum að Snæfellskonur báru
enga virðingu fyrir Fjölniskonum
þó þær væru einni deild ofar því
Snæfell skoruðu fyrstu tíu stigin í
leiknum áður en heimakonur náðu
að svara fyrir sig. Fjölnir náði síðan
að minnka muninn í þrjú stig eftir
rúman sex mínútna leik, 12:15, en
gestirnir gáfu bara aftur í og skor-
uðu næstu ellefu stig án nokkurs
svars frá Fjölni fram að lokum fyrsta
leikhluta, staðan 12:26 Snæfelli í
vil. Í öðrum leikhluta náði Fjölnir
aftur að saxa á forskot Snæfells og
munurinn aðeins eitt stig um rúman
miðjan leikhlutann, 34:35. En þá
skellti Snæfell enn á ný í lás í vörn-
inni, skoraði 14 stig gegn aðeins
fimm stigum frá Fjölni og leiddi
með tíu stigum í hálfleik, 39:49.
Fjölniskonur voru ekkert á því að
gefast upp en voru að elta nánast
allan þriðja leikhlutann og komust
ekki nálægt Snæfelli að neinu ráði
fyrr en undir lokin þegar þær náðu
að minnka muninn í fimm stig,
staðan 62:67 fyrir Snæfelli og allt
útlit fyrir æsispennandi baráttu síð-
asta fjórðung leiksins. En Snæfell
sá til þess innan tveggja mínútna í
fjórða leikhluta að sú varð alls ekki
raunin og kunnugleg yfir tíu stig í
röð litu dagsins ljós hjá Snæfelli í
þriðja sinn í leiknum, staðan 62:77.
Í þetta skiptið náði Fjölnir ekki að
koma til baka heldur jók Snæfell
við forskotið fram að leikslokum og
lokastaðan afar öruggur og glæsi-
legur sigur Snæfells, 77:92.
Cheah Rael Whitsitt var frábær
í liði Snæfells með 28 stig, 14 frá-
köst og 9 stoðsendingar, Preslava
Koleva var með 17 stig og 14 frá-
köst, Adda Sigríður Ásmunds-
dóttir var með 16 stig og 5 frá-
köst og fyrirliðinn Rebekka Rán
Karlsdóttir með 13 stig, 7 fráköst
og 6 stoðsendingar. Hjá Fjölni var
Taylor Jones með 31 stig, Borgnes-
ingurinn Sigrún Sjöfn Ámunda-
dóttir með 17 stig og 11 fráköst og
Heiður Karlsdóttir með 13 stig.
Undanúrslitin í VÍS bikar kvenna
verða leikin þriðjudaginn 10. janúar
á næsta ári. Þar verða toppliðin tvö
úr fyrstu deild, Snæfell og Stjarnan
og tvö lið úr efstu deild, Subway
deildinni, en það eru lið Keflavíkur
og Hauka sem eru einnig í tveimur
fyrstu sætunum þar. vaks
Snæfell er komið í undanúrslit VÍS bikarsins. Ljósm. sá
Snæfell komið í undanúrslit í VÍS bikar kvenna
Skallagrímur úr leik
í VÍS bikar karla
eftir naumt tap
gegn Stjörnunni
Skallagrímur er úr leik í VÍS bikarnum þetta árið. Ljósm. glh
Snæfell fór létt með Ármann
Það gengur vel hjá Rebekku Rán og stöllum hennar í Snæfelli þessa dagana.
Ljósm. af FB síðu Snæfells
Skagamenn með tap á móti Hamri
Skagamenn urðu að sætta sig við tap á móti Hamri. Ljósm. glh