Skessuhorn - 29.03.2023, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2023 7
Viltu senda inn:
➢ Málað/teiknað myndefni
o náttúra, fólk, annað?
➢ Ljósmyndir
o t.d. dýr, hús eða uppáhalds-staðurinn þinn í
heimabyggð?
➢ Ljóð
o má líka myndskreyta með litlum myndum?
➢ Örsögur
o birtar með mynd af höfundi sem þarf að
senda með?
➢ Teiknimyndasögur
o stuttar t.d. 3 myndir í röð?
➢ Annað efni sem á erindi í barnablað?
OK Barnamenningarhátíð 2023
Kall eftir fjölbreyttu efni í barnablað Skessuhorns í tilefni hátíðarinnar
ÞETTA VERÐUR OK
Síðastliðinn miðvikudag, 22. mars,
var alþjóðlegur dagur vatnsins sem
ætlaður er til að minna okkur á
mikilvægi vatns fyrir okkur og allt
líf á jörðinni. Vatn er lífsnauðsyn
legt öllum og flestir kannast einnig
við róandi og heilandi áhrif þess að
sitja á lækjarbakka eða við strönd
og fylgjast með hreyfingum vatns
ins og hlusta á árniðinn, öldugjálfur
eða brimhljóð. Á degi vatnsins sem
og aðra daga er vel við hæfi að fá
sér göngutúr meðfram á, vatni eða
ströndinni sem er í mestu uppá
haldi hjá hverjum og einum. Setjast
niður í rólegheitunum og velta fyrir
sér þeim undrum sem búa undir
yfirborðinu, og lífverunum sem þar
hafa aðlagast aðstæðum, jafnvel í
þúsundir ára.
Vatnið er alla daga til umfjöllunar
hjá Hafrannsóknastofnun. Á vef
stofnunarinnar sagði á miðviku
daginn að þegar tvö vetnisatóm og
eitt súrefnisatóm tengjast saman
myndast sameindin H2O, sem
við í daglegu tali þekkjum sem
vatn. Einföld sameind, en án efa
sú mikil vægasta af þeim öllum.
„Vatn er undirstaða lífsins en um
70% af yfirborði jarðarinnar er
hulið vatni og lang stærsti hluti
þess er sjór. Afgangurinn er fersk
vatn í stöðuvötnum, ám, jöklum
og íshellum heimskautanna. Allar
lífverur jarðar, frá smæstu bakter
íum til stærstu hvala, þurfa vatn til
að lifa. Um 70% af þyngd manns
líkamans er vatn og án vatns getum
við aðeins lifað í um þrjá daga.
Þrátt fyrir mikilvægi vatns fyrir
allt líf, höfum við umgengist það af
talsverðu virðingarleysi. Yfir millj
arður jarðarbúa hefur ekki aðgang
að hreinu vatni og tæplega 3 millj
arðar búa við vatnsskort. Talið
er að árið 2025 muni 3,5 millj
arðar manna búa við vatnsskort og
ástæðan er að stórum hluta vegna
þess að mengun hefur gert vatn
ódrykkjarhæft.
Við erum rík af vatni
Ísland er auðugt af vatni og oft
þykir okkur nóg um þegar styttir
ekki upp svo dögum skiptir! En
það minnkar ekki mikilvægi þess að
vernda vatnsauðlindina okkar því
hún er viðkvæm fyrir mengun og
hverskyns röskun. Settar hafa verið
fram ýmsar reglur um hvernig á
að umgangast vatnsauðlindina og
nýverið voru sett lög á Íslandi (nr.
36/2011) sem hafa það markmið
að vernda ferskvatn og strandsjó
og vistkerfi sem í þeim þrífast.
Í lögunum er auk þess kveðið á
um að bæta skuli ástand vatns þar
sem þess er þörf. Gerð hafa verið
viðmið til að meta hvort ástand
ferskvatns og strandsjávar uppfylli
markmið laganna og hefur Haf
rannsóknastofnun komið að þeirri
vinnu ásamt Veðurstofu Íslands,
Náttúrufræðistofnun Íslands og
Umhverfisstofnun.
Umhverfisþættir, svo sem
hitastig, pH og efnasamsetning
vatns, hafa mikil áhrif á þróun líf
ríkis í vatni og er lífríkið góður
mælikvarði á gæði vatns. Sumar líf
verur eru þolnar fyrir mengun en
aðrar mjög viðkvæmar og hverfa
um leið og ástandi vatns hrakar.
Rannsóknir á tegundum vatnalíf
vera og hlutföllum viðkvæmra og
þolinna tegunda geta gefið dýr
mætar upplýsingar um ástand
vatns.“
mm
Aðalfundur Félags Sauðfjárbænda
í Borgarfjarðarhéraði fór fram í
sal fjárhúsanna á Hesti miðviku
daginn 15. mars. Einn af há
punktum fundarins var afhending
Framfaraskjaldarins sem í þetta
sinn kom í hlut bændanna í Bakka
koti í Stafholtstungum, þeim
Kristínu Kristjánsdóttur og Sindra
Sigurgeirssyni.
Á fundinum flutti Unnsteinn
Snorri Snorrason, sérfærðingur
Bændasamtakanna, erindi um
horfur í sauðfjárbúskap auk þess
að hefðbundin aðalfundarstörf fóru
fram.
sþ
Hlutu verðlaun
fyrir framfarir
í sauðfjárrækt
Alþjóðadagur vatnsins
Við Brynjudalsá í Hvalfirði. Við Úlfsvatnsá á Arnarvatnsheiði.
Vatnsból Akurnesinga í Berjadalsá við rætur Akrafjalls.