Skessuhorn - 29.03.2023, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 20238
Eldur í sinu
HVALFJ.SV: Hringt var
í Neyðarlínuna á sunnu
dagskvöldið og tilkynnt um
gróður elda við Akrafjalls
veg. Þar hafði kviknað eldur í
sinu á fimm fermetra svæði og
þegar lögregla kom á staðinn
var slökkviliðið komið á vett
vang og slökkti eldinn. -vaks
Aflatölur fyrir
Vesturland
18. – 24. mars
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 6 bátar.
Heildarlöndun: 2.832.552
kg.
Mestur afli: Svanur RE:
2.810.374 kg í tveimur lönd
unum.
Arnarstapi: 1 bátur.
Heildarlöndun: 92.417 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
92.417 kg í sex róðrum.
Grundarfjörður: 8 bátar.
Heildarlöndun: 519.317 kg.
Mestur afli: Drangey SK:
226.800 kg í tveimur lönd
unum.
Ólafsvík: 8 bátar.
Heildarlöndun: 88.837 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
40.535 kg í einum róðri.
Rif: 8 bátar.
Heildarlöndun: 367.707 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
90.219 kg í einni löndun.
Stykkishólmur: 2 bátar.
Heildarlöndun: 183.072 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
179.136 kg í þremur lönd
unum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu
1. Svanur RE – AKR:
1.572.458 kg. 21. mars.
2. Svanur RE – AKR:
1.237.916 kg. 20. mars.
3. Drangey SK – GRU:
188.965 kg. 19. mars.
4. Tjaldur SH – RIF: 90.219
kg. 18. mars.
5. Rifsnes SH – RIF: 86.058
kg. 20. mars.
-sþ
Stjórn UMFÍ ákvað í síðustu viku
að hætta starfsemi Ungmennabúða
UMFÍ á Laugarvatni. Forsaga
málsins er sú að starfsemi Ung
mennabúðanna hafði verið hætt
tímabundið um miðjan febr
úar vegna myglu og rakaskemmda
í þessum fyrrum húsi Íþrótta
kennaraskólans. Í kjölfarið upp
lýsti Bláskógabyggð, eigandi húss
ins, UMFÍ um að sveitarfélagið
hygðist ekki fara í þær framkvæmdir
á húsinu sem nauðsynlegar eru til að
halda mætti starfsemi í því áfram.
Þess í stað opnaði sveitarfélagið á
þann möguleika að UMFÍ myndi
kaupa húsnæði Ungmennabúðanna
af sveitarfélaginu og halda starf
seminni áfram í kjölfar viðgerða.
Stjórn og stjórnendur UMFÍ mátu
framkvæmda og kostnaðar áætlanir
í tengslum við það verk og töldu það
af þeirri stærðargráðu að ekki væri
skynsamlegt fyrir UMFÍ að takast
eitt á hendur slíka skuldbindingu.
„Stjórn UMFÍ þykir afar miður að
þetta sé niðurstaðan og þar með til
neydd til að ljúka starfsemi Ung
mennabúðanna á Laugarvatni,“
segir í tilkynningu og upplýsa að þar
með verði starfsemi búðanna hætt.
UMFÍ hefur starfrækt Ung
mennabúðir frá árinu 2005, í upp
hafi á Laugum í Sælingsdal, en frá
árinu 2019 á Laugarvatni. Í búð
irnar hafa komið þúsundir nem
enda úr 9. bekk grunnskóla af
öllu landinu með kennurum og
umsjónar fólki og dvalið þar fimm
daga í senn. Markmiðið með dvöl í
búðunum var að styrkja félagsfærni
ungmennanna, efla vitund þeirra
fyrir umhverfi sínu og samfélagi
ásamt því að kenna þeim að hafa
heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi.
Þess má geta að UMFÍ rekur
Skólabúðir á Reykjum í Hrúta
firði og koma þangað nemendur
7. bekkjar úr grunnskólum af öllu
landinu. Engar fyrirætlanir eru um
lok þeirrar starfsemi.
mm/ Ljósm. umfi.is
Síðastliðið mánudagskvöld lauk
þriggja kvölda páskamóti Bridge
félags Borgarfjarðar í tvímenningi.
Fyrirkomulag mótsins var þannig
að besti árangur tveggja kvölda gilti
til úrslita. Afgerandi forystu í upp
hafi móts náðu þau Anna Heiða
Baldursdóttir og Ingimundur Jóns
son og héldu þau henni til enda.
Uppskáru þau 128,1 stig. Í öðru
sæti með 124,7 stig voru Heiðar
Árni Baldursson og Logi Sigurðs
son. Í þriðja sæti urðu svo Skaga
mennirnir Viktor Björnsson og
Karl Alfreðsson með 114,4 stig.
Allt fékk þetta heiðursfólk páska
egg að launum.
Næstkomandi mánudagskvöld
3. apríl verður einmenningskeppni
félagsins. Allir eru velkomnir í
Logaland, en spilamennska hefst
stundvíslega klukkan 20.
mm
Snorri Jóhannesson veiðivörður á
Arnarvatnsheiði birti meðfylgjandi
mynd á FB síðu sinni á fimmtu
daginn. Hún er af veginum sem
liggur niður sneiðina á aksturs
leiðinni frá Kalmanstungu og í
Hallmundarhraun þar sem fjöl
margir leggja leið sína til að skoða
Surtshelli. Sneiðin liggur utan
í felli og af henni er snarbratt
niður í Norðlingafljót. Aflíðandi
klakabunkar ná út af vegbrúninni.
Snorri bendir á að þarna sé mjög
varhugavert að aka við þessar
aðstæður jafnvel þótt fólk sé vant
akstri, jafnvel á vel búnum bílum á
nagladekkjum.
mm
Mygla í húsi leiðir til þess að
ungmennabúðum UMFÍ hefur verið hætt
Varar við akstri í Surtshelli
Urðu hlutskörpust í páskatvímenningi BB
Sigurvegarar á páskamóti BB. F.v. Karl, Viktor, Ingimundur, Anna Heiða, Heiðar Árni og Logi.