Skessuhorn - 29.03.2023, Qupperneq 28
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 202328
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Stafræn hönnunarstofa
með fjölbreyttar lausnir
sig@sig.is777 5533
S T U D I O S I G
Grafísk hönnun og veflausnir
Okkur hjá Listfélagi Akraness er
efst í huga þakklæti til allra þeirra
sem komu að og tóku þátt í okkar
fyrsta opinbera verkefni Björgum
með list á Vetrardögum á Akra
nesi. Björgum með list var styrktar
sýning til handa og í samvinnu við
Björgunarfélag Akraness.
Einnig viljum við þakka þeim
fjölmörgu sem sóttu viðburðinn
kærlega fyrir komuna og ekki
síst öllum þeim sem lögðu sitt af
mörkum til styrktar Björgunar
félaginu.
Gestum sýningarinnar bauðst
að styrkja Björgunarfélagið með
því að bjóða í listaverk á hljóðlátu
uppboði, kaupa ljóðabækur og gefa
frjáls framlög vegna framkomu
sviðslistafólks félagsins.
Björgunarfélag Akraness setti af
stað fjáröflunarverkefni í tengslum
við þetta verkefni þar sem félagið
er að safna fé fyrir nýjum harð
botna bát sem kemur til með að efla
tækjakost félagsins verulega.
Það er gaman að segja frá því að
alls safnaðist 730.501 króna sem
er mjög góð byrjun fyrir þeirra
söfnun.
Björgunarfélaginu þökkum við
fyrir gott samstarf, það var gaman
að sjá hvað snyrtilegt húsnæði
þeirra og tækjabúnaður skapaði
skemmtilega umgjörð fyrir við
burðinn, til að mynda var vagn
snjóbíls notaður sem svið fyrir
sviðslistafólkið.
Við hjá Listfélagi Akraness
þökkum kærlega fyrir okkur og
hlökkum til að halda áfram að starfa
sem félag til að efla menningarlíf á
Akranesi og nágrenni.
Stjórn Listfélags Akraness.
Björgum með list lokið
með góðum árangri
Pennagrein
Hugmyndasöfnunin „Opin og
græn svæði“ á Okkar Akranes var
haldin dagana 21. febrúar til 7.
mars síðastliðinn. Þátttakan var
mjög góð og alls bárust um 100 til
lögur.
Fram kemur á heimasíðu Akra
neskaupstaðar að skipulags og
umhverfisráð hafi ákveðið að senda
20 tillögur áfram í kosningu en
nokkrum þeirra var steypt saman
þar sem þær tengdust. Hægt er að
skoða þær hugmyndir sem kosið er
um á akranes.is. Þar er úr mörgum
skemmtilegum hugmyndum að
velja úr eins og til að mynda að setja
upp ævintýragarð á Merkurtúni,
stækka sleðabrekkuna á Mikka mús
hólnum svokallaða í Jörundarholti,
setja lítil úti skallatennisborð
á ákveðnum leiksvæðum, bæta
aðstöðu á núverandi hundasvæði og
kaupa ungbarnaleiktæki fyrir ung
barnaróló.
Um helmingur af þeim hug
myndum sem bárust uppfylltu ekki
þau skilyrði sem sett voru til þess að
hugmynd ætti möguleika á að kom
ast áfram. Það voru meðal annars
hugmyndir sem vörðuðu viðhald
eða rekstur en ekki fjárfestingar.
Þá voru margar hugmyndir sem
áttu við annað en opin græn svæði.
Hugmyndir þar sem kostnaður var
of mikill en viðmiðið var tíu millj
ónir króna í heildarkostnað, eða að
hugmynd samrýmdist ekki skipu
lagi eða stefnu bæjarins og var ekki
innan bæjarmarka.
Kosningin um bestu tillögurnar
stendur yfir frá 28. mars til 11. apríl
á akranes.is.
vaks
Söngleikurinn Syngdu í
uppsetningu Leikfélags MB var
sýndur síðastliðna helgi en alls
voru fjórar sýningar sem rúlluðu á
þremur dögum. Greinilegt er að í
skólanum leynast miklir söng og
leikhæfileikar en krakkarnir sungu
hvert öðru betra og voru sannfær
andi í sínum karakterum. Mikil
orka og gleði ríkti á sviðinu út
alla sýninguna sem endaði í kraft
miklum samsöng. Söngleikurinn
er byggður á teiknimyndinni Sing
sem fjallar um tilraun dýra til að
bjarga leikhúsinu sínu með söng
keppni. Sýningin er samvinnuverk
efni Tónlistarskóla Borgarfjarðar,
Leiklistarklúbbs MB og Mennta
skóla Borgarfjarðar en Agnar Jón
Egilsson sá um leikstjórn og upp
setningu. sþ
Leikfélag MB sýndi fjórar
sýningar af söngleiknum Syngdu
Orkumikill hópur menntskælinga
söng, lék og dansaði í sal MB um
helgina. Ljósm. sþ.
Kosning hafin á Okkar Akranes
Smári Jónsson formaður Listfélags Akraness afhendir Ásgeiri Kristinssyni frá
Björgunarfélaginu afrakstur söfnunarinnar.