Skessuhorn - 29.03.2023, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 202330
Spurning
vikunnar
Hvaða framandi dýr myndir
þú helst vilja eiga?
Spurt í Ólafsvík
Einar Rúnar Ísfjörð
„Ég myndi ekki vilja eiga neitt
of framandi, held mig bara við
hunda og ketti.“
Guðný María Bragadóttir
„Letidýr, það þarf að hafa svo
lítið fyrir þeim.“
Júníana Björg Óttarsdóttir
„Er kind ekki nógu framandi?“
Ólafur Adolfsson
„Ég á nóg með hundinn en væri
alveg til í að eiga páfagauk til að
rífast við, það nennir því enginn
núorðið.“
Harpa Björnsdóttir
„Tígrisdýr.“
Í þessum lið leggjum við fyrir tíu
spurningar til íþróttamanna úr
alls konar íþróttum á öllum aldri
á Vesturlandi. Íþróttamaður vik
unnar að þessu sinni er skák
maðurinn Jóhann úr Ólafsvík.
Nafn: Jóhann Steinsson
Fjölskylduhagir? Giftur Erlu
Hrönn Skagamær og eigum
við fjögur uppkomin börn og
barnabörnin eru 13 talsins.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Sund, öll hreyfing og svo skipar
skákin stóru hlutverki í mínu
daglega lífi um þessar mundir.
Hvernig er venjulegur dagur
hjá þér um þessar mundir?
Að sinna mínum áhugamálum og
fjölskyldu.
Hverjir eru þínir helstu kostir
og gallar? Kostirnir eru að ég er
jákvæður, mikill keppnismaður
og hjálpsamur. Gallarnir eru
myndi ég segja að ég er skapmik
ill og mjög tapsár.
Hversu oft æfir þú í viku? Mjög
oft ef ég er í stuði, hvort sem það
er að synda, labba eða tefla.
Hver er þín fyrirmynd í
íþróttum? Gylfi Scheving vinur
minn.
Af hverju valdir þú skák? Hún
er skemmtileg, uppbyggileg fyrir
hugann og góður félagsskapur.
Hver er fyndnastur af þeim
sem þú þekkir? Ég þekki marga
fyndna menn, enginn einn sem
skarar fram úr.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt?
Skemmtilegast er að ná góðum
árangri í skák en leiðinlegast er
að leika af sér. En þetta er alltaf
jafn skemmtilegt.
Mikill keppnismaður og mjög tapsár
Íþróttamaður vikunnar
Í Reykhólahreppi hefur undanfarið
vaknað töluverður áhugi á bog
fimi. Miðvikudaginn 15. mars síð
astliðinn komu í heimsókn þau
Guðmundur Guðjónsson og Val
gerður Einarsdóttir Hjaltested frá
Bogfimisambandi Íslands og voru
þau að kenna undirstöðuatriði í
bogfimi og meðferð og umhirðan
búnaðarins. Stefnan er að allir sem
hafa áhuga á bogfimi geti mætt á
vikulegar æfingar í greininni og
er hugsað bæði fyrir börn og full
orðna.
Fram kemur á vef Reyk
hólahrepps að átta manns hafi
sótt þjálfaraleiðsögn hjá þeim
skötuhjúum en það voru þau Lóa
á Kambi, Rebekka á Stað, Kol
finna Ýr, Sjöfn Sæmundsdóttir,
Sandra Rún, Jóhanna Ösp, Styrmir
Sæmundsson og Eiður Rafn.
Guðmundur og Valgerður höfðu
meðferðis búnað til bogfimi
iðkunar sem Þörungaverksmiðjan
í Reykhólahreppi gaf Ungmenna
félaginu Aftureldingu. Það eru
tólf bogar af ýmsum gerðum sem
henta fólki á mismunandi aldri,
hellingur af örvum, skotmörk og
ýmis aukabúnaður og verkfæri til
viðhalds á græjunum.
Hugsunin með því að hafa svona
mikið úrval af bogum í stað þess
að hafa bara eina gerð boga með
ferðis er að gefa krökkunum færi
á því að prófa allar mismunandi
keppnisgreinar innan íþróttarinnar.
Krakkar finna sig í mismunandi
keppnisgreinum innan íþróttar
innar, sumir kunna betur við
„hráu“ gamaldags bogana eins og
langboga en aðrir finna sig meira
í „tæknibogum“ eins og trissu
bogum o.s.frv. Með þessu móti eru
krakkarnir mun líklegri til þess að
halda áfram í íþróttinni. Fyrir þá
sem eru bara að stunda íþróttina
til dægradvalar þá er mun meira
gaman að fá meira úrval af búnaði
til þess að leika sér með og prófa.
Eftir að þjálfarar og leiðbein
endur höfðu fengið tilsögn hjá
þeim Guðmundi og Valgerði voru
prufutímar bæði fyrir krakka og
fullorðna þar sem allir sem vildu
fengu að prófa að skjóta af boga.
Finnur Árnason framkvæmdastjóri
Þörungaverksmiðjunnar kom og
afhenti Ungmennafélaginu bún
aðinn og veitti Styrmir Sæmunds
son honum viðtöku ásamt krökk
unum. Finnur prófaði að sjálfsögðu
að skjóta nokkrum örvum og gekk
bærilega. segir í frétt á vef Reyk
hólahrepps.
vaks
KH og ÍA áttust við í riðli 1 í C
deild kvenna í Lengjubikarnum
á mánudaginn og var leikurinn
á Valsvellinum við Hlíðarenda.
Selma Dögg Þorsteinsdóttir kom
Skagakonum á blað með marki rétt
fyrir hálfleik og staðan 01 fyrir
ÍA. Birta Ósk Sigurjónsdóttir jafn
aði metin fyrir KH í byrjun seinni
hálfleiks áður en fyrirliðinn Bryn
dís Rún Þórólfsdóttir kom Skaga
konum aftur yfir eftir klukkutíma
leik. Það var síðan Erna Björt Elías
dóttir sem gulltryggði sigur ÍA með
marki tíu mínútum fyrir leikslok,
lokatölur 13 fyrir ÍA.
ÍA vann þarna sinn þriðja sigur
í röð í Lengjubikarnum og eru
þær efstar í riðlinum með níu stig.
Lokaleikur þeirra í riðlinum er á
móti Sindra miðvikudaginn 5. apríl
í Akraneshöllinni og hefst klukkan
18. Með sigri tryggja þær sig í und
anúrslit Lengjubikarsins en þau
hefjast laugardaginn 15. apríl og
leikur ÍA við Hauka eða Völsung.
vaks
Bogfimiæfingar hafnar á Reykhólum
Þjálfararnir ásamt þeim Guðmundi og Valgerði. Ljósm reykholar.is Krakkarnir voru áhugasamir að læra undirstöðureglurnar.
Skagakonur með góðan sigur á KH í Lengjubikarnum
Selma Dögg Þorsteinsdóttir
skoraði fyrsta markið í
leiknum á móti KH.
Ljósm. vaks