Skessuhorn - 29.03.2023, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2023 31
Nágrannaliðin ÍA og Skallagrímur
mættust í sannkölluðum
Vesturlandsslag í síðustu umferð
1. deildar karla í körfuknattleik á
þessu tímabili á föstudagskvöldið
og var leikurinn í íþróttahúsinu við
Vesturgötu á Akranesi. Leikurinn
hafði kannski ekki mikla þýðingu
fyrir stöðu liðanna í deildinni nema
kannski upp á stoltið að gera og að
geta haldið montréttinum fram á
næsta haust. Það var góð mæting á
Vesturgötuna og ljóst frá byrjun að
liðin ætluðu ekki að gefa neitt eftir
í þessum alræmda nágrannaslag.
Eftir um fimm mínútna leik var
staðan 9:8 ÍA í vil en við lok
fyrsta leikhluta voru gestirnir úr
Borgarnesi komnir með sex stiga
forskot, 13:19. Skagamenn náðu
þó fljótlega að jafna metin í öðrum
leikhluta áður en Skallarnir náðu
öðru góðu áhlaupi og staðan 24:32
um miðjan leikhluta. Þegar flautað
var til hálfleiks voru fjögur stig
á milli liðanna Skallagrími í vil,
34:38, og útlit fyrir áframhaldandi
baráttu.
Það hélst þannig í þriðja leikhluta
og var nánast jafnt á öllum tölum
þar til undir lok hans þegar heima
menn skoruðu níu stig í röð, staðan
59:52 fyrir ÍA. En Almar Örn
Björnsson sá til þess að munurinn
var aðeins fjögur stig fyrir síðasta
fjórðunginn þegar hann setti niður
þrist á lokasekúndunum, staðan
59:55. Eftir rúmar fjórar mínútur
í fjórða leikhluta var jafnt, 66:66,
og næstu mínútur var allt í járnum.
Gabriel Adersteg kom heima
mönnum í 78:73 þegar tæp ein mín
úta var eftir með þriggja stiga skoti
en Keith Jordan Jr. svaraði í næstu
sókn með tvisti og fékk síðan tvö
víti en hitti aðeins úr öðru þeirra. Í
kjölfarið fengu gestirnir boltann en
hittu ekki úr tveimur skotum sínum
og neyddust síðan til að brjóta á
Jónasi Steinarssyni þegar tíu sek
úndur voru eftir. Hann hitti úr
báðum vítunum af öryggi fyrir ÍA
og nánast tryggði sigurinn. Milo
rad Sedlarevic minnkaði muninn í
eitt stig með þristi á lokasekúnd
unum en Skallagrímsmenn náðu
ekki að brjóta á Skagamönnum og
tíminn rann út, lokatölur 80:79
fyrir ÍA.
Hjá ÍA var Jalen Dupree
atkvæðamestur með 24 stig og 12
fráköst, Frank Gerritsen var með
16 stig og þeir Jónas Steinarsson og
Gabriel Adersteg með 11 stig hvor.
Hjá Skallagrími var Keith Jordan
Jr. með 25 stig, Milorad Sedlarevic
með 16 stig og Björgvin Hafþór
Ríkharðsson með 12 stig.
Tímabilinu hjá ÍA er nú lokið og
enduðu þeir í 7. til 8. sæti ásamt
Ármanni með 22 stig. Þeir unnu 11
leiki, töpuðu 16 og verður það að
teljast ágætis árangur miðað við að
þeir fengu óvænt sæti í deildinni í
haust.
Skallagrímur endaði í fjórða sæti
deildarinnar með 30 stig og mætir
Sindra í fyrsta leik í úrslitakeppni
fjögurra liða um eitt laust sæti í
efstu deild en auk þess eru þar lið
Hamars og Fjölnis. Fyrsti leikurinn
verður á föstudaginn á Höfn í
Hornafirði og hefst klukkan 19.15.
vaks
Þór Akureyri og Snæfell mætt
ust í úrslitakeppni 1. deildar í
körfuknattleik kvenna á laugar
daginn og fór leikurinn fram í
höllinni á Akureyri. Var um að
ræða fyrsta leik í einvíginu og
þarf að ná þremur sigrum til að
komast í úrslitaviðureign á móti
Stjörnunni eða KR um eitt sæti í
Subway deildinni á næstu leiktíð.
Það var vel mætt og mikil stemn
ing í húsinu enda alltaf mikil
spenna sem fylgir úrslitakeppni og
mikið undir. Snæfell byrjaði betur
og komst í 0:5 en heimakonur
vöknuðu fljótlega og staðan 7:7
þegar fjórar mínútur voru liðnar
af leiknum. Einhver taugaspenna
var í leikmönnum beggja liða því
þær hittu illa og stigaskorið eftir
því. Snæfell setti niður síðustu sex
stigin í fyrsta leikhluta og leiddi
með þremur stigum, 13:16. Þær
áttu svo einnig fyrstu sex stigin í
öðrum leikhluta og voru komnar
með níu stiga forystu, 13:22. Um
rúman miðjan leikhlutann var
forskot Snæfells 13 stig, 19:32, en
þá tóku Þórskonur loksins við sér
og náðu að minnka muninn í þrjú
stig fyrir hálfleik, staðan 31:34 og
allt í járnum.
Snæfellskonur voru með yfir
höndina allan tímann í þriðja
leikhluta, þær voru alltaf með
nokkurra stiga forskot og erfið
lega gekk hjá heimakonum að
koma sér inn í leikinn að ein
hverju marki. Þegar flautað var
af fyrir fjórða og síðasta fjórðung
var Snæfell með sjö stiga forskot,
53:60, og í alveg ágætis málum.
En heimakonur í Þór höfðu ekki
mikinn áhuga á að tapa fyrsta leik
á heimavelli og komu sér hægt og
rólega nær Snæfelli. Þegar tæpar
fjórar mínútur voru eftir var
staðan 66:67 Snæfelli í vil og við
tóku æsispennandi lokamínútur.
Þegar innan við mínúta var eftir
á klukkunni var staðan hnífjöfn,
74:74, og enn hellingur sem átti
eftir að gerast. Minea Takala kom
síðan Snæfelli í 74:76 af vítalín
unni áður en Hrefna Ottósdóttir
setti niður þrist og kom Þór aftur
í forystu. Ylenia Bonett svaraði
strax fyrir Snæfell en þegar sjö
sekúndur lifðu leiks henti Tuba
Poyraz í annan þrist fyrir Þór
og kom þeim í 80:78. Á lokasek
úndunni reyndi Preslava Koleva
þriggja stiga skot til að tryggja
gestunum sigurinn en það geig
aði og Þórskonur unnu nauman
en ansi mikilvægan sigur.
Cheah Rael Whitsitt var stiga
hæst hjá Snæfelli með 20 stig
og 13 fráköst, Minea Takala var
með 19 stig og Preslava Koleva
með 17 stig. Hjá Þór var Hrefna
Ottós dóttir með 25 stig, Madison
Sutton var með 27 stig og 12 frá
köst og Heiða Hlín Björnsdóttir
með 16 stig.
Annar leikur liðanna í úrslita
keppninni var í gærkvöldi í
Stykkishólmi og var ekki hafinn
þegar Skessuhorn fór í prentun.
vaks
Víkingur Ólafsvík og KV áttust
við í riðli 1 í B deild Lengju
bikars karla á laugardaginn og
var leikurinn á Ólafsvíkurvelli.
Askur Jóhannsson kom gestunum
yfir strax á fyrstu mínútu og kort
eri seinna skoraði Agnar Þorláks
son annað mark KV og staðan
02. Luis Romero Jorge minnk
aði síðan muninn fyrir Víking
eftir tæpan hálftíma leik og sjö
mínútum síðar jafnaði Abdelhadi
Khalok metin fyrir heimamenn.
En tveimur mínútum síðar
skoraði Freyr Þrastarson þriðja
mark KV og staðan 2 3 í hálfleik.
Patrik Thor Pétursson kom
síðan KV í 24 fljótlega í seinni
hálfleik og þeir komnir í góða
stöðu. Það var svo ekki fyrr en á
síðustu mínútu leiksins sem Mik
ael Hrafn Helgason skoraði mark
fyrir Víking en aðeins of seint og
KV fagnaði sigri, 34. Víkingur
hefur þar með lokið leik í Lengju
bikarnum þetta árið og fékk
sjö stig úr fimm leikjum. Næsti
leikur Víkings er í fyrstu umferð
Mjólkur bikarsins á móti liði
Árbæjar næsta laugardag á Fylkis
velli og hefst klukkan 16.
Skallagrímur tapaði þriðja leik
sínum í röð í riðli 4 í C deild karla
í Lengjubikarnum á föstudags
kvöldið þegar þeir tóku á móti
liði Úlfanna í Akraneshöllinni.
Gestirnir komust yfir strax á
þriðju mínútu með marki Steinars
Bjarnasonar úr vítaspyrnu og
Halldór Bjarki Brynjarsson bætti
síðan við tveimur mörkum fyrir
hálfleik, staðan 03. Elvar Þór
Guðjónsson skoraði fyrir Skallana
á 79. mínútu en það dugði skammt
og öruggur sigur Úlfanna, 13.
Síðasti leikur Skallagríms í
Lengjubikarnum verður laugar
daginn 15. apríl á móti liði Ham
ars en í millitíðinni spila þeir við
KFR í Mjólkurbikarnum næsta
sunnudag í Akraneshöllinni og
hefst viðureignin klukkan 19.
Þá hefja lið Kára og Reynis
Hellissands einnig leik í Mjólkur
bikarnum um næstu helgi.
Kári tekur á móti Létti næsta
föstudags kvöld í Akraneshöllinni
og hefst leikurinn klukkan 19.
Reynismenn fá KFK í heimsókn á
Ólafsvíkurvöll á laugardaginn og
verður flautað til leiks klukkan 14.
vaks
Snæfell tapaði naumlega fyrir
Þór Akureyri í fyrsta leik
ÍA vann Skallagrím í Vesturlandsslagnum
Þjálfarinn Baldur Þorleifsson að ræða málin í leiknum. Ljósm. Palli Jóh.
Víkingur Ó. og Skallagrímur
töpuðu í Lengjubikarnum
Úr leik Víkings og KV á laugardaginn. Ljósm. af
Skagamenn hafa lokið keppni á þessu tímabili. Ljósm. iakarfa.