AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Page 14
keppni áriö 1934. Landsbankann teiknaði upphaf-
lega danskur arkitekt, Thuren að nafni, og var hann
byggður úr tilhöggnu grágrýti. Eftir brunann árið 1914
teiknaði Guðjón Samúelsson stækkun hússins úr
steinsteypu í samastíl og upphaflega húsið. Um 1930
teiknaði Guðjón enn frekari stækkun hússins og enn
f sama stíl. Þetta líkaði ekki yngri arkitektunum og
þeir komu þvf til leiðar að haldin var samkepþni um
nýja viðbyggingu. Þá samkeppni vann Gunnlaugur
eins og fyrr segir. Óhætt er að fullyrða að viðbygg-
ingin var smekkleg og hófleg. Hún var gerð af tillits-
semi við upphaflega húsið.
Byggingarferlið hélt hins vegar áfram og tók ekkert
tillit til hugmyndafræðinnar um viðbygginguna sem
skyldi tjá ný viðhorf en vera þó hæversk gagnvart
upphaflega húsinu. Nú var það viðbyggingin sem
var látin vaxa stig af stigi. Áfram var sama arkitekt
falið að annast nýjar viðbyggingar og nú kaus hann
að stækka þá viðbyggingu sem hann hafði áður
teiknað. Nú virðist sem viðhorf hans hafi breyst að
því leyti að hann taldi ekki lengur nauðsynlegt að
láta viðbygginguna við viðbygginguna skera sig frá
henni og tjá enn ný og breytt viðhorf. Upphaflega
viðbyggingin var stækkuð í áföngum og hætti smám
saman að vera smekkleg og hófleg. Hún hætti að
vera tillitssöm við upphaflega húsið. Landsbankinn
eignaðist smám saman önnur hús við Hafnarstræti
sem hann tengdi við hús sín við Austurstræti og gerði
þau að „viðbyggingum“. Þessi hús voru Ingólfshvoll
og Edinborg. Ingólfshvoll var að lokum rifinn og
viðbygging Gunnlaugs stækkuð sem því nam. Edin-
borg, sem var karakterríkt klassískt hús, var eyði-
lögð og flött út í anda viðbyggingar við viðbyggingu
við viðbyggingu.
Margt hefur síðan gerst á þessum viðbyggingarvett-
Viðbygging Gunnlaugs Halldórssonar við Landsbanka
íslands, teikning 1934. __________
vangi í Reykjavík en í aðalatriðum hefur stefnan þó
verið sú, að hver arkitekt tjáir sjálfan sig í þeim við-
byggingum sem hann teiknar, hvað sem tautar og
raular. í þau skipti sem arkitekinn tjáir sig opinber-
lega og segir hvað fyrir honum vakir við mótun bygg-
ingarinnar, þá er það yfirleitt hástemmt tal um list-
sköpun og táknrænt gildi, og erfitt getur verið að skilja
samhengi milli orða hans og byggingarinnar. Hann
á það jafnvel til að segja að viðbyggingin eigi að
falla sem best að upphaflega húsinu enda þótt það
blasi við hverjum manni að hún geri það alls ekki.
Þessi mótsagnakennda stefna, ef stefnu má kalla,
hefur tekist misvel en að langmestu leyti þó illa. Lát-
leysi og tillitssemi við upphaflegt hús hafa sjaldan
verið talin dyggð. Nefna má undantekningar frá þess-
ari reglu, en þær eru fáar.
Nýlega var markað nýtt spor í viðbyggingarfílósófíu
íslenskra arkitekta þegar reist var viðbygging við
Iðnó. Iðnó er friðað hús samkvæmt þjóðminjalögum
og er talið hafa sérstakt menningarsögulegt gildi.
Ekki þarf að fjölyrða um viðbygginguna, hana þekkja
líklega flestir lesendur þessa tímarits. Því miður er
ekki því til að dreifa að arkitekt hússins hafi gert opin-
berlega grein fyrir hugmyndum sínum með viðbygg-
ingunni eða hafi skýrt þá hugsun sem að baki hennar
býr og því er líklega erfiðara að fjalla um hana en
ella og hætt við að höfundi hennar verði gerðar upp
skoðanir.
Á það verður að hætta.
Þrátt fyrir þetta verður nefnilega að telja réttmætt að
draga vissar ályktanir af gerð viðbyggingarinnar um
viðhorf og stefnu arkitektsins.
Meðal þess sem mestaforvitni vekurersú staðreynd,
að þessi sérstaka viðbygging er ekki sþrottin af þörf
fyrir aukið húsrými. Að því leyti er hún einstök. Ekki
hefur enn verið ákveðið um notkun hússins. Stefnt
var að því um tíma a.m.k. að hægt yrði að stunda
leiklist í einhverju formi í húsinu, en engin ákvörðun
hefur þó verið tekin um notkunina. Um tíma var stefnt
að því að einnig yrði rekið þar veitingahús, en engar
ákvarðanir eða skuldbindingar voru teknar. Viðbygg-
ing sem ekki á rætur sínar í þörf á auknu húsrými er
óneitanlega nýlunda. Líklegt verður þó að telja að
arkitektinn hafi talið að ef til þess kæmi að ákveðin
starfsemi myndi flytjast í húsið yrði þörf á auknu hús-
rými og byggingarnefnd hússins hefur fallist á að
best væri því að reisa viðbygginguna án þess þó að
hafa tekið ákvörðun um notkunina.
/r.y/iny rr7- ry
A4 M