AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Side 65
mengunarbótaregluna. Svæði sem eru vel stæð efna-
hagslega eiga auðveldara með að útloka mengandi
fyrirtæki en verr sett svæði. Þess vegna er hætt við
að greiðsla fyrir mengun geti enn frekar ýtt undir
ójöfnuð milli svæða.
Mat á umhverfisröskun er flókið, en að meta röskun-
ina til fjár er enn flóknara. Bæði mat á umhverfinu
sjálfu og spár um umhverfisáhrif eru háð siðfræðilegu
og pólitísku viðhorfi þeirra sem framkvæma matið.
Vegna þessa er afar mikilvægt að þeir sem marka
opinbera stefnu í umhverfismálum setji ákveðin við-
mið sem hægt er að nota við þetta erfiða mat. Þessi
viðmið þarf að kynna almenningi og hagsmuna-
aðilum þannig að sem flestir fái að taka þátt í mótun
þeirra. Notkun slíkra viðmiða hlýtur alltaf að verða
umdeilanleg en hún er samt sem áður sú aðferð sem
vænlegust er til að leysa vandasamt verkefni.
MENGUN TIL SÖLU
Samkvæmt mengunarbótareglunni er greitt fyrir
mengun og þar með fyrir réttinn til að menga að
ákveðnu marki. Þessi mengunarréttur hefursíðarorð-
ið verslunarvara og aukið enn á fjölbreytni kapitalísks
hagkerfis. í Bandaríkjunum eru mengunarviðskipti
hafin og í stuttu máli gerast mengunarkaupin þannig:
Sérhvert fyrirtæki er flokkað samkvæmt ákveðnum
mengunarstaðli og er síðan úthlutað ákveðnum
mengunarkvóta. Venjulega er kvótinn byggður á und-
angenginni notkun. Síðan er gert ráð fyrir að fyrirtæk-
ið haldi sig innan þess kvóta sem því var úthlutað,
að viðlögðum sektum. Ef fyrirtæki fullnýtir ekki meng-
unarkvóta sinn má það selja umframkvóta sinn í árs-
lok. Þannig verður von um kvótasölu hvatning til þess
að draga úr mengun. Ekki hafaverið sett nein skilyrði
um hámarkskvótakaup en við framleiðslu mega fyrir-
tæki þó ekki fara fram úr lögbundnum mengunar-
stöðlum. Mengunarkvótasölu hefur verið vel tekið
bæði af umhverfissinnum og atvinnurekendum. Um-
hverfissinnar sjá sér leik að borði og kaupa upp
mengunarkvóta og fyrirtæki sjá aukatekjur í kvóta-
sölu. Hugmyndin er að markaðsöflin komi því þannig
fyrir, að þau fyrirtæki sem menga minnst lifi lengst.
Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna hélt sitt
fyrsta mengunaruppboð 1993. Uppboðin eiga að
auðvelda fyrirtækjum að verðleggja kvóta sinn og
hvetja til viðskipta með kvóta.
Þeir sem hins vegar gagnrýna verslun með meng-
unarkvóta hafa einkum bent á þrennt. í fyrsta lagi er
Ef við kaupum þetta fyrirtæki fylgir þá ekki mengunai'-
kvótinn með?
kvóta útdeilt samkvæmt mengunarhefð og þannig
fá gömul fyrirtæki kvóta á silfurfati. Nær sé að halda
uppboð á mengunarkvóta og úthluta honum þannig.
En slík uppboð væru þó einnig háð því hversu margir
væru um hituna og fjárhagsstöðu þeirra. í öðru lagi
geta kvótaviðskipti haft áhrif á samkeppnisaðstöðu
fyrirtækja. Öflugri fyrirtæki geta keypt upp mengunar-
réttindi og þannig útílokað smærri fyrirtæki frá sam-
keppni. Þetta kann svo að hafa frekari áhrif á atvinnu
á viðkomandi svæði. í þriðja lagi hefur því verið hald-
ið fram, frá umhverfis-siðfræðilegu sjónarmiði, að
mengunarkvótar séu lakari kostur en gjöld eða
skattar til að vernda umhverfið því að með kvótunum
sé mengun viðurkennd.
Viðskipti með mengunarkvóta eru á frumstigi og áhrif
þeirra ekki orðin merkjanleg. Samt sem áður er vert
að minna á að allar tilraunir með mengun og
óendurnýjanlegar auðlindir verður að framkvæma
með fyllstu varúð.
MENGUNARBÓTAREGLAN Á ÍSLANDI
Mengunarvandamál íslendinga kunna að virðast
fremur smá í samanburði við aðrar þjóðir en líklegast
er vandi íslendinga þó engu minni ef stærð þjóðar
og bolmagn eru höfð í huga. Ríkisstjórn íslands hefur
sett fram markmið sín um sjálfbæra þróun og vernd-
un umhverfisins. Jafnframt hefur hún lýst þeirri skoð-
un að ein af meginreglunum til að framfylgja hug-
myndafræði sjálfbærrar þróunar sé mengunarbótar-
eglan. Hvernig þessari reglu skal framfylgt hefur hins
vegar ekki verið lýst.
fslensk stjórnvöld höfðu tækifæri til að beita meng-
unarbótareglunni fyrir sig, á alþjóðlegum vettvangi,
fyrr á þessu ári. f umræðum um kjarnorkustöðina í
63