AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Page 17
VIÐBYGGINGAR FRA VERKFRÆÐILEGUM
SJONARHOLI
iðbyggingar við mannvirki geta verið af
ýmsum toga. Byggt er ofan á hús.við hlið
þeirra og jafnvel undir þau, brýr eru
breikkaðar, stíflur hækkaðar og svo mætti
lengi telja.
Hér á eftir verður lauslega drepið á ýmsa þætti sem
snerta verkfræðileg úrlausnarefni við viðbyggingar,
einkum þó húsbyggingar.
JARÐVINNA OG UNDIRSTÖÐUR
Þegar byggt er við hlið húsa þarf iðulega að grafa
frá undirstöðum þeirra. Þetta kallar oft á sérstakar
ráðstafanir til að koma í veg fyrir að byggingin hreyfist
og er það gert á margan máta, oftast með því að
steypa súlur eða veggi undir eða utan á undirstöð-
urnar. Sama á við þegar byggt er undir byggingar.
Það er ekki algengt en þekkist þó, sbr. meðfylgjandi
mynd þar sem sprengt er fyrir 7 metra djúpu, 50 m2
lyftu- og stigahúsi undir 4ra hæða byggingu.
Gröftur vegna bygginga getur raskað grunnvatns-
stöðu í grenndinni. Afleiðingar þess geta m.a. verið:
Bílastæði og garðar slga.
Fljótandi gólfplötur í húsum síga.
Síðara tilvikið er ekki algengt en það getur verið afar
óþæilegt ef gólfplatan fer að síga þegar nágranninn
hefur loksins efni á að grafa fyrir bílskúrnum.
BURÐARVIRKI
Við ofanábyggingar skapast aukið álag á burðarvirki
hússins og takmarkar burðarþol oftar en ekki hversu
hátt og úr hverju byggt er. Þannig er algengast að
ofanábyggingar séu úr léttum efnum svo sem stáli
og timbri. Lekahætta á byggingartíma er fylgifiskur
ofanábygginga nema hægt sé að byggja ofan á hús
og loka því áður en eldra þak er fjarlægt. Ein tegund
ofanábygginga er uppbretting þaka og má gera það
á ýmsan hátt. í besta tilfelli er hægt að lyfta þakinu í
heilu lagi og skjóta nýjum útvegg undir sperruenda.
Byggt undir hús.
Opnun milli bygginga getur kallað á sérstakar ráð-
stafanir. Við fyrirhugaða stækkun Laugardalshallar
verða fjarlægðar súlur í öðrum gafli núverandi húss.
Steypa þarf 30 metra langan og allt að 10 metra háan
bita inni í gaflinum til að bera þann hluta hvolfþaksins
sem súlurnar báru áður.
Á byggingarskilum þarf að sjá fyrir nægjanlegum
hreyfimöguleikum með tilliti til þenslu- og jarðskjálfta-
hreyfinga.Gæta þarf vel að hæðarkóta gólfa þar sem
15
GRIMUR JONSSON BYGGINGARVERKFRÆÐINGUR