AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Page 73

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Page 73
Litmynd af miðbæ Reykjavíkur, tekin úr 500 metra hæð 17. ágúst 1994. © LMI \rHrfa ; * ■ «**• -V. L." _ 'WM LOFTMYNDIR Notkun loftmynda er líklega mun meiri meðal almennings á íslandi en þekkist í ná - grannalöndunum. Ástæðurnar má að ein - hverju leyti rekja til þess hve lítið er til af kortum í stórum mælikvarða utan þéttbýlis. Landmælingar Islands, sem taka loftmyndir af íslandi og geyma loftmyndasafn landsins, hafa á undanförnum árum byggt upp öfluga þjón- ustu á þessu sviði. Loftmyndir eru ein meginundirstaða nútímakortagerðar. Þótt upphaflegur tilgangur með tökunni tengist yfirleitt ein- hvers konar kortavinnslu, rannsóknum eða undirbúningi framkvæmda er heimildagildi myndanna oft ómetanlegt þegar til lengri tíma er litið, þar sem með loftmyndum er hægt að bera saman þær breytingar sem verða á yfirborði lands. Allt frá því að farið var að stunda flug í loftbelgjum á seinni hluta síðustu aldar, var farið að taka myndir úr lofti af yfir- borði jarðarinnar, en Ijósmyndatæknin hafði komið fram á fyrri hluta 19. aldar. Með tilkomu fyrstu flugvélanna í byrjun þessarar aldar opnaðist ný leið til að mynda yfirborð lands á skipulegan hátt. Snemma fór að skilja á milli tveggja flokka mynda úr lofti, annars vegar venjulegra Ijósmynda og hins vegar loftmynda sem ætlaðar voru til kortagerðar af yfirborði jarðar. Fljótt sást hve mikið hagræði var að notkun myndanna í hernaði og við kortagerð, en nútímakortagerð byggist enn á svipuðum grunnaðferðum og þróaðar voru á þriðja og fjórða áratug þessarar aldar. Loftmyndir eru notaðar með niðurstöðum landmælinga við kortagerð. Hér á landi hefur ein stofnun það verkefni að taka og varðveita loftmyndir, en algengt er erlendis að frum- filmur séu geymdar hjá fleiri en einum aðila í hverju landi og takmarkaður aðgangur að myndum til almennra nota. Það er því mikill kostur fyrir notendur að geta gengið að heildarsafni mynda af öllu landinu á einum stað. LOFTMYNDATAKA Búnaður til töku, varðveislu og vinnslu loftmynda er mun stærri og dýrari en almennt þekkist í Ijósmyndun. Við loft- myndatöku eru notaðar sérstakar stórar myndavélar sem festar eru við botn sérútbúinnar flugvélar. Flughæð við loft- myndatöku hér á landi getur verið frá 500 metrum til 10 km eftir þörfum notenda hverju sinni. Landmælingar íslands hafa frá 1950 tekið loftmyndir á hverju ári vegna kortagerðar. Loftmyndavél stofnunarinnar ersvissnesk, af gerðinni Wild RC10, keyptárið 1977. Stofn- unin hóf sumarið 1994 samstarf við sænsku landmælinga- 71

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.