AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Side 66
Eitt gróðursælasta hverfi á höfuðborgarsvæðinu er í norðan
verðum Kópavogsdal.
Á skipulagskorti eru greinilega taldar upp þær breyt-
ingar sem gerðar eru frá fyrra skipulagi og auðveldar
það fólki mjög að fylgjast með stefnu bæjarins í
skipulagsmálum. Nýtt skipulag og skipulagsbreyt-
ingar geta haft afgerandi áhrif á gæði og verð fast-
eigna og rekstrarmöguleika fyrirtækja og því skiptir
máli að hlutaðeigandi aðilar geti auðveldlega fylgst
með þeim breytingum sem verið er að gera á ytra
umhverfi og starfsumhverfi þeirra.
Skipulagið var unnið á Bæjarskipulagi Kópavogs af
skipulagsstjóra bæjarins, Birgi H, Sigurðssyni, skipu-
lagsfræðingi, undir yfirumsjón skipulagsnefndar
Kópavogs, en auk þeirra tóku flestar nefndir bæjarins
þátt í verkinu, auk bæjarráðs og bæjarstjórnar.
í ávarpi Sigurðar Geirdals, bæjarstjóra Kópaavogs,
kemur greinilega fram eðli og tilgangur skipulagsins;
þ.e. að „skipulagið sé stjórntæki við markvissa
uppbyggingu öflugs og farsæls mannlífs í Kópavogi
framtíðarinnar." Þessu er fylgt eftir með staðfestingu
á greinargerð sem fylgir skipulaginu þar sem tekinn
er af allur vafi um stefnu bæjaryfirvalda í öllum helstu
málaflokkum. Hér er um mikla framför að ræða í
skipulagsmálum hér á landi þar sem staðfesting
skipulags nær oft eingöngu til skipulagsuppdráttar
og greinargerð er lítið annað en óljósar vangaveltu
þar sem hugur kjörinna fulltrúa fylgir ekki máli.
í greinargerð kemur líka fram skilningur á því a£
skipulagsmál séu í eðli sínu af „pólitískum" toga og
því eðlilegt að skipulag sé endurskoðað eftir hverjar
sveitarstjórnarkosningar, sérstaklega ef breytingar
verða á meirihluta. Þessi háttur hefur víða verið tekinn
upp erlendis og hefur þótt gefast vel þar sem skipu-
lag verður þannig virkara stjórntæki.
Árin 1992-'93 var sú nýbreytni tekin upp að vinna
hverfaskipulag í Kópavogi og var þá unnið hverfa-
skipulag fyrir vesturbæ Kópavogs. Síðastliðið ár var
einnig lokið við hverfaskipulag fyrir austurbæ Kópa-
vogs. Hverfaskipulag er nákvæmara skipulag ein-
stakra bæjarhverfa sem unnið er í kjölfar aðalskipu-
lags. í hverfaskipulagi er gerð fyllri grein fyrir því hvar
breytinga sé að vænta í umhverfi fólks og fyrirtækja
og í hverju þær séu fólgnar. Hverfaskipulag verður
síðan leiðandi fyrir frekara deiliskipulag og fram-
kvæmdaáætlanir sveitarfélagsins.
Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa sett sér það markmið
að þær framkvæmdir sem eru sýndar í hverfaskipu-
lagi séu framkvæmdar næstu 3-5 árin. Til þess að
auðvelda fólki að setja sig inn (þau mál sem verið er
að fjalla um í hverfaskipulaginu og hvetja það til þátt-
Forsíða af hverfaskipulagi.