AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Qupperneq 18
c_
O
z
o
>
T1
c
JJ
O
Þegar talað er um útivist koma upp í
hugann hugtök eins og hreinleiki, holl-
usta og vellíðan. Útivera og holl hreyf-
ing eru mikilvæg heilsu manna. Það að
vera úti við, að stunda göngur, ganga á
fjöll, fara í sund með fjölskylduna, í
hjólreiðatúra, viðra hundinn sinn, eða að skokka
úti og margt fleira er hægt að skilgreina sem
útivist. Þó fer það eftir hverjum og einum hvernig
hann skilgreinir hugtakið. En einu er þó hægt að
halda fram með nokkurri vissu að stöðugt fleiri
kjósa að vera úti í náttúrunni og anda að sér fers-
ku heilnæmu lofti með angan af gróðri, söltum sæ
og nánasta umhverfi og upplifa „andartakið". Því
er mikilvægt að fólki gefist kostur á að njóta nátt-
úrunnar hvar sem er. Því er góð aðstaða til útivist-
ar nauðsynleg okkur öllum.
ÚTIVISTARSVÆÐI
Útisvistarsvæði eru af ýmsum toga. Á undanförn-
um árum hefur verið unnið ötullega að því í Kópa-
vogi að bæta aðstöðu og aðgang bæjarbúa til úti-
vistar á ákveðnum svæðum í bænum. Sum þeirra
eru smá og önnur stór og víðfeðm. Flest svæðin
sem eru innan bæjarmarkanna eru hönnuð á þann
hátt að þau henta vel ákveðnum þáttum útivistar.
Sama má segja um þau íþróttamannvirki sem
byggð hafa verið á þessum tíma. Þau hafa verið í
ríkari mæli hönnuð með hagsmuni og notkun hins
almenna bæjarbúa í huga. Svo eru útivistarsvæði
utan bæjarmarkanna sem eru nær því ósnert, eins
og náttúran skóp þau í fyllingu tímans, og eru vin-
sæl til útivistar svo sem Heiðmörk og Bláfjalla-
fólkvangur. Þá eru Kópavogs- og Fossvogsdalur
sem liggja beggja vegna bæjarins hvor um sig al-
veg einstakar náttúruperlur.
MIÐSTÖÐ HOLLRAR HREYFINGAR
Nú skulum við bregða okkur í útivistarferð um
Kópavoginn. Við hefjum ferðina við miðstöð al-
menningsíþróttanna í bænum, Sundlaug Kópa-
vogs. Sundlaug Kópavogs stendurá Rútstúni. Það
er eina græna svæðið í vesturbæ Kópavogs. Það
var rétt fyrir 1960 sem það var gert að fyrsta al-
menningsgarðinum í vesturbænum. Undanfarin ár
hefur staðið yfir endurbygging svæðisins og er þar
nú opið nýtt leiksvæði, púttvöllur og sleðabrekka.
Sundlaug Kópavogs er útivistarperla sem stöðugt
fleiri bæjarbúar sækja að staðaldri. Sund er iðkað
að mestum hluta í útilaugum á íslandi og eingöngu
hér í Kópavogi. Því vel ég að skilgreina það sem
útivist í þessari grein. Jafnframt því að stunda
16