AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Side 25
FÉLAGSLEG AÐSTAÐA
e dri borgara
í Kópavogi
élagsstarf eldri borgara í Kópavogi
byggir á traustum grunni sem lagður var
fyrir hart nær þrjátíu árum. Þó má segja
að brotið hafi verið blað í sögu félags-
starfsins með opnun fyrsta félagsheim-
ilisins, Gjábakka, sem sérstaklega var
ætlað eldri borgurum. Gjábakki var opnaður á vor-
dögum 1993 og um leið var félagsstarfið endur-
skoðað, starfsemin stokkuð upp og færð í það horf
sem hún er í dag. Síðan hefur mikið vatn runnið til
sjávar og það má í raun segja, að öðrum bæjar-
félögum ólöstuðum, að Kópavogsbær hefur verið
frumkvöðull í nýjum áherslum og viðhorfum í
félags- og tómstundastarfi aldraðra enda hafa
önnur sveitarfélög sótt margt í smiðju Kópavogs-
bæjar hvað það varðar. Það má segja að breyting-
in frá því sem verið hafði hafi einkennst af því að
virkja eldri borgara meira en verið hafði og láta þá
hafa meira um starfseminna að segja. Kallað var
eftir þeirra hugmyndum um skipulagningu og fram-
boð og þeir hvattir til að sýna frumkvæði. Það er
skemmst frá því að segja að það tókst vonum
framar og það leið ekki á löngu þar til Gjábakki var
orðinn of lítill fyrir starfsemina sem þar fór fram.
Því var það að ráðist var í að byggja annað félags-
heimili í Gullsmára og var það opnað í desember
1997. Samtals er því um að ræða um 1300 fm
gólfrými sem ætlað er fyrir félags- og tómstunda-
starf eldri borgara. Félagsheimilin eru bæði vel
útbúin tækjum og þar er boðið upp á margvísleg
námskeið auk leikfimi og handmenntar. Að meðal-
tali er boðið upp á um 20 námskeið í það heila
vikulega og er fjöldi þeirra sem þau sækja um 120
manns að meðaltali.
Ávallt hefur verið lögð mikil áhersla á mikilvægi
hreyfingar fyrir eldri borgara og er boðið upp á leik-
fimi í báðum félagsheimilunum. Auk þess stendur
eldri borgurum í Kópavogi til boða að sækja sund-
laug Kópavogs endurgjaldslaust. Þar hefur félag
eldri borgara í Kópavogi komið inn starfsemi og
bjóða þeir upp á sundleikfimi þrisvar í viku. í
framhjáhlaupi má líka nefna að Kópavogsbær er
eina sveitarfélagið á landinu sem greiðir fyrir
sjúkraþjálfun ellilífeyrisþega.
Eins og áður segir hafa eldri borgarar í Kópavogi
verið hvattir til að koma hugmyndum og óskum
sínum á framfæri og koma þeim í framkvæmd,
gjarnan með aðstoð starfsmanna félagsheimil-
anna. Nú hafa um tuttugu sjálfsprottnir áhuga-
mannahópar aðstöðu í félagsheimilunum auk
félags eldri borgara og frístundahópsins Hana-nú.
Frístundahópurinn Hana-nú, en þar geta allir tekið
þátt sem náð hafa 50 ára aldri, hefur tekið sér
margvísleg verkefni fyrir hendur. Hér má nefna
starf gönguhóps, bókmenntaklúbbs, heimsóknir á
margar menningarstofnanir, ferðir í leikhús og ótal-
margt annað sem allt of langt mál er að telja upp
hér. í Hana-nú höfuðáherslan á frumkvæði aldr-
aðra sjálfra og hefur starfsemin allt frá upphafi
verið mjög blómleg enda hefur hróður þeirra
spurst út víða um og æ fleiri sækja hugmyndir til
Hana-nú þegar kemur að því að útfæra hug-
23
BRYNHILDUR BARÐADÓTTIR