AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Qupperneq 30

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Qupperneq 30
LÓÐ OG UMHVERFI Lóöin er staðsett á besta staö í Kópavogsbæ og í miöju höfuöborgarsvæöisins. Meginumferðar- æðar meö greiöum aökomum liggja að lóöinni. Hún er hluti af nýju miösvæöi Kópavogs, meö undirgöngum undir Reykjanesbraut og göngubrú yfir í Smáralind, fyrirhugaöa nýja verslunar- miöstöö, sem rísa á handan Fífuhvammsvegar. Smáratorg er einnig í góöum tengslum viö stór ný íbúðarsvæði í næsta nágrenni. Þaöan veröa greiöar gönguleiöir aö verslun og þjónustu í Smáratorgi. Byggja má fleiri hús á lóðinni. Þær byggingar yröu þó minni en núverandi hús og verður Smáratorg 1 aöalbygging svæðisins. Bílastæöi yröu að stórum hluta neöanjarðar í þeim húsum sem eftir er aö reisa. Mikil áhersla er lögö á fallegt ytra umhverfi Smáratorgs. Vel hönn- uö og frágengin lóö fegrar mjög umhverfi hússins. BYGGINGIN Við hönnun Smáratorgs var leitast viö aö koma sem best til móts viö markmið eigenda og þeirrar starfsemi sem þar er. Húsiö er stórt meginform sem opnast á móti aöalaökomuleiöum og á aö endurspegla stórmarkaöshugmyndina. Byggingin er einföld en brotin upp meö útbyggðum gluggum, útbyggingum, léttu glerskyggni og í litavali. Hagkvæmni og hóflegur byggingakostnaöur var hafður aö leiöarljósi. Viö val á byggingarefnum ut- anhúss var tekið mið af lágmarksviöhaldi. Uppbygging hússins er einföld. Miöhlutinn á tveimur hæöum er fyrir minni verslunar og þjón- ustufyrirtæki. Til hvorrar handar viö hann eru stór- ar álmur meö mikilli lofthæð og sveigjanleika í niöurrööun rýma. Undir hluta hússins er kjallari og opin bílageymsla. Úr bílageymslu má komast beint út á aðkomutorg eöa inn í miðhluta hússins. Ein af forsendum hönnunar voru súlulausar álmur fyrir stórmarkaðina. Aöalburöarkerfi hússins eru íslenskir límtrérammar en stálburöarvirki komu einnig til greina. Undir byggingunni er steyptur kjallari og einnig er stór hluti miðhússins steyptur. Öll milligólf eru úr íslenskum forsteyptum rifja- og holplötum eða staösteypt. Aðrir veggir eru stál- og timburveggir. Þakiö er timburþak. Húsiö er aö stærstum hluta klætt meö lituðu íslensku bárustáli og einnig sléttum álplötum til þess aö brjóta upp fleti hússins. Gluggar eru timburgluggar meö ál- listum eöa álgluggar. Allar huröir eru úr áli. í Smáratorgi 1 eru mörg fyrirtæki. Stórmarkaöirnir eru í álmunum. Þaö eru Hagkaup, Rúmfatalag- erinn og ELKO. í miðjunni eru Búnaöarbankinn, gleraugnaverslunin Ég C, Heilsuhúsið, APÓTEK- IÐ, Nýja Kökuhúsið, te- og kaffiverslunin Wittards of London, veitingastaöirnir Jarlinn og Rikky Chan og ísbúöin ÍSSEL, auk læknamiöstööva á efri hæö. Öll þessi fyrirtæki mynda eina heild, verslu- narmiöstööina viö Smáratorg 1. HÖNNUN OG FRAMKVÆMD Þegar reisa á stórt mannvirki sem Smáratorg á stuttum tíma skiptir markviss hönnun og fram- kvæmd miklu máli. Þar þurfa margir aö leggja hönd á plóginn til þess aö leysa vandasamt verkefni á stuttum tíma. Takmarkiö er þaö sama hjá öllum. Aö byggja gott mannvirki fyrir blómlega verslun og þjónustu. Mikil og góð samvinna var á milli okkar arkitekta og eigenda hússins frá byrjun til loka byggingarinnar, sem og viö fyrirtækin sem í húsinu eru. Aö hönnun Smáratorgs komu margir sérhönnuöir á sínum sviöum. Samvinna allra hönnuöa var mikil og nauðsynleg, ekki síst vegna þess aö húsiö er hannað og byggt samtímis. Aö þessu viðamikla verki kom einnig byggingastjóri á veg- um Smáratorgs til þess aö annast verkstjórn og flókin framkvæmdamál viö bygginguna. Fjölmargir verktakar hafa komiö aö verkinu undir stjórn eins aöalverktaka og lagt sitt af mörkum til þess aö annast framkvæmdir viö bygginguna og lóöina. Mikil samræming á verkþáttum hefur hvílt á herðum þessara aöila, hönnuöa og bygginga- stjóra til þess aö hægt yröi aö byggja húsiö á eins stuttum tíma og raunin er eöa á rúmum 12 mán- uðum. Samskipti viö bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa veriö eins og best verður á kosið. Skilningur þeirra á eöli verksins og afgreiösla allra mála hefur gengiö mjög vel og góöur meðbyr veriö meö byggingu Smáratorgs. ■ Verkkaupi: Smáratorg ehf. Arkitektar: Arkitektar TT3 í samstarfi við ARKÍS ehf. og Arkitekta og ráðgjafa ehf. Burðarþol og lagnir: Verkfræðistofan Ferill. Raflagnir: RTS Raftæknistofan. Loftræstilagnir: Ólafur Þorbjörnsson, Tækniþjónustan. Lóðarhönnun: Pétur Jónsson landslagsarkitekt. Byggingastjórn: Verkfræðiþjónusta Magnúsar Bjarnasonar. Aöalverktaki: ÁHÁ Byggingar. 28
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.