AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Page 32
JAKOB E. LÍNDAL/KRISTJÁN ÁSGEIRSSON, ARKITEKT
MENNINGARMIÐSTÖÐ KOPAVOGS
Útlitsmynd, séö frá tjörn. Tölvugrafík Onno ehf.
ugmynd aö Menningarmiðstöð í
Kópavogi kviknaði árið 1993. Arki-
tektastofunni var falið að gera rýmis-
áætlun fyrir tónlistarskóla, bókasafn,
myndlistarskóla, náttúrufræðistofu
og skiptistöð fyrir almenningsvagna.
Útgangspunktur okkar var að kanna samnýtingar-
möguleika þessara stofnana. Það sem þær eiga
sameiginlegt er m.a. að:
I vera tengdar menningarstarfsemi
I geta auðgast á nálægð hver við aðra
I gefa aukinn möguleika á samvinnu og blöndun
sviða á milli
Meginmarkmið varð síðan það að sýna fram á að
stofnanir þessar gætu sparað sér rými á nálægð-
inni hver við aðra. Bókasafnið og Náttúrufræði-
stofa eiga t.d. það sameiginlegt að vera söfn með
svipaðan opnunartíma, uppbyggingu og afgreiðslu
og sýningarpláss þeirra og geymslur geta fallið
saman að einhverju leyti. Tónlistar- og myndlistar-
skólinn áttu að geta samnýtt kennsluherbergi auk
þess að vinna saman þverfaglega. Báðar hafa
þessar stofnanir þörf fyrir stóran sal og báðar njóta
góðs af nálægð við bókasafn og náttúrufræðistofu.
Þannig getur nettórými hverrar stofnunar fyrir sig
orðið stærra hlutfallslega heldur en ef hver þeirra
væri sér í húsnæði og þannig getur brúttóstærð
þessara stofnana verið minni með sömu nýtingu.
Niðurstaða okkar var því sú að með þessu sam-
krulli menningarstofnana fengist:
I þverfagleg samvinna
I aukin fjölbreytni
I minni brúttóstærð byggingar
I meiri nettóstærð stofnana
Samtenging þessara stofnana átti að vera um yfir-
byggða skiptistöð almenningsvagna einmitt með
30