AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Page 43
ormu
fjórum hurðum sem gefur möguleika á að nota
bakgarðinn sem hluta af húsinu. Glerþak er sett
yfir hurðirnar tii að hlífa þeim við ryki og stöku
rigningu. Flest allir milliveggir í gamla húsinu voru
teknir niður og einungis útveggir skildir eftir með
arninum sem látinn var standa frítt í miðju húsinu.
Á arninum má sjá lög af málningu og veggfóðri
sem notað hefur verið síðan húsið var byggt.
Þegar upp er staðið passar arininn nokkuð vel við
listaverk eigandans. Allt húsið er opnað eins og
hæft er. Hjónaherbergið og eldhúsið eru opin og
hluti af stofunni sem gerir það að hægt er að nota
allt húsið þegar eigandinn heldur samkvæmi, sem
hann gerir oft. Gluggar eru settir hátt til að ramma
himininn, loftgluggum bætt við til að leyfa náttúru-
legu Ijósi að flæða inn. Sterkir litir sem njóta sín
sérstaklega vel í veðurfarinu í LA eru notaðir til að
leggja áherslu á ákveðna hluti og gefa rýminu
sérstaka eiginleika. Frá rúmi eigandans má sjá
allt húsið, eða eins og hann sagði sjálfur: „Stund-
um, þegar ég ligg í rúminu þá get ég fylgst með
flugumferð eða hreyfingu stjarna og tunglsins í
gegnum hinar ýmsu stærðir af gluggaopum sem
er að finna í kringum rúmið. „it's like living in a
lighthouse." ■
^°rft á glugga, sem hannaður er til að sitja í, (190cm x190cm) til
esturs eða til að njóta útsýnisins. Stigi á að vera á veggnum til að
°rnast upp í gluggann. Listaverk: mynd eftir LA listamann John
ltl' stóll og skúlptúr eftir Seattle listamann Mike De Voe.
Elevation
01 3
lOfeet
Horft á eldhúsið. Innréttingar úr gulum „Fyn-Plywood“,
smíöaöur af eiganda.