AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Page 57

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Page 57
og byggð tók að þróast hratt og óskipulega til austurs. Við lok 20. aldar nær hún að mörkum Mosfellsbæjar í norðri, að mörkum Kópavogs í suðri og í austri að náttúrulegum mörkum heiða- landa og vatnasvæða. Við lestur eldri aðalskipu- lagstillagna fyrir höfuðborgina verður Ijóst að það er bókstaflega hluti af stefnu ráðamanna á undan- förnum áratugum að þynna byggðina. Samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur til ársins 2016 er gert ráð fyrir að byggilegt land innan marka Reykja- víkur verði að fullu nýtt á skipulagstímabilinu. í stríðslok sneru ráðamenn borgarinnar baki við vandamálum eldri borgarhluta og skildu þá eftir án nothæfrar forsagnar um endurnýjun og upp- byggingu. í staðinn tóku þeir til við að sólunda dýr- mætu byggingarlandi Reykjavíkur á báðar hendur í ábyrgðarlausum skipulagsleik upp í heiðarlönd- in. Og viðbrögð núverandi ráðamanna við yfirvof- andi landleysi höfuðborgarinnar er innlimun Kjal- arneshrepps til að leysa bráðavanda Reykvíkinga varðandi byggingarlóðir. í skipulagsákafa undangenginna áratuga hafa ráðamenn slegið um sig með dulmögnuðum nýt- ingartölum sem þeir telja að sé sjálfkrafa ávísun á góða byggð. í skipulagsvinnunni hefur það of oft verið formsatriði eitt fyrir fagmennina að fylla út í byggingarlandið með stimplum þeirra þriggja eða fjögurra byggingarforma sem gjaldgeng eru á ís- landi í þeim hlutföllum sem byggingarverktakar telja að séu besta söluvaran á fasteignamarkaði hverju sinni. FLUGVÖLLUR Flugvöllurinn í Vatnsmýri gengur eins og fleygur djúpt inn í borgina á viðkvæmasta stað og nær yfir rúmlega helming nessins. Svæðið innan flugvall- argirðingar er 142,5 ha og ámóta stórt svæði utan girðingar fer forgörðum vegna nálægðar við hann. Flugvöllurinn var sá fleygur sem klauf Kópavog frá Seltjarnarneshreppi 1948 og leiddi þannig til uppbyggingar þriggja kaupstaða á litlu svæði í stað eins. Flugvöllurinn hindrar nauðsynlega uppbyggingu stofnbrautakerfisins vestur nesið. Hann tekur upp verðmætasta landið innan borgarmarkanna fyrir íbúðabyggð, útivist og miðborgarstarfsemi. Slysahætta og mikil hávaðamengun frá honum hafa frá upphafi rýrt gildi miðborgarsvæðisins verulega, dregið úr eftirspurn eftir aðstöðu fyrir miðborgarstarfsemi, leitt til lægra fasteignaverðs og almennt stuðlað að hnignun svæðisins. Hæðartakmörk mannvirkja í aðflugslínum hefta uppbyggingu t.d. í Kvosinni. Loftmengun er veru- leg og sérlega áberandi við flugtak frá norðurenda NS brautar þegar útblástur berst beint niður í Kvosina um Hljómskálagarðinn og tjarnarsvæðið. Slysahætta og mengun af Reykjavíkurflugvelli hafa rýrt mjög gildi stórra íbúðarsvæða og stuðlað að lægra fasteignaverði þúsunda eigna í Skerja- firði, Vesturbæ, Kvos, Þingholtum, Hlíðum, Foss- vogi og Vesturbæ Kópavogs. Sjónmengun af flugvellinum og mannvirkjum við hann hefur neikvæð áhrif á allt umhverfi á veru- legum hluta borgarlandsins vestan Elliðaáa. Hávaðamengun við aðflugslínur flugvallarins rýrir verulega gildi allflestra útivistarsvæða. Allt frá því að flugvöllurinn var afhentur íslend- ingum til eignar árið 1946 hefur hann verið hluti af heildarrekstri Flugmálastjórnar. Reykjavíkurflugvöllur er ekki lögaðili og hefur því ekki eigin kennitölu. Hann hefur ekki flugvallar- stjóra, blaðafulltrúa, yfirmann öryggismála né nokkurn annan starfsmann í fullu starfi. Hann hefur ekki skráð símanúmer. Á þennan hátt hefur flugvöllurinn verið ósnertanlegur öllum þeim þús- undum, sem daglega finna fyrir neikvæðum áhrif- um af nábýli við hann. Vitað er að áður en varir verður hafist handa um að einkavæða rekstur flugvalla hér á landi enda umræða um slíkt þegar hafin. Ljóst er að frá fyrsta degi verður enginn friður um einkarekstur 55

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.