AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Page 59

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Page 59
Talið er að árlegur heildarkostnaður íslendinga af einkabílaumferð sé á annað hundrað milljarða- króna. Annar vítahringur sem minna er talað um er til kominn vegna mikillar stækkunar hins opinbera rýmis innan borgarmarkanna. Á bak við hvern hektara af akbrautum, gangstéttum, bílastæðum, aðlögunarsvæðum og þess háttar eru stöðugt færri borgarbúar. Þannig hefur fjármagn og tími til nauðsynlegs viðhalds, endurbóta og þrifa í opin- bera rýminu minnkað ár frá ári áratugum saman. Umhverfisgæðin minnka hægt og sígandi. Þetta leiðir til minnkandi virðingar borgaranna fyrir hinu byggða umhverfi og stuðiar að stöðugt meiri sóðaskap og hirðuleysi á almannafæri. Um þetta leyti árs er dapurlegt um að litast í men- ningarborginni 2000. Þar er allt á kafi í rusli hvert sem litið er og yfir öllu er þykkt lag af asfaltryki því að auki er allt yfirborð gatnakerfisins ein rjúkandi rúst eftir enn einn vetur gegndarlausrar misnotkunar á nagladekkjum. HNINGNUN MIÐBORGARINNAR Splundrun á miðborgarstarfsemi er vel þekkt í Reykjavík. Strax eftir seinna stríð stöðvaðist öll þróun á miðborgarsvæðinu. Það hætti að taka við nýrri og aukinni miðborgarstarfsemi stækkandi byggðar og á áratugunum síðan hefur miðborg- arstarfsemi dreifst á óskipulegan og óskilvirkan hátt út um alla byggðina með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Ráðamenn hafa á s.l. 50 árum ekki tekist á við skipulagsvanda eldri borgarhluta í Reykjavík. Því eru þessi svæði án nothæfrar for- sagnar um nauðsynlega endurnýjun og uppbygg- ingu. Þar ríkir því stöðnun og niðurníðsla. í umræðum um vanda þessara svæða myndaðist fljótt tómarúm vegna þagnar ráðamanna og fag- aðila um raunveruleg úrræði til framtíðar. í þessu tómarúmi hafa verndunarsinnar haslað sér völl með tillögum um meiriháttar varðveislu húsa, húsaraða og heilla reita í „upprunalegu“ horfi. í öllum eldri borgarhlutum býr fjöldi Reykvíkinga við eins konar átthagafjötra því eignir þeirra eru illseljanlegar vegna ástands í skipulagsmálum svæðanna. Og þó ættu þessar eignir sannarlega að vera verðmætari en ella vegna legu sinnar í borginni, ef allt væri með felldu. Rekstrarskilyrði almenningssamgangna munu halda áfram að versna. í dag er reynt að halda uppi ódýru kerfi með mjög lágri ferðatíðni sem nær einungis þjónar börnum og öldruðum en Byggðarþróun í vesturborginni: miöborgarbyggö viö Akurey, stórskipahöfn viö Engeyjarsund, lysti- lón viö Seltjarnarnes, miöborgarbyggö í Vatnsmýri og nýr flugvöllur á Skerjafirði. þessi þjónusta virðist fjarlægjast óðfluga það markmið að ná til ört stækkandi hóps ökumanna einkabíla. Þétt byggö noröan Sæbrautar, Sæbraut noröan gömlu hafnar- innar og miöborgarbyggö viö Akurey í fjarska. Horft til vesturs. ..- ---C-—-_ 57

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.