AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Síða 60

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Síða 60
ANDÓF GEGN AÐALSKIPULAGI Áriö 1988, þegar staöfesting aöalskipulags Reykjavíkur 1984-2004 stóö fyrir dyrum, reyndu Þorsteinn Magnússon og undirritaöur aö vekja athygli ráöamanna á mikilvægi landfyllingar viö Akurey og á legu nýrrar stofnbrautar yfir hafnar- mynniö í staö vafasamrar útfærslu Geirsgötu í núverandi mynd. Af því tilefni kom fulltrúi þýska stálfyrirtækisins Thyssen AG til Reykjavíkur. Fyrirtækið geröi frumtilboð í smíöi vindubrúar yfir hafnarmynniö. Áhugi ráöamanna var enginn. VALKOSTUR í BYGGÐARPRÓUN Miöborgarsamtökin, Sigurður Kolbeinsson arki- tekt og undirritaður geröu á s.l. ári rökstuddar athugasemdir viö tvö atriöi í aðalskipulagi Reykja- víkur 1996-2016, m.a. til að vekja athygli ráöa- manna á þeirri háskalegu þróun sem hér er um rætt. Fyrri athugasemdin sneri aö þeirri ákvöröun ráðamanna aö festa Reykjavíkurflugvöll í sessi um ókomin ár í Vatnsmýrinni og sú síðari aö ákvörðun um aö efla uppbyggingu olíuhafnar í Örfirisey. Samhliða athugasemdunum lögöu þessir aðilar fram tillögu aö byggingu nýrrar aðstööu fyrir Reykjavíkurflugvöll á landfyllingu á Lönguskerjum í Skerjafirði, tillögu þess efnis aö skipulagt veröi íbúðar-, útivistar- og miöborgarsvæöi á núverandi flugvallarsvæöi í Vatnsmýri og aö lögö verði drög aö upp- byggingu íbúðar- og miöborgarsvæöis á landfyllingum viö Hólma og Akurey. TILLÖGUR í einstökum atriöum eru þessar tillögur ekki nýjar af nálinni. Áriö 1975 lögöu Trausti Valson arkitekt og aörir fram tillögu að nýjum flugvelli í Skerjafirði og um svipaö leyti lögöu forsvarsmenn Björgunar hf. fram hugmynd aö landfyllingu norövestan Örfiriseyjar. Áriö 1996 vann Siguröur I. Kolbeinsson tillögu aö alþjóölegum flugvelli í Skerjafirði í lokaverk- efni sínu frá arkitektaháskólanum í Vín. Listamaðurinn Þóröur Ben og fleiri hafa m.a. varpaö fram hugmynd aö vegtengingu frá Reykjavík yfir Skerjafjörö aö Álftanesi. Sú staðreynd aö mætir menn hafa fengið svipaöar hugmyndir styrkir okkur í þeirri trú aö þær séu athugunarverðar. Það sem viö teljum aö sé nýtt er samtenging einstakra þátta og aölögun aö núverandi borgarmynd. Aöstandendur þessara tillagna hafa sett sér þaö markmið aö miöborgin veröi aftur og um ókomna tíð verðug miöstöö íslands í menningu, stjórn- sýslu og viðskiptum og jafnframt aö Reykjavík veröi höfuöborg Noröur-Atlantshafsins. Til þess aö svo megi veröa þarf aö umbylta stefnu ráöa- manna í skipulagsmálum. Tilgangur með þessum tillögum er aö sporna gegn hálfrar aldar öfug- þróun í byggðarmálum höfuöborgarinnar, aö sporna gegn því að miðborgarsvæðið koöni niður og að stuðla að uppbyggingu miöborgar meö góðum þróunarmöguleikum til allra átta. Meginforsenda tillaganna er aö mestöll byggöar- þróun Reykjavíkur næstu áratugi eigi sér staö vestast í borginni. Gert er ráö fyrir verulega þéttri miðborgarbyggð á landfyllingum viö Akurey og Hólma. Landfyllingarnar mynda ásamt strand- lengju Seltjarnarneskaupstaðar hringlaga lón eöa höfn, sem er um 1200 m aö þvermáli. í jaöri lóns- ins í um 100 m fjarlægð frá landi er reiknað meö 6 - 8 eins hektara eyjum meö mjög þéttri og vand- aöri byggö, t.d. í formi háhýsa eða skýjakljúfa. Markmiðið er að sem flestir geti notið þeirra gæöa aö búa meö útsýni viö sjávarströnd. Gert er ráö fyrir sambærilegu fyrirkomulagi norö- an við Sæbraut. og í Vatnsmýri. Að auki er lagt til aö öll gamla höfnin veröi felld inn í miðborgar- svæöiö og hafin þar upp- bygging íbúöarsvæöa og miðborgarstarfsemi í nánu sambýli viö áfram- haldandi hafnarstarf- semi, sem meö ári hverj- u verður stööugt þrifa- legri. í kjölfar athugasemda viö aöalskipulag Reykjavíkur 1996-2016 hafa miö- borgarsamtökin og undir- ritaður lagt fram allítar- legar tillögur aö upp- byggingu og þróun í Kvosinni, umhverfis Laugaveg og á aðliggj- andi svæöum. Þessar tillögur lúta aö bættum samgöngum aö og frá miöborgarsvæöinu, fjölgun bílageymsluhúsa á jöörum þess, nýju kerfi almenningssamgangna innan þess, umfangsmikilli uppbyggingu íbúöar- og atvinnuhúsnæðis á lykilstöðum víöa á svæöinu og breyttri landnotkun á neöri hæöum eldri bygg- inga. ■ Tilgangur með þess- um tillögum er að sporna gegn hálfrar aldar öfugþróun i byggðarmálum höfuðborgarinnar, að sporna gegn því að miðborgar- svœðið koðni niður og að stuðla að uppbyggingu miðborgar með góðum þróunar- möguleikum til allra átta. 58

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.