AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Síða 30
Staðurinn
Meðalfell að sumri / in summer
35 km frá austurbæ Reykjavíkur.
Stærðin passaði við þær hugmynd-
ir sem við höfðum haft, eitthvað
nálægt 4 ha.
Lega lóðarinnar er góð, staðsett
við Laxárvog í Hvalfirði, liggur frá
aðalvegi í aflíðandi halla niður að
sjó og tveir lækir beggja vegna við
hana. Náttúrlegur gróður er mest
mosi og lyng í þúfóttu yfirborði.
Fuglalíf er fjölskrúðugt og sjá má
stöku sel í voginum. Jafnframt sést
hér lax stökkva upp úr sjó á sumrin
og seiði eru í báðum lækjum.
Eftir að hafa búið erlendis í mörg
ár við nám og störf í misstórum
borgum og oftast í eða við mið-
svæði þeirra borga þá var ekki um
eiginlegan miðbæ að velja þegar
heim var komið. Miðborgarlífið
hafði átt vel við okkur en í upp-
hafi búskapar hér heima var flutt á
Melana í Reykjavík og dvalist þar í
nokkur ár. Þegar farið var að huga
að stækkun húsnæðis var alltaf
áhugi á því að byggja sér hús á
stað sem hafði áhugaverða eigin-
leika fyrir einbýli. Strax kom í Ijós að
þau nýbyggingarsvæði sem buðust
innn H.borgarsvæðis voru öll keim-
lík, lóðir frekar litlar fyrir einbýli, lág-
marksfjarlægð milli húsa innan við 5
metra.hæðir eru skilgreindar ásamt
stefnu og aðkomu að húsi. Þessar
takmarkanir þóttu okkur ekki við
hæfi og leituðum við út fyrir borgar-
mörkin, vorum til í örlitla sveit, ein-
hversstaðar.
Það var svo að spilda fannst í
hentugri fjarlægð frá höfuðborginni,
nánar tiltekið í Kjósarhreppi um
Húsið
Það var augljóst að við vorum að
mæta á svæði sem hafði legið
ósnert um aldir, hér hafði engin
ræktun farið fram né hafði þetta
svæði verið hentugt til beitar og
annað sem stóðst væntingar var að
engin tré voru á svæðinu.
Conseptið að húsinu kom fljótt
þar sem rými fyrir form og legu
húss var algjört. Þó var unnið lengi
vel með mismunandi forsendur við
hönnun og þó nokkrar tillögur unnar.
Það var ákveðið að takast á við
lengdina og hið manngerða form
sem oftast einkennist af hvössum og
beinum línum. Þó er vísir að átökum
milli náttúru og hins manngerða þar
sem út úr húsinu togast fyrirbæri
Meðalfell að vetri / in vinter.
Húsið í umhverfinu / The house in the eviroment
30 avs