AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Síða 61

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Síða 61
t.d. farartæki. Þessi tækni var tals- vert almenn þegar fyrir 20. öldina og notuð m.a. til að knýja lestir, en hún hefur vikið fyrir annarri tækni. Franski verkfræðingurinn Guy Negre hóf hins vegar fyrir nokkru þróun á bílvél sem er mikil nýjung á þessu sviði og hefur vakið mikla athygli erlendis að undanförnu. Hún er knúin af lofti sem er þjappað saman í geymi með rafmagni. Þessi vél getur knúið 5 sæta bíl allt að 200 km án endurhleðslu, en vega- lendin fer mikið eftir ökuhraða. Þetta er meira en flestir bíleigendur keyra daglega, t.d. á höfuðborgarsvæðinu. Geymarnir eru 90 I og úr trefjaplasti, sem þegar eru notaðir fyrir jarðgas (metan) og þola 300 bara þrýsting og eru því taldir vera alveg öruggir, líka við árekstur. Nú er búið að hanna einkabíl, leigubíl, sem tekur 5 farþega, pallbíl og sendiferðabíl. Það er hægt að nota t.d. bensín, dísilolíu eða gas sem viðbótarorkugjafa og orkan, sem myndast þegar bremsað er, er notuð til að bæta lofti á tankinn. Loftfylling á tankinn tekur 2 mínútur á loftþjöppunarstöð en einnig er hægt að stinga honum í samband á heimili eða vinnustað, en þá tekur hleðslan um þrjár klst. Loftþrýstivél er mun léttari en venjulegar bílvélar og ódýrari í fram- leiðslu og rekstri. Hönnuðir bílsins segja að orkunýting sé 70 - 80%. Þannig verður orkukostnaður minni en ein króna á hvern ekinn kílóm- etra. Afl vélarinnar er um 25 kW við 3500 snún/mínútu og uppgef- inn hámarkshraði er 110 km/klst. Vélarnar menga auk þess mun minna en þegar þær ganga fyrir venjulegum orkugjöfum og ekki neitt þegar þær ganga fyrir þjöppuðu lofti. Bílarnir eru mjög léttir þar sem grindin er úr áli, húsið úr trefjaplasti og vélin mjög létt. Rafkerfi bílsins er þannig úr garði gert, að það noti sem minnsta orku. Reiknað er með, að söluverð bílsins verði um 800.000 kr. Loftmengun á höfuðborgar- svæðinu er oft yfir viðmiðunar- mörkum til að uppfylla skilyrði til að vera umhverfisvænt. Þar voru talin árið 1998 um 87.000 bensínknúin ökutæki, sem notuðu um 87.000 tonn af bensíni, sem skilar sér í um 200.000 tonnum af koldíoxíðmeng- un. Ef skipt væri út 20.000 bifreiðum í stað þeirra bensínknúnu, þá gæti koldíoxíðmengunin minnkað um 60.000 tonn, sem dygði til að upp- fylla umtalin skilyrði og gera höfuð- borgarsvæðið umhverfisvænt að þessu leyti. Stefna hönnuða bílsins er að selja framleiðsluleyfi til að framleiða þá í smáum verksmiðjum, af stærð (3.000 bílar á ári), sem vel kæmi til greina hér á landi. Notaður er adiabatískur ferill í vélunum, sem leiðir til þess að við útþenslu loftsins verður útblástur þess sem er hreint loft um - 15 C° kalt. Þetta leiðir hugann að því, hvort svona véltækni myndi ekki henta mjög vel fyrir fiskibáta og fiskiskip, þar sem loftþrýstitönkunum yrði komið fyrir í holrýmum fyrir ofan kjöl skipanna og útblásturinn notaður til að kæla aflann. Það er stórmál á íslandi að nota rafmagn í stað olíu til að knýja farar- tæki og skip, bæði til að lækka kost- nað og skapa öryggi í rekstri. Bíllinn á að fara í framleiðslu í desember 2004, en þegar er búið að panta 15.000 bíla. Æskilegt er að fá til íslands 5-10 bíla til prófunar sem allra fyrst, en beinir hagsmunaaðilar hér á landi væru: rafveitur, sveitar- félög, FÍB, Umferðarstofa, stórir mengunaraðilar svo sem álver og svo náttúrlega allur almenningur. ■ Ecological cars - The vehicle of the 21 st century? Ásgeir Leifsson, Engineer During the last months we have been reminded of how our economic system is sensitive to increasing oil prices. The use of oil products in lceland is all together some 800,000 tons a year made up of three main parts; fuel for cars, ships and air- planes. The price of oil products has increased a lot recently and most factors indicate that this develop- ment will continue. Oil will be used up within a few decades and it can be considered a crime against coming genera- tions to burn this valuable material in engines that only return 20% efficiency. As a result many peo- avs 61
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.