Almanak skólabarna - 01.01.1952, Blaðsíða 30
28
Gróðursetning trjáplantna.
1) Látið rætur trjánna aldrei þoma. Vökvið
þær í umbúðunum, ef að þær þorna um of,
en látið þær þó ekki standa í vatni.
2) Ef geyma þarf plöntur í nokkra daga er
bezt að taka þær úr umbúðunum og grafa
ræturnar í mold, án þess þó að greiða plönt-
umar i sundur. Látið þær á slcuggsæla
staði.
3) Hristið aldrei rætur plantnanna, og farið
varlega með þær.
4) Stingið vel upp áður en plantað er og berið
helzt nokkuð af húsdýraáburði í moldina, og
blandið honum vel saman.
5) Setjið plönturnar aldrei dýpra í jörð, held-
ur en þær hafa staðið áður.
6) Greiðið vel úr rótunum þegar plantan er
sett niður, og þrýstið vel að þeim, fyrst
með höndunum, en síðar með fótunum, þeg-
ar holan hefur verið fyllt af mold.
7) Skiljið aldrei eftir dæld í kringum plönt-
una, sem vatn getur safnazt í.
8) Vökvið að lokinni gróðursetningu.
9) Ekki eru til neinar reglur um hve þétt skal