Almanak skólabarna - 01.01.1952, Blaðsíða 40
38
heyra. — Aðrir hafa aðeins raun af há-
vaða mælgi þinni, og telja hana bera vott
um lélegt uppeldi og skort á háttvísi.
III. Á heimleið.
1) Það er leiðinda ávawi að venja sig á slæp-
ingshátt á heimleið. Mundu að mamma
veit, hvenær þú ert búinn í skólanum, eða
hættir vinnu. Hún veit því, hvenær þú getur
verið kominn heim, og verður eðlilega hrædd
um þig, ef það bregst.
2) Öll hin sömu atriði, sem minnst er á í kafl-
anum „A leið að heiman“ þarft þú ávallt að
hafa rikt í huga á heimleiðinni.
IV. Er ég kem heim.
1) Heilsaðu foreldrum þínum og heimilisfólki
glaðlega strax og þú kemur heim. Ef byrjað
er að borða, vendu þig þá á að segja við
fólkið: „Verði ykkur að góðu“.
2) Settu dót þitt frá þér á sinn stað, og taktu
mataröskjuna þína upp úr töslcunni, og
settu hana á éldhúsborðið, til þess að hún
verði þvegin upp með borðbúnaðinum.