Almanak skólabarna - 01.01.1952, Page 47

Almanak skólabarna - 01.01.1952, Page 47
45 Tölur eru óvéfengjanlegar, — en þær geta þó stundum villt mönnum sýn. Maður nokkur kom með hest sinn til jám- smiðs í því skyni að fá hann járnaðann. — Hann hafði heyrt, að jámsmiðurinn væri nokk- uð dýrseldur, og spurði hann því, hve mikið það kostaði að járna hestinn. „Vertu óhræddur, maður minn. Ég er vanur að taka fyrir mína vinnu, sem svarar þeim tíma, sem fer í að vinna verkið, en ef þú villt, get ég járnað hestinn þinn í ákvæðisvinnu, ef þú heldur að það verði ódýrara". Síðan hugsar hann sig um eitt andartak og segir: „Ég skal ekki taka meira af þér en 1 eyri fyrir fyrstu hóffjöðrina, 2 aura fyrir næstu, 4 aura fyrir þá þriðju, 8 aura fyrir þá f jórðu, og með sama hætti vissa greiðslu fyrir hverja fjöður, en eins og þú veizt, þarf ekki meir en 24 hóffjaðrir í ganginn. — Skeifurnar færðu fyrir ekkert. — Þær hefi ég þó hingað til talið verðmætastar“.

x

Almanak skólabarna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak skólabarna
https://timarit.is/publication/1791

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.