Kirkjublaðið - 17.12.1945, Qupperneq 28

Kirkjublaðið - 17.12.1945, Qupperneq 28
26 KIRKJUBLAÐIÐ JÓLIN 1945 Árni Gíslason: PRESTURINN OKKAR Þegar ég ritaði endurminningar mínar í bókina Gullkistan, sem út kom á s. 1. ári, lét ég hjá líða að geta sérstaklega um einn útgerðarmanninn hér við Djúp á þeim tíma, sem frásögn mín tók til. Þessi maður var séra Sigurður Stefánsson, sem var einn hinna þjóðkunnustu manna á sinni tíð. Hann stóð mér skýrast fyrir hugskotssjónum sem prestur okk- ar Ögursveitunga, og leiðtogi í flestum málum. Ætlaði ég mér að íúta nokkur orð síðar um séra Sigurð, og biðja Kirkjublaðið að flytja þau til lesenda sinna. Ég átti því láni að fagna, að kynnast séra Sigurði á fyrsta prestsskaparári hans. Vil ég hér leitast við að lýsa honum nokkuð sem presti, og þeim áhrifum, sem séra Sigurður hafði á mig — og eflaust fleiri, sem voru að byrja sjálfstæða lífsbraut, en vorum enn lítt þroskaðir og ómenntaðir á nútímavísu. Séra Sigurður Stefánsson vígðist prestur til ögur- þinga 1881. Var hann nýútskrifaður af Prestaskól- anum. Séra Sigurður var fyrsta sumarið á Eyri í Seyðisfirði hjá Guðmundi Bárðarsyni. En eftir nýár 1882 varð hann barnakennari hjá Einari Hálfdáns- syni hreppstjóra á Hvítanesi. Ég átti að fermast þá um vorið, og var komið fyrir í skólanum á Hvíta- nesi. Þar kynntist ég fyrst séra Sigurði, og varð stórlega hrifinn af gáfum hans og eldmóði. Séra Þórarinn Kristjánsson í Vatnsfirði hafði þjónað ögurþingum næst á undan séra Sigurði. Séra Þórarinn var þá orðinn gamall maður og lítil kirkju- sókn hjá honum. Á þessu varð snögg breyting við komu séra Sigurðar. Hann var ungur og glæsilegur. Ræður hans báru vott miklum gáfum og fluttar af krafti og mælsku, og urðu menn hrifnir af þeim og allri framkomu unga prestsins. Sveitungar mínir hrósuðu happi að hafa fengið slíkan prest. Það happ varð heldur ekki endasleppt, því séra Sigurður þjón- aði ögurþingum til dauðadags og undi sér þar bezt. Fáir prestar munu hafa notið meiri virðingar hjá sóknarbörnum sínúm. Einu sinni sótti séra Sigurður um dómkirkjuprestsembættið í Reykjavík, og náði þar glæsilegri kosningu og var veitt brauðið. En hon- um fór sem Gunnari á Hlíðarenda, þegar hann átti að skilja við Fljótshlíðina fögru. Séra Sigurður gat ekki skilið við eyjuna sína, Vigur, og afþakkaði veit- inguna og sat kyrr. Ég vík þá aftur að skólanum í Hvítanesi. Mér er óhætt að fullyrða, að séra Sigui’ður var hinn ágætasti barnafræðari. Ilann var strangur en réttsýnn. Kennsluna byrjaði hann með því að kenna okkur mannasiði. Lærdómsgreinar okkar voru aðallega kristinfræði, reikningur og skrift. Hærra var ekki skrefið. Séra Sigurður lét sér mjög annt um, að við lærðum og skildum vel, einkum kristindóminn. I sum- um kennslustundunum hélt hann yfir okkur þrumandi ræður um trúarleg og andleg efni. Hefðu það verið dauf eyru, sem ekki tóku eftir og festu í minni heil- ræði hans og siðalærdóma. Ég hafði lært kverið áður en ég kom í skólann, þ, e. a. s. ég gat kyrjað kverið í belg og biðu, en skilningurinn var næsta lítill. Séra Sigurður lét sér ekki nægja slíka kunnáttu. Hann spurði rækilega út úr, og vildi vera viss um, að ungl- ingarnir skildu efnið og tileinkuðu sér það. Þegar svara skildi út úr fyrstu lexíunni í kverinu, gat ég ekki svarað. Séra Sigurður sagði þá, að ég skyldi lesa hana aftur, og gaf mér leiðbeiningar til skiln- ings um þau atriði, er mest vörðuðu. Næsta dag hlýddi hann mér yfir, og var ánægður með svör mín. Við þetta opnaðist mér nýr heimur. Ég sá að ekki var nóg að geta þulið, hitt var meira vert að reyna að skilja það sem ég las. Skólinn stóð til Páska, og varð ipér hin stutta kennsla ómetanleg stoð síðar í lífinu. Ég var fermdur um vorið, og er mér fermingar- dagurinn enn í fersku minni. Það hafði verið venja til þessa að raða fermingarbörnunum eftir metorða- stiga foreldranna. Séra Sigurður tók upp þá ný- breytni, að láta börnin draga um sætin, og þurfti því engin annan að öfunda. Ég hlaut fyrsta sætið í fermingarhappdrættinu, og varð þannig fyrsta ferm- ingarbarn séra Sigurðar. Kirkjan á ögri var þétt- skipuð fólki og fermingarræðan þótti með ágætum. Lagði séra Sigurður jafnan mikla alúð í undirbún- ing fermingarinnar og var strangur í því, að börnin kynnu vel kristindóminn og hinar sjálfsögðustu náms- greinar, skrift og reikning. Oft tók séi’a Sigurður sum fermingarbörnin heim til sín til betri undirbún- ings, og hafði þau hjá sér viku til hálfsmánaðar tíma. Við þessa fyrstu fermingu vísaði séra Sigurður tveimur börnum frá vegna vankunnáttu. Presturinn minn var nú búinn að kenna mér krist- indóminn og ferma mig, en eitt átti hann eftir, til

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.