Kirkjublaðið - 17.12.1945, Page 32

Kirkjublaðið - 17.12.1945, Page 32
30 KIRKJUBLAÐIÐ JÓLIN 1943 Rödd jólanna Jólasýning (Christmas Pageant) eftir séra Jakob Jónsson. Svið: Blár, stirndur himinn í baksýn. Fyrir miðju er jata jólabarnsins. Forspil. Söngflokkurinn syngur „Heims um ból“. Ilöddin (á bak við): Kirkjan er móðir, sem á börnin sín dreyfð um alla jörðina. En hún ber þau öll fyrir brjósti. Hún flytur boðskap sinn þeim, sem heima eiga á hjarni norðurs- ins og sólbrunnum eyðimörkum Suðurlanda. Hún leggur leið sína um háfjöll og djúpa dali, víðar slétt- ur og endalaus úthöf. Hún segir sögur sínar í hvelfd- um dómkirkjum, smáum sveitakirkjum, á kyrrlátum heimilum og í skipum úti á sjónum. Hún er móðir allra þeirra, sem hlýða á hennar orð, og lifa í anda þess Drottins, er hún þjónar. I kvöld talar kirkjan til yðar. Kirkjan birtist uppi yfir sviðinu öðru megin. Táknmynd hennar er kona, sem hefir gullið mítur eða koffur á höfði, og er krossmark á. Stóra biblíu hefir hún í höndum. Hún opnar hana og les jólaguðspjallið: Lúk. 2, 1—20. — Þegar sagan er lesin, koma þær persónur, er hún fjallar um, inn frá hægri og nema staðar umhverfis jötuna: María (sezt niður hjá jöt- unni), Jósep, fjárhirðarnir og englarnir. Eru þau þar hreyfingarlaus, unz leiknum lýkur. Jólasálmur, sunginn af söngflokknum, eða af söng- flokknum og englunum til skiptis. Sjúklingur er borinn inn frá vinstri, og skilinn eftir í hvílu sinni. Röddin: Allir þekkja hinn sjúka. Hann þráir að starfa, en er varnað þess. Hann þráir mátt og styrkleika, en er vanmegna. Hann þráir heilbrigði og hamingju, en þjáist af kvölum. Hvað hefir kirkjan að segja þeim sjúka? Röddin: Jesús Kristur læknaði sjúka, veitti þeim traust á Guði, trú á lífið og hinn lífgandi mátt. Stutt millispil. Hinn heilbrigði kemur frá vinstri. Ftöddin: Hinn heilbrigði er allstaðar. Hann hefir mátt til að starfa og nýtur líkamlegrar og andlegrar hreysti. Kirkjan les um „tiu líkþráa“, Lúk. 17, 11—19. Einn hinna læknuðu kemur frá hægri. Hann heldur á þríálma ljósastiku með logandi kertum og skilur hana eftir við jötuna. Þar krýpur hann ásamt hin- um heilbrigða, og fara þeir síðan til hliðar. Röddin: Þér, sem eruð heilir heilsu. Látið ljós þakklátsem- inar skína fyrir augliti Drottins og gefið Guði dýrðina. Stutt millispil. Fátæklingurinn kemur frá vinstri. Iíöddin: Fátæka hafið þér jafnan hjá yður. Hinn fátæki þráír að gera góðverk og gefa heiminum gjafir. Hugsjónir hans eru háar og hann á löngun til að koma þeim í framkvæmd, svo að líf mannanna verði betra, fegurra og auðugra, — en hann er fátækur. Kirkjan les söguna um eyri ekkjunnar. Mark. 12, 41—44. Fátæka ekkjan kemur frá hægri og leggur lítinn skilding á gólfið við jötuna. Fer síðan til hliðar,i ásamt fátæklingunum, eftir að þeir hafa kropið að jötunni. Röddin: Enginn er svo fátækur, að hann hafi ekkert að gefa — hjálpandi hönd, hlýlegt tillit, huggandi orð eða hugsun kærleikans. Stutt millispil. Kirkjan Auðmaðurinn kemur frá vinstri. les söguna um lama manninn, Mark. 2, 1—12. — Lama maðurinn er borinn inn frá hægri, og Röddin: skilinn eftir. Þegar kemur að orðunum: „Rís upp“, Auðmaðurinn hefir ráð á landi og byggingum, rísa báðir sjúku mennirnir á fætur, en þegar sög- bátum, skipum og verksmiðjum. Hann er sá, er safn- unni er lokið, krjúpa þeir við jötuna og setjast síðan ar fé með margskyns fyrirtækjum. (eða standa) til hliðar á sviðinu. (Persónur Biblí- unnar eru í austurlenzkum búningum). Kirkjan les söguna um Sakkeus, Lúk. 19, 1—10.

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.