Kirkjublaðið - 17.12.1945, Síða 40

Kirkjublaðið - 17.12.1945, Síða 40
38 KIRKJUBLAÐIÐ JÓLIN 1945 g'jöf Japana. Þakkarguðsþjónustur haldnar um allt land sunnudaginn 19. ágúst. 22. ágúst. Hófst í Kaupmannahöfn biskupafundur Norður- landa og stóð til 25. ágúst. Fundinn sóttu allir höfuð- biskupar Norðurlandanna og nokkrir fleiri biskupar. Höfuð umræðuefni fundarins var samvinna Norður- landakirknanna að eflingu meginhugsjóna kristin- dómsins. Sem fulltrúi íslenzku kirkjunnar mætti á fundinum Sigurgeir Sigurðsson biskup. Jafnframt sat biskupinn fund „Hjálparstofnunar hinna evangelisku kirkna í Evrópu“. í sambandi við biskupafundinn fór fram mjög há- tíðleg minningarguðsþjónusta um danska prestinn, skáldið og þjóðhetjuna Kaj Munk. 28.—30. ág. Aðalfundur Hallgrímsdeildar Prestafélagsins hald- inn í Stykkishólmi. 14.—16. sept. Aðalfundur Prestafélags Austuríands haldinn á Seyðisfirði. 9.—11. sept. Almennur kirkjufundur fslands haldinn á Akureyri. Hófst með guðsþjónustu í Akureyrarkirkju. Prófess- or Ásmundur Guðmundsson prédikaði. Forseti fund- arins var Gísli Sveinsson sýslumaður, formaður undirbúningsnefnda kirkjufunda. Eitt aðalmál fund- arins var að ræða um byggingu kirkjuhúss í Reykja- vík, er verða skyldi nokkurskonar miðstöð kirkju- legs menningarstarfs í landinu. Ennfremur rætt um frumvarp það um kirkjubyggingar, er Gísli Sveins- son bar fram á þingi 1944. Mörg erindi voru flutt á fundinum. Samtímis var og háður á Akureyri Aðalfundur Prestafélags fslands, og þar rædd ýms áhugamál prestastéttarinnar. Stjórn félagsins öll endurkosin, en hana skipa: Ásmundur Guðmundsson prófessor, Árni Sigurðsson, frikírkjuprestur, Friðrik Hallgríms- son dómprófastur, Guðmundur Einarsson prófastur á Mosfelli og Jakob Jónsson prestur í Reykjavík. 19. sept. Andaðist séra Halldór Bjarnason f. prestur að Presthólum og Skinnastað, f. 1. nóv. 1855 að Eyjólfs- stöðum á Völlum. Veittir Presthólar 1884 og varð jafnframt prestur í Skinnastaðaprestakalli er köll þessi voru sameinuð 1911. Lausn frá prestsskap 1. júní 1926. Dvaldi í Reykjavík hin síðari ár. 1. október. Lætur af embætti séra Haraldur Þórarinsson prest- ur á Mjóafirði nær 77 ára að aldri. S. d. Séra Björn Magnússon prófastur að Borg á Mýrum skipaður dócent við Guðfræðideild Háskóla fslands. 14. október. Lárus Halldórsson cand. theol. vígður í dómkirkj- unni í Reykjavík til Flateyjarprestakalls, en þar hefir hann verið skipaður sóknarprestur frá 1. þ. m. að undangenginni kosningu, er ekki varð lögmæt. Bisk- upinn framkvæmdi vígsluna. Séra Lárus er fæddur 10. október 1920 að Selvöllum í Helgafellssveit og lauk embættisprófi vorið 1945. 21. okt. Hátíðaguðsþjónusta í Hvalsnesskirkju í tilefni gagngerðrar og myndarlegrar aðgerðar, er fram hafði farið á kirkjunni. 1. nóvember. Andaðist í Reykjavík séra Kjartan Kjartansson, f. prestur að Staðarstað á Snæfellsnesi. Séra Kjartan var fæddur 27. marz 1868 að Ytri- Skógum undir Eyjafjöllum; sonur séra Kjartans Jónssonar og konu hans Ragnhildar Gísladóttur. Vígður til Staðarprestakalls í Grunnavík 1893 og þjónaði því til ársins 1917, er hann var settur prest- ur að Sandfelli í Öræfum. Þar var hann aðeins eitt ár, og lét síðan af prestsstörfum um skeið. 1922 var honum veittur Staðarstaður og þjónaði því brauði til 1937 er hann fékk lausn frá prestsskap. 1. des. Lætur af embætti séra Friðrik Hallgrímsson dóm- kirkjuprestur og dómprófastur í Reykjavík 73 ára að aldri. Hann hefir verið 47 ár í þjónustu kirkj- unnar, þar af full 20 ár prestur við Dómkirkjuna í Reykjavík. Sunnudaginn 2. des. kvaddi hann söfnuð sinn í Dómkirkjunni. Biskupinn talaði einnig í kirkjunni og flutti hinum fráfarandi presti þakkir kirkjunnar og þjóðarinnar fyrir hin ágætu störf hans.

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.