Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Blaðsíða 50
flutningi nauðsynlegra tækja og véla í framhaldi
þeirrar þróunar er orðið hefur í þessum efnum hin síð-
ari ár. Tilraunastarfsemi í þágu landbúnaðarins sé
haldið áfram og hún aukin eins og kostur er, starfsemi
nýbýlasjóðs sé efld eftir föngum og nýbyggjendum gert
sem auðveldast að stofna til búskapar. Þar sem ný-
býlahverfi eru sett á stofn, vill þingið skora á nýbýla-
stjórn að haga skipulagi byggðahverfisins þannig, að
byggingar séu skipulega staðsettar í þorp, svo bænd-
urnir geti haft með sér samvinnu í sem flestum grein-
um búskaparins, svo sem sameign með landbúnaðar-
vélar og hverskcnar samvinnu aðra ef þeir óska þess,
jafnvel gripahúsabyggingar. Með því geta bændur þeir,
sem búa á nýbýlum þessum notað sér betur alla nýtízku
tækni, svo sem rafmagn til smáiðnaðar o. fl. Lögð
skyldi sterk áherzla á, að hverskonar skilyrði til félags-
og menningarstarfsemi séu sem bezt í slíkum byggða-
hverfum.
Unnið sé að lækkun á dreifingarkostnaði landbún-
aðarafurða, svo að neytendum verði mögulegra að kaupa
afurðir bænda og þannig tryggt, að svo og svo mikið
af landbúnaðarvörum safnist ekki upp \og séu lítt
seljanlegar.
Þingið vill að athugaðir séu möguleikar á því að
ríkið veiti styrki til stofnunar búfjárræktarfélaga í
kauptúnum, þar sem skilyrði eru til samvinnubú-
reksturs.
Að lokum ítrekar þingið fyrri yfirlýsingu um hags-
munaaðstöðu verkamanna og bænda og vill eiga vin-
samleg samskipti við fólkið í sveitum landsins byggða
48