Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Blaðsíða 41
er nú 74,8% lengri tíma að vinna fyrir útsvari sínu en
hann var að því árið 1947.
Þar sem sýnt var orðið að ríkisvaldið vildi ekkert
aðhafast til úrbóta á þessu ári, en stöðugt hrakaði kaup-
mætti launanna, lýsir þingið yfir fullu samþykki sínu
við þá ákvörðun miðstjórnar og þeirra verkalýðsfélaga,
sem sagt hafa upp samningum sínum og bundizt sam-
tökum um sameiginlegar aðgerðir.
Þingið skorar á öll sambandsfélögin að styðja hvert
annað í þeirri kjara- og mannréttindabaráttu, sem verka-
lýðssamtökin eru nú að leggja út í, og heitir þeim öll-
um þeim stuðningi er það hefur yfir að ráða.
Þótt verkalýðsfélögin hafi nú eins cg svo oft áður
verið neydd til þess að krefjast kauphækkana, lýsir
þingið yfir þeirri eindreginni skoðun sinni, að æski-
legra væri að jafna metin á annan hátt. En með því að
það er ekki á valdi verkalýðssamtakanna, heldur í
höndum Alþingis og ríkisstjórnar að gera þær ráðstaf-
anir, sem jafngilda kjarabótum í hækkuðu kaupgjaldi,
þá hljóta verkalýðsfélögin að marka kröfur sínar á
þann veg, sem þau nú hafa gjört.
I þessu sambandi vill þingið benda á, að það telur til
kjarabóta fyrir allan almenning:
1. Að komið verði í veg fyrir óhóflega verzlunarálagn-
ingu m. a. með ströngu verðlagseftirliti.
2. Að landbúnaðarafurðir verði lækkaðar í verði. Mætti
í því sambandi taka til rækilegrar athugunar hinn
mikla dreifingarkostnað, sem er á landbúnaðarvör-
um.
3. Að tryggt verði nægilegt framboð nauðsynjavara á
39