Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Blaðsíða 7
Björn Blöndal var einn af frumherjum verkalýðssam-
takanna og meðal stofnenda Sjómannafélags Reykja-
víkur. Hann var um skeið erindreki Alþýðusambands-
ins og vann þá að stofnun verkalýðsfélaga víðs vegar
um landið. Minnist ég þess, er hann vann að stofnun
verkalýðsfélags í Hnífsdal 1924. Man ég hversu mér
unglingnum fannst sópa að þessum glæsta ræðumanni
og hversu skelegglega hann hélt fram hinum góða mál-
stað. Störf Björns Blöndals í þágu verkalýðssamtak-
anna voru unnin af trúmennsku og dugnaði.
Auk þeirra tveggja frumherja og baráttumanna verka-
lýðssamtaka, sem ég hefi nú nefnt, höfum við á sama
tíma orðið að sjá á bak fleiri félögum, og minnist ég
einkum Vilborgar Olafsdóttur, Reykjavík, formanns
Starfsstúlknafélagsins Sóknar, er einnig átti sæti hér
á sambandsþingum, Bjama Eggertssonar, Eyrarbakka,
er var einn af brautryðjendum samtakanna og átti sæti
á sambandsþingum, Kristjáns Péturssonar, er átti sæti
á sambandsþingum, Guðmundar Einarssonar, Þórshöfn,
formanns félagsins Þór og fulltrúa á sambandsþingum,
Magnúsar Guðmundssonar, síldarmatsmanns, fulltrúa á
sambandsþingum, Hafliða Jónssonar afgreiðslumanns,
Reykjavík, er var fulltrúi á sambandsþingum — og
Eggerts Brandssonar fisksala, Reykjavík, er sæti átti á
sambandsþingum.
Allt þetta fólk, sem fallið hefur í valinn frá síðasta
Alþýðusambandsþingi, hefur að meira eða minna leyti
lagt fram krafta sína og störf í þágu alþýðusamtakanna.
Eg bið ykkur öll að rísa úr sætum til að minnast þess-
ara föllnu félaga og annarra þeirra ónafngreindu fé-
5