Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Blaðsíða 61
Um byggingu elliheimila.
23. þing A. S. í. skorar á alþingi að setja lög um að
bygging elliheimila verði styrkt úr ríkissjóði á sama
hátt og t. d. sjúkrahúsabyggingar.
Um áfengismál.
23. þing A. S. I. lítur svo á, að frumvarp það til
áfengislaga, sem nú liggur fyrir alþingi, muni auka
áfengisnautn í landinu, ef að lögum yrði, einkum meðal
æskufólks, þess vegna mótmælir þingið eindregið:
a) Bruggun og sölu áfengs öls í landinu.
b) Fjölgun útsölustaða Afengisverzlunarinnar og öll-
um vínveitingaleyfum, hvort heldur er til veitinga-
húsa eða félagasamtaka.
Þingið leggur til að áfengislöggjöfin verði öll endur-
skoðuð að nýju og skipuð til þess ný nefnd, skipuð að
minnsta kosti 2 fulltrúum frá A. S. I., og sé annar full-
trúinn kona.
Um að útiloka áhrif atvinnurekenda í stjórn A. S. I.
23. þing A. S. í. samþykkir að vinna að því, að útiloka
áhrif atvinnurekenda í stjórn A. S. I., sem og annarra
afla er hafa orðið ber að því, að vinna móti hagsmun-
um verkalýðsins og að stjórn sambandsins verði skipuð
þeim mönnum einum, sem reynzt hafa ótrauðir baráttu-
menn innan verkalýðssamtakanna fyrir bættum kjör-
um verkalýðsins.
Um atvinnuleysistryggingar og orlof.
23. þing A. S. I. samþykkir að skora á alþingi að sam-
þykkja framkomið frumvarp um atvinnuleysistrygg-
59