Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Blaðsíða 75
að slík félög lúti sérstökum reglum um kosningu fulltrúa
með fullkomnum réttindum til Alþýðusambandsþings.
Tillagan flutt af Gunnari Stefánssyni og Kort
Ingvarssyni.
II. Með tilliti til þess, að vafi leikur á, að mörg svo-
kölluð verkalýðsfélög, sem stofnuð hafa verið út um
sveitir landsins, geti talizt fulkomlega lögleg samkvæmt
lögum A. S. í., þá samþykkir 23. þing Alþýðusambands
Islands, að þeim félögum, sem þannig er ástatt um og
hafa sótt um inntöku í sambandið milli þinga, verði
ekki veitt viðtaka í Alþýðusambandið.
En hins vegar mælir þingið með því, að nærliggjandi
verkalýðsfélög í kaupstöðum og kauptúnum veiti við-
töku einstökum meðlimum áðurnefndra félaga, sem
aukameðlimum, ef þeir óska þess.
Tillagan flutt af Benedikt Þorsteinssyni og Asbirni
Karlssyni.
III. Fundur haldinn í Verkalýðsfélaginu Jökull,
Hornafirði þann 12. 10. 1952, samþykkir að beina
þeirri áskorun til 23. þings Alþýðusambands Islands
að það gæti þess vel að ekki séu tekin inn í sambandið
með fullum réttindum félög, sem stofnuð eru víðs-
vegar út um sveitir landsins og ekki hafa neinna hags-
muna að gæta, varðandi kaup og kjör.
Um vísitöluuppbót á kaup.
Fundur haldinn í Verkalýðsfélaginu Jökull, Horna-
firði þann 12. 10. 1952, samþykkir að skora á sam-
73