Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 13.11.2000, Síða 13
alþjóðamálin á undanfömum árum, einkum á samstarf við hin Norðurlöndin
og vinnuna innan Evrópusamtaka verkalýðsfélaga. Það starf sem þarna er unn-
ið er líka að skila íslensku launafólki umtalsverðum réttarbótum á mörgum
sviðum. En sú spurning sem við þurfum stöðugt að spyrja okkur, er hvort sam-
tök okkar, uppbygging þeirra og starfshættir, tryggi að við sýnum fullan styrk
okkar í öllu starfi og hvort við séum í stakk búin til að takast á við síbreytileg
verkefni nútímans. Verkefni okkar á þessu þingi er meðal annars að svara þess-
ari spurningu.
A borðum ykkar liggja gögn þingsins og tillögur. Þótt við séum að hefja
þingstörfín þá er ekki eins og sjálf vinnan sé að hefjast hér. Að baki því efni
sem fyrir er lagt liggur ómæld vinna mikils fjölda fólks í Alþýðusambandinu,
ítarlegar umræður og samráðsferli. Það er svo okkar sem hér erum stödd að
leggja mat á hvemig til hefur tekist og móta áherslur, skipulag og starfshætti
heildarsamtaka íslensks launafólks. Eg tel að ég kveði síst of fast að orði þeg-
ar ég segi að brýna nauðsyn beri til að okkur takist vel upp. Við komum sam-
an til þings við aðstæður sem eru að mörgu leyti erfiðar. Við sjáum teikn um
vaxandi verðbólgu sem gæti stefnt í hættu þeim markmiðum um stöðugleika
og aukinn kaupmátt sem lágu til grundvallar kjarasamningum aðildarfélaga og
sambanda innan ASÍ sl. vor. Verkalýðshreyfingin þarf á öllum styrk sínum að
halda til að fylgja eftir markmiðum samninganna. Gangi markmiðin ekki eft-
ir, reynir á hvort samkomulag næst um viðbrögð. Þá skiptir höfuðmáli að hvert
samband og félag hafi styrk og burði til að takast á við viðfangsefnið og að all-
ir þessir aðilar beri gæfu til að standa þétt saman.
Eitt mikilvægasta framlag okkar til þess að svo geti orðið, og jafnframt
skýrustu skilaboðin um að heildarsamtök íslensks launafólks hyggist taka
virkan þátt í mótun samfélagsins á næstu árum með hagsmuni launafólks að
leiðarljósi, er að við náum sáttum um breytingar á skipulagi og starfsháttum
Alþýðusambandsins. Fyrir þessu þingi liggur tillaga um skipulag og starfs-
hætti ASÍ. Við höfum því, að mínu viti, einstakt tækifæri til að gera tvennt í
einu: Setja niður deilur undanfarinna ára og byggja upp enn skilvirkari og öfl-
ugri verkalýðshreyfingu.
Félagar,
Við komum saman til þings undir kjörorðunum „Nýtt afl - nýir tímar“.
Þetta kjörorð vísar til þess að verkalýðshreyfingin verður stöðugt að vera í end-
urnýjun til að laga sig að breyttum aðstæðum og svara kalli nýrra tíma.
„NÝTT AFL - NÝIR TÍMAR“ vísar ekki síður til þess að verkalýðshreyf-
ingin verður stöðugt að vera gerandi og frumkvöðull í sínu starfi til að setja
mark sitt á samfélagið og móta nýja tíma. Þessi yfirskrift er sérstaklega viðeig-
andi þegar verkalýðshreyfingin kemur saman til þings á þröskuldi nýrrar ald-
11