Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 13.11.2000, Qupperneq 15
s
Avörp gesta
Rœða Bill Jordan, framkvœmdastjóra Alþjóðasambands frjálsra verkalýðs-
félaga, ICFTU
Kæru bræður og systur,
Bræður og systur, kærar þakkir fyrir að bjóða mér á fyrsta þing ASI á nýrri
öld! Ég færi þinginu baráttukveðjur frá þeim 123 milljónum félaga sem eru í
Alþjóðasambandi frjálsra verkalýðsfélaga.
Ég veit að meðal mikilvægustu viðfangsefnanna sem þið ræðið á þessu
þingi er þörfin á að skipuleggja ykkur með þeim hætti að það mæti þeim nýju
verkefnum sem þið standið frammi fyrir. Þetta er viðfangsefni sem við stönd-
um öll frammi fyrir, það er að aðlagast þeim afdrifaríku áhrifum sem alþjóða-
væðingin hefur á vinnuna, á sama tíma og við fáumst við þau félagslegu
grundvallarverkefni sem við höfum tekist á við í sögu hreyfmgar okkar.
Alþjóðasambandið fagnar þeim tækifærum sem felast í alþjóðavæðingu
vinnunnar hvað það varðar að skapa ný störf og velmegun fyrir milljónir
manna, en mun á sama tíma berjast gegn alþjóðavæðingu sem tekur ekki tillit
til grundvallarsjónarmiða, gilda og viðmiðana sem verkalýðshreyfingin hefur
barist fyrir og komið á fót á síðustu 200 árum. Alþjóðavæðingin hefur sannað
getu sína til að skapa auð en hún hefur einnig sýnt okkur með óhugnanlega
skýrum hætti fullkomna vangetu sína til að tryggja sanngjama skiptingu þess
auðs. Milljónir manna í Kína hafa brotist úr fátækt á síðasta áratug, á meðan
milljónir manna sunnan Sahara eru verr settir en þeir voru fyrir 30 áram síð-
an. Það er næstum milljarður manna og kvenna án vinnu í heiminum en á sama
tíma getur hinn frjálsi markaður fundið störf fyrir 250 milljónir barna.
Já, það eru til fjölþjóðleg fyrirtæki sem flytja með sér viðurkenndar við-
miðanir til þróunarlandanna en of mörg flytja með sér kúgun þegar þau hefja
starfsemi á vaxandi fjölda frísvæða sem mörg hver eru vinnubúðir, girtar með
gaddavír þar sem ungar konur starfa án þess að vera skipulagðar í samtök,
óverndaðar og undirborgaðar. Og jafnvel í hinum þróaða heimi er ráðist að
þeim atriðum sem verkalýðsfélög börðust fyrir og komu á fót: Vinnulöggjöf,
almannatryggingum og eftirlaunum. Þetta gera jafnvel svokallaðar ríkisstjóm-
ir jafnaðarmanna sem skortir hugrekki til að standa gegn taumlausri ásókn
frjálsa markaðarins.
Bræður og systur, þetta þarf ekki að vera svona. Auðurinn er fyrir hendi,
heimurinn hefur aldrei verið auðugri, en það skortir pólitískan vilja til að upp-
ræta fátæktina af yfirborði jarðar. Til að sjá þróunarlöndunum í eitt ár fyrir
grunnheilsugæslu og menntun, vatni, hreinlætisaðstöðu og næringu, þarf
minna fé en sem nemur þeim 50 milljónum dollara sem eytt er á ári hverju í
13