Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 31.03.2023, Side 8
8 Framkvæmdafréttir nr. 724
2. tbl. 31. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 724
2. tbl. 31. árg.
9
Á höfuðborgarsvæðinu er notast við forgangskerfi
til að gefa neyðarakstri forgang í gegnum ljósastýrð
gatnamót. Fjöldi umferðarljósa sem tengd eru
við neyðarbílakerfið er 53 talsins af samtals 209
ljósastýrðum gatnamótum á höfuðborgarsvæðinu,
samkvæmt upplýsingum frá sumarmánuðum 2022.
Forgangskerfið virkar þannig að neyðarbílar hafa um
borð tölvubúnað sem gefur frá sér GPS staðsetningu
bílsins. Þegar bíllinn keyrir fram hjá ræsipunkti með
forgangsljósin á, þá sendir tölvubúnaðurinn merki í
miðstýrða tölvu sem skipar næstu umferðaljósum
að setja af stað neyðarforrit sem gefur grænt ljós á
þá stefnu sem bíllinn keyrir. Kerfið var tekið í notkun
árið 2016 og er reynsla rekstraraðila jákvæð, en
fram kemur að kerfið virki vel og auki öryggi bílstjóra
neyðarbíla og annarra farartækja.
Ræsipunktakerfi
neyðarbíla reynist vel
VSÓ ráðgjöf vann nýverið verkefni þar sem
úttekt var gerð á ræsipunktakerfi/forgangskerfi
neyðarbíla á höfuðborgarsvæðinu fyrir Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins (SHS), Vegagerðina og
Skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Verkefnið var
styrkt af rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar.
Markmið verkefnis er að stuðla að styttri
viðbragðstíma neyðarbílakerfis, auka skilning notenda
kerfisins, bæta gegnsæi á virkni kerfis og að kortleggja
blinda punkta þess sem hjálpar við forgangsröðun
framkvæmda og endurnýjun umferðarljósa.
Með gögnum úr stýrikössum umferðarljósa
frá Reykjavíkurborg og gögnum frá SHS úr búnaði
neyðarbíla var hægt að kortleggja ræsipunkta á
höfuðborgarsvæðinu og framkvæma tölfræðilega
greiningu á virkni ræsipunktakerfisins.
↓
Mynd 1. Staðsetning ræsipunkta á
höfuðborgarsvæðinu ásamt umferðarljósum
sem eru tengd við neyðarkerfi. Rauðir punktar
sýna ræsipunkta en grænir punktar tákna
gatnamót sem eru tengd við neyðarkerfi.