Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 31.03.2023, Page 12

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 31.03.2023, Page 12
12 Framkvæmdafréttir nr. 724 2. tbl. 31. árg. Framkvæmdafréttir nr. 724 2. tbl. 31. árg. 13 ← ↑ → ↓ ↖ ↗ ↘ ↙ Fimm brúarmannvirki/undirgöng auk undirganga úr stáli eru hluti af verkinu: → Undirgöng við Hraunavík Undirgöng við Hraunavík eru staðsteyptur bogi byggður upp af tveimur radíusum að innanverðu. Breidd undirganga er 7,25 m neðst við göngu- og hjólastíg. Yfirbyggingin er slakbentur bogi og þykkist boginn niður, þannig að yfirbygging er þykkust við undirstöður. Undirstöður eru steyptar beint ofan á klöpp og er útbúin rás við ytri brún til að fá spyrnu fyrir bogann. → Undirgöng við Hraunavíkurveg Byggja á ný undirgöng við Hraunavíkurveg fyrir 1+1 veg undir Reykjanesbraut að núverandi dælustöð. Undirgöngin eru staðsteyptur slakbentur rammi. Bergskera þarf klöpp fyrir undirgöngum og vegstæði. Áætlað er að steypa undirstöður ganganna í tvær rásir sem fleygaðar eru niður í berggrunninn. → Undirgöng við Straumsvík Núverandi undirgöng við Straumsvík voru byggð árið 2012. Vegna breikkunar vegarins þarf að lengja undirgöngin um u.þ.b. 13 m og breikka fyrir nýrri gönguleið. Lenging þeirra fylgir formi eldri hlutans, sem er steinsteyptur rammi steyptur beint á klöpp. Bætt verður við gönguleið meðfram veginum austan megin undirganga. Þrír af fjórum stoðveggjum verða fjarlægðir. Byggð verða ný undirgöng áföst núverandi mannvirki ásamt stoðveggjum. Til að gera gönguleið bjartari eru súlur milli aksturleiðar og gönguleiðar í nýja hlutanum. Haflengd yfir akstursleið er 9,0 m og 4,5 m yfir gönguleið. → Undirgöng við Straum Undirgöng við Straum verða úr bogalaga og báruðum galvanhúðuðum stálplötum sem boltaðar verða saman. Neðri kantar ganganna hvoru megin, hvíla á steyptum undirstöðum. → Brú á tvöföldun Reykjanesbrautar við Rauðamel Byggja á nýja brú við Rauðamel vegna tvöföldunar í nýju vegstæði. Brúin er staðsteypt með eftirspenntri brúarplötu. Umferð á Reykjanesbraut fer ekki um brúarstæðið á byggingartíma. Bergskera þarf klöpp fyrir brú og vegstæði og steypa undirstöður brúar í rásaða klöppina með bergboltum. Einnig er um að ræða breytingar á lagnakerfum Hafnarfjarðar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta, Ljósleiðarans og Carbfix. Verkfræðistofan Mannvit hefur unnið myndband fyrir Vegagerðina þar sem sjá má tölvuteikningu af því hvernig þessi nýi vegkafli Reykjanesbrautar kemur til með að líta út. Myndbandið má skoða á Youtube-rás Vegagerðarinnar. Tilboð verða opnuð 5. apríl. Ef allt gengur að óskum ætti verktaki að geta hafið framkvæmdir í maí á þessu ári. Stefnt er að því að verkinu verði að fullu lokið í lok júní 2026. ↓ Uppdráttur af mislægum gatnamótum við Rauðamel. Framkvæmdasvæði Reykjanesbraut Vatnsleysuvík Krýsuvíkurvegur Straumsvík Hafnarfjörður Álftanes Garðabær

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.